„30. mars–5. apríl. ‚Hann [mun] afmá dauðann að eilífu‘: Páskar,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„30. mars–5. apríl. ‚Hann [mun] afmá dauðann að eilífu‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Teikning af tómu gröfinni
30. mars–5. apríl: „Hann [mun] afmá dauðann að eilífu“
Páskar
Líf Jesú Krists „er þungamiðja mannkynssögunnar“ („Hinn lifandi Kristur: Vitnisburður postulanna,“ Gospel Library). Hvað þýðir þetta? Að hluta þýðir þetta að líf frelsarans hefur áhrif á eilíft hlutskipti hverrar manneskju sem nokkru sinni hefur lifað eða mun lifa. Þið gætuð líka sagt að upprisa Jesú Krists, á þessum fyrsta páskasunnudegi, tengi þjóð Guðs í gegnum söguna: Þau sem fæddust fyrir upprisu hans lifðu í tilhlökkun um hana í trú (sjá Jakob 4:4) og þau sem fæddust eftir hana líta til baka á hana í trú. Þegar við lesum frásagnir og spádóma Gamla testamentisins sjáum við hvergi nafn Jesú Krists, en við sjáum vísbendingar um trú fólksins á Messías og lausnara og þrá þess eftir honum. Okkur, sem boðið er að minnast hans, er mögulegt að finna tengingu við þá sem lifðu í von um hann. Sannlega hefur Jesús Kristur borið „synd vor allra“ (Jesaja 53:6; skáletrað hér) og „svo munu allir lífgaðir verða vegna samfélags síns við Krist“ (1. Korintubréf 15:22; skáletrað hér).
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Spámenn fyrr og nú bera vitni um friðþægingarfórn frelsarans.
Mörg ritningarvers Gamla testamentisins vísa í þjónustu og friðþægingarfórn frelsarans. Í töflunni hér á eftir eru einhver þessara ritningarversa tilgreind. Hvaða hugsanir fylla hug ykkar um frelsarann við lestur þessara versa?
|
Gamla testamentið |
Nýja testamentið |
|---|---|
Gamla testamentið Sakaría 9:9 | Nýja testamentið Matteus 21:1–11 |
Gamla testamentið Sakaría 11:12–13 | Nýja testamentið Matteus 26:14–16; 27:3–8 |
Gamla testamentið Jesaja 53:4 | Nýja testamentið Matteus 8:16–17; 26:36–39 |
Gamla testamentið Jesaja 53:7 | Nýja testamentið Markús 14:60‒61 |
Gamla testamentið Sálmarnir 22:17 | Nýja testamentið Jóhannes 19:17–18; 20:25–27 |
Gamla testamentið Sálmarnir 22:19 | Nýja testamentið Matteus 27:35 |
Gamla testamentið Sálmarnir 69:22 | Nýja testamentið Matteus 27:34, 48 |
Gamla testamentið Sálmarnir 118:22 | Nýja testamentið Matteus 21:42 |
Gamla testamentið Jesaja 53:9, 12 | Nýja testamentið Matteus 27:57–60; Markús 15:27–28 |
Gamla testamentið Jesaja 25:8 | Nýja testamentið Markús 16:1–6; Lúkas 24:6 |
Gamla testamentið Daníel 12:2 | Nýja testamentið Matteus 27:52‒53 |
Spádómar og kenningar um frelsarann eru jafnvel enn fleiri og skýrari í Mormónsbók. Íhugið hvernig trú ykkar styrkist af ritningarhlutum sem þessum: 1. Nefí 11:31–33; 2. Nefí 25:13; Mósía 3:2–11; Alma 7:10–13.
Síðari daga spámenn halda áfram að bera sérstakt vitni um Jesú Krist og friðþægingarhlutverk hans. Þegar þið hlustið á aðalráðstefnu um páskahelgina, gætið þá að þeim vitnisburði um Krist sem þið heyrið. Hvað kenna þeir ykkur um hann?
Jesús Kristur býður mér frið og gleði.
Páskarnir eru gleðilegur tími, því þeir eru tími til að minnast friðþægingar og upprisu frelsarans. Samt eru margir sem ekki gleðjast af ýmsum ástæðum á páskunum. Hvað getið þið gert til að miðla friði og gleði frelsarans þessa páska?
Ein leið er að finna boðskap í ritningunum um friðinn og gleðina sem Jesús Kristur býður, eins og þessi: Sálmarnir 16:8–11; 30:3–6; Jesaja 12; 25:8–9; 40:28–31; Jóhannes 14:27; 16:33; Alma 26:11–22. Íhugið hvernig þið gætuð miðlað öðrum slíkum boðskap. Dæmi: Þið gætuð ef til vill búið til páskakort til að miðla, byggt á þessum boðskap. Verið bænheit varðandi það hver gæti þurft að fá páskakveðju frá ykkur. Þið gætuð líka ákveðið að miðla boðskap ykkar á samfélagsmiðlum, þar sem margir geta séð hann.
Sálmar um Krist og upprisuna, eins og „Upp frá dauðum er hann risinn“ (Sálmar, nr. 73), geta líka hjálpað okkur að finna frið og gleði á páskunum. Leitið orðtaka í sálminum sem að ykkar mati fanga gleði páskanna.
Sjá einnig Jeffrey R. Holland, „Ekki eins og heimurinn gefur,“ aðalráðstefna, apríl 2021; S. Mark Palmer, „Hryggð yðar mun snúast í fögnuð,“ aðalráðstefna, apríl 2021.
Hví grætur þú?, eftir Simon Dewey (hluti af mynd)
Vegna friðþægingar sinnar, hefur Jesús Kristur mátt til að hjálpa okkur að sigrast á synd, dauða, erfiðleikum og veikleikum.
