„7.–13. september. ‚Hann mun gera leiðir þínar greiðar‘: Orðskviðirnir 1–4; 15–16; 22; 31; Prédikarinn 1–3; 11–12,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„7.–13. september. ‚Hann mun gera leiðir þínar greiðar‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Jesús með börnum, eftir Dilleen Marsh
7.–13. september: „Hann mun gera leiðir þínar greiðar“
Orðskviðirnir 1–4; 15–16; 22; 31; Prédikarinn 1–3; 11–12
Þið gætuð hugsað um Orðskviðina sem safn viskuorða frá ástúðlegum foreldrum (sjá Orðskviðirnir 1:8). Meginboðskapur þeirra er sá að ef þið leitið visku – einkum visku Guðs – mun lífið ganga vel. Á eftir Orðskviðunum er Prédikarinn, sem virðist segja: „Þetta er nú ekki alveg svona einfalt.“ Í Prédikaranum segir að prédikarinn hafi „lagt allan hug á að þekkja speki“ en komist að raun um að það væri einungis „að sækjast eftir vindi“ og því fylgdi „mikið angur“ (Prédikarinn 1:17–18). Á ýmsan hátt er spurt í Prédikaranum: „Er raunverulega merkingu að finna í heimi þar sem allt virðist hégómi, stundlegt og ótryggt?“
Þótt bækurnar tvær nálgist lífið út frá ólíku sjónarhorni, þá kenna þær líkan sannleika. Í Prédikaranum segir: „Við skulum hlýða á niðurstöðu þessa alls: Óttastu Guð og haltu boðorð hans því að það á hver maður að gera“ (Prédikarinn 12:13). Þessa reglu er líka að finna hvarvetna í Orðskviðunum: „Treystu Drottni af öllu hjarta“ (Orðskviðirnir 3:5; sjá einnig vers 7). Lífið er alltaf betra – ef ekki alltaf fullkomið – þegar við treystum og fylgjum Drottni Jesú Kristi.
Til að fá yfirlit yfir þessar bækur, sjá þá „Orðskviður“ og „Prédikarinn“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Orðskviðirnir 1–4; 15–16; Prédikarinn 1–3; 11–12
„Hneigðu hjarta þitt að hyggindum.“
Bækur Orðskviðanna og Prédikarans eru fullar af speki og visku. Íhugið að undirstrika orðið „viska“ og önnur orð sömu merkingar, líkt og „þekking“ og „skynsemi“, er þið finnið þau í Orðskviðunum 1–4; 15–16; Prédikaranum 1–3; 11–12. Hvaða áhrif hafa þessir kaflar á hvað ykkur finnst um visku? Hvað finnst ykkur felast í viskuorðunum „Drottinn veitir speki“, byggt á því sem þið finnið? (Orðskviðirnir 2:6). Hvaða blessanir hljótast af visku Guðs?
Sjá einnig Matteus 7:24–27; 25:1–13.
Hjálpið nemendum að miðla því sem þeir læra. „Veitið nemendum tækifæri til að miðla hver öðrum því sem þeir eru að læra um frelsarann og fagnaðarerindi hans. Það mun hjálpa þeim að tileinka sér þann sannleika sem þeim er kenndur og að tjá hann. Það mun einnig hjálpa þeim að öðlast sjálfsöryggi í getu þeirra til að miðla sannleikanum við aðrar aðstæður“ (Kenna að hætti frelsarans, 26). Þið gætuð t.d. boðið nemendum að skrifa nokkrar tilvísanir úr Orðskviðunum eða Prédikaranum þar sem þeir hlutu skilning á visku Guðs. Bjóðið síðan nemendum að ræða það sem þeir lærðu.
Orðskviðirnir 1:7; 2:5; 3:7; 15:33; 16:6; 31:30; Prédikarinn 12:13
„Þú skalt ekki þykjast vitur en óttast Drottin.“
Annað þema sem finna má gegnumsneitt í Orðskviðunum og Prédikaranum er „óttast Drottinn“. Gætið að þessu orðtaki við lesturinn. Hvað finnst ykkur felast í því að óttast Drottin? Leitið skilnings í boðskap öldungs Davids A. Bednar, „Þeir bældu þess vegna ótta sinn“ (aðalráðstefna, apríl 2015). Hvernig er guðsótti öðruvísi en annars konar ótti?
Sjá einnig Orðskviðina 8:13.
Orðskviðirnir 3:5–7; 4
„Treystu Drottni af öllu hjarta.“
Hvernig mynduð þið reyna að sannfæra einhvern um að betra sé að „treysta Drottni“ en að „reiða þig ekki á eigið hyggjuvit“? (Orðskviðirnir 3:5). Hvaða samanburð eða sýnikennslu mynduð þið nota? Þegar þið íhugið Orðskviðina 3:5–7, hugsið þá um það hvernig þið gætuð lokið setningum eins og þessum: Að treysta Drottni er eins og …. Að reiða sig á eigið hyggjuvit er eins og…
Hvers vegna er ekki skynsamlegt að reiða sig á eigið hyggjuvit? Hvernig hafið þið komist að því að Drottinn er áreiðanlegur?
Þrátt fyrir það, þá gæti okkur stundum reynst erfitt að treysta Drottni. Af hverju er það svo? Öldungur Gerrit W. Gong bendir á nokkrar ástæður þess og veitir hjálplega leiðsögn í „Treystið á ný“ (aðalráðstefna, október 2021). Hvaða sögur eða kenningar finnið þið í þessum boðskap sem gætu hjálpað einhverjum að endurheimta traust sitt á Drottni?
