„23.–29. mars. ‚Ég … minntist sáttmála míns‘: 2. Mósebók 1–6,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„23.–29. mars. ‚Ég … minntist sáttmála míns‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Móse og logandi runninn, eftir Harry Anderson
23.–29. mars: „Ég … minntist sáttmála míns“
2. Mósebók 1–6
Boðið um að dvelja í Egyptalandi bjargaði fjölskyldu Jakobs. Eftir hundruð ára voru afkomendur þeirra þó hnepptir í þrældóm og hrelldir af nýjum faraó „sem ekki hafði þekkt Jósef“ (2. Mósebók 1:8). Það hefði verið eðlilegt af Ísraelsmönnum að spyrja sig hvers vegna Guð hafi leyft þessu að gerast fyrir sáttmálsþjóð sína. Mundi hann eftir sáttmálanum sem hann gerði við hana? Var hún enn þjóð hans? Gat hann séð hve mikið fólkið þjáðist?
Stundum koma tímar þar sem þið gætuð hafa viljað spurt svipaðra spurninga. Þið gætuð velt fyrir ykkur: „Veit Guð hvað ég geng í gegnum? Heyrir hann bænir mínar um hjálp?“ Frásögnin um frelsun Ísraels frá Egyptalandi svarar slíkum spurningum skilmerkilega: Guð gleymir ekki lýð sínum. Hann minnist sáttmálanna við okkur og mun uppfylla þá á sínum tíma og á sinn hátt. „Ég ætla að frelsa ykkur með útréttum armi,“ kunngjörir hann okkur. „Ég er Drottinn, Guð ykkar, sem leiðir ykkur úr ánauð“ (2. Mósebók 6:6–7).
Til að fá yfirlit yfir 2. Mósebók, sjá þá „Mósebækurnar“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
2. Mósebók 1–2
Guð getur unnið í gegnum mig til að uppfylla tilgang sinn.
Hvað vekur athygli ykkar við konurnar sem sagt er frá í 2. Mósebók 1–2? Hvernig hjálpuðu þær við að uppfylla áætlun Guðs fyrir lýð hans? Hvað kennir framlag þeirra ykkur um þjónustu í verki Guðs?
2. Mósebók 1–3
Jesús Kristur er bjargvættur minn.
Áður en þið byrjið að lesa 2. Mósebók, gætuð þið hugsað um erfiðleika sem þið takist á við – eitthvað sem þið vonið að Drottinn bjargi ykkur frá. Hvaða orð og orðtök í 2. Mósebók 1–3 hljóma líkt og andleg ánauð eða annað sem við tökumst á við á okkar tíma? Gætið líka að því hvernig Ísraelsmenn leituðu sér björgunar og hvernig Drottinn brást við (sjá t.d. 2. Mósebók 2:23–25; 3:7–8). Hvernig hefur Drottinn „komið niður til að bjarga“ ykkur?
Í gegnum 2. Mósebók gætuð þið líka veitt athygli einhverjum samlíkingum á Móse og Jesú Kristi (sjá 5. Mósebók 18:18–19; 1. Nefí 22:20–21). Hvaða samlíkingar sjáið þið t.d. í 2. Mósebók 1:22; 2:1–10 og Matteusi 2:13–16? Eða í 2. Mósebók 24:18 og Matteusi 4:1–2? Hvað finnst ykkur að Drottinn vilji að þið skiljið um hann sjálfan og mátt hans?
Leitið að táknum sem bera vitni um Jesú Krist. „Þið getið jafnvel fundið samsvaranir á milli lífs frelsarans og lífs spámanna og annarra trúfastra karla og kvenna í ritningunum. [Að gera það] opinberar sannleika um frelsarann á stöðum sem þið gætuð annars farið á mis við“ (sjá Kenna að hætti frelsarans,7; sjá einnig Hósea 12:10).
Trú við vatnsbakka, eftir Anne Marie Oborn
2. Mósebók 3:1–6
Ég get borið lotningu fyrir heilögum hlutum og stöðum.
Getið þið hugsað um stund þegar eitthvað fyllti ykkur lotningu og undrun? Hver voru viðbrögð ykkar? Hvernig mynduð þið lýsa tilfinningunum sem þið upplifðuð?
Lesið 2. Mósebók 3:1–6 með það í huga. Hvað vekur áhuga ykkar varðandi andlega upplifun Móse? Hvað gerði Móse til að sýna Guði lotningu? Hvaða tengingu sjáið þið á milli verka hans og lotningar fyrir helgum hlutum?
Lestur þessara versa gæti hvatt ykkur til að hugsa um heilaga hluti og heilaga staði í lífi ykkar. Af hverju eru þeir ykkur heilagir? Hvernig umgangist þið þá öðruvísi en það sem er hversdagslegt? Ykkur til leiðsagnar við ígrundun, gætuð þið vísað til hlutans „Hafa fyrirheitin hugföst“ í boðskap öldungs Davids A. Bednar, „Hin dýrmætu og háleitu fyrirheit“ (aðalráðstefna, október 2017). Þið gætuð líka sungið eða hlustað á sálm sem innblæs lotningu, eins og „Um Jesú ég hugsa“ (Sálmar, nr. 65) og íhugað hvað það er við fagnaðarerindið sem vekur ykkur furðu.