Hér er verkefni sem getur hjálpað ykkur að sjá þær mörgu blessanir sem hljótast með Jesú Kristi og friðþægingu hans. Lesið ritningarnar hér að neðan um það sem Jesús Kristur hjálpar okkur að sigrast á. Reynið að raða ritningarhlutunum í þessa flokka: synd, dauði, erfiðleikar og veikleikar (sumir ritningarhlutarnir gætu passað í fleiri en einn flokk). Hvaða hughrif hljótið þið um mátt frelsarans við lesturinn?
-
Jesaja 61:1–3
-
Esekíel 36:26–28
-
Matteus 11:28–30
-
Lúkas 1:46–55
-
Rómverjabréfið 8:35–39
Hvernig mynduð þið útskýra fyrir vini sem ekki er kristinn af hverju Jesús Kristur er ykkur mikilvægur? Boðskapur öldungs Ahmads S. Corbitt, „Vitið þið hvers vegna ég, sem kristinn, trúi á Krist?“ (aðalráðstefna, apríl 2023), getur hér verið gagnlegur.
Sjá einnig Reyna I. Aburto, „Gröfin sigrar ekki,“ aðalráðstefna, apríl 2021; Topics and Questions, „Atonement of Jesus Christ,“ „Resurrection,“ Gospel Library.
Jesús Kristur galt endanlegt gjald fyrir sáluhjálp mína.
Hvað lærið þið af eftirfarandi versum um gjaldið sem Jesús Kristur galt fyrir sáluhjálp ykkar: Jesaja 53:3–5; Mósía 3:7; Kenning og sáttmálar 19:16–19? Hvert var gjald himnesks föður? (sjá Jóhannes 3:16).
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jesús Kristur þjáðist og dó fyrir mig.
-
Í páskavikunni er tilvalið að kenna börnum ykkar um það sem frelsarinn gerði fyrir okkur í Getsemane og á krossinum. Þið gætuð byrjað á því að sýna þeim myndirnar hér að neðan og látið þau ræða það sem er að gerast á myndunum. Meðan börn ykkar horfa á myndirnar, gætuð þið lesið vers sem lýsa þessum atburðum (sjá Matteus 26:36–46; 27:35–50; Lúkas 22:39–46; Jóhannes 19:16–30). Börn ykkar gætu tilgreint allt það á myndunum sem þau heyra í versunum.
Vinstri: Kristur í Getsemane, eftir Harry Anderson Hægri: Krossfestingin, eftir Harry Anderson
-
Hvernig erum við blessuð vegna fórnar Jesú fyrir okkur? Hjálpið börnum ykkar að leita að orðum og orðtökum sem svara þessari spurningu í Jesaja 53:4–12; Alma 7:11–13; og Kenningu og sáttmálum 19:16–19. Miðlið hvert öðru því sem ykkur finnst um frelsarann eftir að hafa lesið þessi ritningarvers.
Jesús Kristur reis upp fyrir mig.
-
Þið gætuð notað verkefnasíðu þessarar viku eða aðrar myndir í þessum lexíudrögum til að segja börnum ykkar söguna um upprisuna (sjá einnig „Jesús er upp risinn,“ í Sögur úr Nýja testamentinu, 139–44). Látið börn ykkar síðan segja ykkur söguna.
-
Íhugið hvernig þið getið hjálpað börnum ykkar að finna gleði í Kristi á þessum páskum. Þið gætuð sungið saman eftirlætis páskasálm, t.d. „Drottinn vor reis dauðum frá“ (Sálmar, nr. 74) eða „Getsemane“ (Gospel Library). Finna má fleiri sálma eða barnasöngva í efnisskrá Sálma og Barnasöngbókarinnar. Þið og börn ykkar gætuð sagt hvert öðru frá því hvers vegna þið njótið þessara söngva og hvernig ykkur líður þegar þið syngið þá. Hvað kenna þessi söngvar okkur um himneskan föður og Jesú Krist?
Börn geta skynjað andann en þarfnast kannski aðstoðar við að bera kennsl á áhrif hans. „Kennið þeim um hinar mismunandi leiðir sem andinn talar við okkur. Hjálpið þeim að þekkja rödd hans er hann talar við þau. Þetta mun hjálpa þeim að venja sig á að leita og framkvæma samkvæmt persónulegum opinberunum, allt sitt líf“ (Kenna að hætti frelsarans, 32). Dæmi: Þegar þið syngið söngva um frelsarann með börnum ykkar, skoðið þá myndir af honum eða lesið sögur um hann og miðlið hvert öðru þeim andlegu tilfinningum sem þið upplifið.
-
Í Gospel Library er safn páskamyndbanda sem börnin ykkar gætu notið þess að horfa á. Þið gætuð ef til vill leyft þeim að velja eitt til að horfa á. Spyrjið þau að því hvað þau lærðu um Jesú Krist í myndbandinu. Þið gætuð líka beðið þau að draga saman boðskap myndbandsins í eina setningu.
Spámenn vitna um Jesú Krist og friðþægingu hans.
-
Þegar þið og börn ykkar horfið saman á aðalráðstefnu þessa páskahelgi, hjálpið þeim þá að gæta að því þegar sérstök vitni frelsarans bera vitni um upprisuna. Þið gætuð ef til vill gert leik úr því – boðið þeim að rísa á fætur í hvert sinn sem þau heyra orð eins og páskar eða friðþæging eða upprisa. Miðlið hvert öðru ástæðum þess að þið eruð þakklát fyrir vitnisburði lifandi spámanna um frelsarann.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.