Bæði Orðskviðirnir 3:6 og Orðskviðirnir 4 líkja lífinu við „leið“ eða „veg“. Hvað haldið þið að felist í því að láta Drottin „gera leiðir [ykkar] greiðar“? (Orðskviðirnir 3:6). Hvað finnið þið í kafla 4 sem hjálpar ykkur að „velja fótum [ykkar] beina braut“? (vers 26). Dæmi: Hvað kenna vers 11–12 og 18–19 um blessanir þess að vera á réttri braut? Hver finnst ykkur vera merking versa 26–27?
Sjá einnig 2. Nefí 31:18–21; „Lord, I Would Follow Thee,“ Hymns, nr. 220, ísl. þýðing til.
Orðskviðirnir 15; 16:24–32
„Mildilegt svar stöðvar bræði.“
Sumar hugmyndirnar í köflum 15–16 gætu hvatt ykkur til að bæta samskipti ykkar við aðra, einkum ástvini ykkar. Dæmi: Hugsið um ákveðin tilvik þar sem „mildilegt svar“ hjálpaði við að „stöðva bræði“ (Orðskviðirnir 15:1).
Þið gætuð líka hugsað um tilvik þar sem frelsarinn skýrði kenningarnar í Orðskviðunum 15:1–4, 18 (sjá Markús 12:13–17; Jóhannes 8:1–11). Hvernig getið þið fylgt fordæmi hans í samskiptum við aðra?
Hvernig gæti leiðsögnin í Orðskviðunum 15; 16:24–32 átt við um stafræn samskipti okkar tíma? Reynið að finna vers í þessum köflum sem þið gætuð umorðað sem leiðsögn fyrir samskipti á samfélagsmiðlum eða með texta.
Sjá einnig Neil L. Andersen, „Fylgja Jesú: Vera friðflytjandi,“ aðalráðstefna, apríl 2022; Ronald A. Rasband, „Orð skipta máli,“ aðalráðstefna, apríl 2024; Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvörðunartökum (2022), 11–12.
Dugmikla konu, hver hlýtur hana? II, eftir Louise Parker
Orðskviðirnir 31:10–31
„Sú kona sem óttast Drottin á hrós skilið.“
Orðskviðirnir 31:10–31 lýsa „dugmikilli konu“ eða konu sem býr að miklum andlegum styrk, hæfni og áhrifamætti. Þið gætuð reynt að gera samantekt með eigin orðum hvað hvert þessara versa segir um dugmiklar konur. Hverja af þessum eiginleikum getið þið tileinkað ykkur?
Prédikarinn 1–3;12
Jarðlífið er tímabundið.
Af hverju er það ykkur mikilvægt að hafa hugfast það sem staðhæft er í Prédikaranum 1–2 um að þessi heimur sé upp að vissu marki „hégómi“ (eða tímabundinn og oft merkingarlaus)? Hvað finnið þið í Prédikaranum 12 sem gefur lífinu eilífa merkingu?
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Orðskviðirnir 1:7; 2:5; 15:33; 16:6; Prédikarinn 12:13
Að „óttast Guð“ þýðir að elska hann og hlýða honum.
-
Til að hjálpa börnum ykkar að skilja ritningarhlutana um að óttast Guð, gætuð þið skipt út orðinu „ótti“ fyrir orð eins og lotning, elska eða hlýðni (sjá einnig Hebreabréfið 12:28). Hvaða áhrif hefur það á hugsun okkar varðandi þessi vers? Hvernig sýnum við að við óttumst Drottin?
Orðskviðirnir 3:5–7
Ég get treyst Drottni af öllu hjarta.
-
Þið og börn ykkar gætuð búið til hreyfingar sem passa við Orðskviðina 3:5–7, eins og að búa til hjarta með höndunum og ganga á sama stað. Hvernig getum við sýnt að við treystum Jesú Kristi af öllu hjarta?
-
Til að sýna merkingu þess að „reiða sig ekki á eigið hyggjuvit“ (Orðskviðirnir 3:5), íhugið þá að bjóða börnum ykkar að halla sér upp að einhverju föstu og tryggu, eins og vegg. Síðan gætuð þið reynt að halla ykkur að einhverju sem er ekki stöðugt, eins og kústi. Þau gætu líka þess í stað reynt að halla priki eða blýanti að hlutum af missterkum styrkleika, eins og bók eða blaði. Af hverju er mikilvægt að „treysta Drottni“ (vers 5) en ekki „eigin hyggjuviti“?
Læra að treysta Drottni, eftir Kathleen Peterson
Orðskviðirnir 15:1, 18
Ég get notað mild orð.
-
Þið og börn ykkar gætuð ef til vill hugsað um aðstæður þar sem þið eða þau gætu orðið reið. Lesið saman Orðskviðina 15:1 og hjálpið börnum ykkar að heimfæra þetta vers upp á aðstæður þeirra. Þau gætu ef til vill æft „mildileg svör“. Söngur um góðvild, t.d. „Kærleikur talar hér“ (Barnasöngbókin, 102), gæti undirstrikað þessa reglu.
-
Til að læra merkingu þess að vera „sein til reiði“ (Orðskviðirnir 15:18), gætuð þið og börn ykkar sagt frá tilvikum þar sem þið (eða einhver sem þið þekkið) voru reið en kusuð að sýna vinsemd. Hjálpið börnum ykkar að hugsa um hluti sem við getum verið fljót að gera ef við erum „sein til reiði“. Við getum til að mynda verið fljót að hugsa um Jesú, beðið himneskan föður um hjálp, hugsað um Barnafélagssöng eða, ef mögulegt er, gengið í burtu.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.