Auðvitað er hætta á að við verðum of kærulaus varðandi heilaga hluti, jafnvel þótt við höfum átt dásamlegar andlegar upplifanir. Hvernig er hægt að forðast þetta? Hér eru tvær ræður sem fjalla um þetta mál; veljið aðra og leitið að staðhæfingum sem hjálpa ykkur: Ulisses Soares, „Fullur lotningar yfir Kristi og fagnaðarerindi hans“ (aðalráðstefna, apríl 2022); Gérald Caussé: „Finnst ykkur það enn dásamlegt?“ (aðalráðstefna, apríl 2015).
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 6:10–12; 63:64.
2. Mósebók 3–4
Guð veitir því fólki vald sem hann kallar til verks síns.
Nú til dags þekkjum við Móse sem mikinn spámann og leiðtoga. Móse leit þó ekki á sjálfan sig sem slíkan þegar Drottinn kallaði hann fyrst. Þegar þið lesið 2. Mósebók 3–4, skráið þá áhyggjuefni Móse og hvernig Drottinn brást við hverju þeirra. Hvað finnið þið í þessum köflum sem getur uppörvað ykkur þegar ykkur finnst þið vanmáttug? Hvenær hafið þið séð Guð styrkja ykkur eða aðra til að gera verk sitt?
Sjá einnig „The Church Gives Us Opportunities to Assist in God‘s Work“ í „Church Organization“ í Topics and Questions, Gospel Library.
2. Mósebók 5–6
Tilgangur Drottins verður uppfylltur á hans eigin tíma.
Það getur dregið úr okkur kjark þegar einlæg viðleitni okkar til að gera gott virðist ekki skila árangri – þegar við erum að reyna að gera vilja Drottins, en sjáum ekki árangurinn sem við væntum. Lesið 2. Mósebók 5:4–9, 20–23 til að læra um álíka reynslu og Móse upplifði. Hvernig hjálpaði Drottinn Móse að sigrast á vanmáttartilfinningum sínum? (sjá 2. Mósebók 6:1–13). Hvernig hefur Drottinn hjálpað ykkur að gefast ekki upp við að framkvæma vilja hans?
Sjá einnig Jeffrey R. Holland, „Vona á Drottin,“ aðalráðstefna, október 2020.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Þar sem þessi sunnudagur er fimmti sunnudagur mánaðarins, eru Barnafélagskennarar hvattir til að nota námsverkefnin í „Viðauki B: Búa börn undir ævilanga veru á sáttmálsvegi Guðs“.
2. Mósebók 1–2
Guð getur unnið í gegnum mig til að uppfylla tilgang sinn.
-
Móse átti stóran þátt í að frelsa Ísrael úr ánauð. Hann hefði þó ekki getað gert þetta ef móðir hans, systir hans, dóttir faraós og aðrar trúfastar konur hefðu ekki verndað og varið hann. Hjálpið börnum ykkar að læra um þessar konur í 2. Mósebók 1:15–20; 2. Mósebók 2:2–10 (sjá einnig 4. Mósebók 26:59); og 2. Mósebók 2:16–21. Þið gætuð líka notað verkefnasíðu þessarar viku og „Ungbarnið Móse“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 61–63) til að segja sögur þeirra. Hvernig hjálpuðu þessar konur við að framfylgja áætlun Guðs? Ræðið hvert við annað um fólk sem hjálpar við verk Guðs sem þið dáist að, þar á meðal gegnum hið smáa og einfalda. Hvernig getum við fylgt fordæmi þess?
1:36Baby Moses
2. Mósebók 3:1–5
Ég get umgengist heilaga staði með lotningu.
-
Eftir að hafa lesið saman 2. Mósebók 3:1–5, biðjið þá börn ykkar að gera samantekt á þessum versum með eigin orðum (sjá einnig „Spámaðurinn Móse“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 64–66). Hvernig sýndi Móse lotningu í návist Drottins? Hvernig vill Drottinn að við sýnum lotningu? Þið gætuð einnig beðið börn ykkar að hjálpa ykkur að finna (eða teikna) myndir af helgum stöðum eða athöfnum þar sem við ættum að sýna lotningu. Hvað getum við gert til að gera heimili okkar að heilögum stað?
1:26Moses the Prophet
-
Syngið saman söng um lotningu, t.d. „Lotning er kærleikur“ (Barnasöngbókin, 12). Þegar þið gerið það, gætu börn ykkar fundið orð eða orðtök sem útskýra merkingu þess að vera lotningarfull. Hvernig myndum við útskýra merkingu þess að vera lotningarfull ef við værum að koma með vin í kirkju í fyrsta sinn?
Móse og Aron tala til fólksins, eftir James J. Tissot
2. Mósebók 3–4
Þegar Drottinn biður mig að gera eitthvað, mun hann hjálpa mér að gera það.
-
Notið frásögnina í 2. Mósebók 3; 4:1–17 og látið börn ykkar skiptast á við að látast vera Móse. Gaman gæti verið að hafa hluti eða einfalda leikmuni, eins og vasaljós og plöntu, til að tákna brennandi runnann. Hjálpið börnum ykkar að uppgötva hvað Móse fannst um verkefnið sem Drottinn fól honum (sjá 2. Mósebók 3:11; 4:1, 10). Þið gætuð ef til vill miðlað hvert öðru því þegar þið upplifðuð álíka tilfinningar. Hvaða ráði gætum við gefið Móse honum til hjálpar? Lesið um það hvernig Drottinn hvatti Móse í 2. Mósebók 3:12; 4:2–9, 11–12. Segið börnunum frá því hvernig frelsarinn hefur hjálpað ykkur að framfylgja köllun, fylgja hvatningu eða gera eitthvað annað sem hefur reynst ykkur erfitt.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.