„6.–12. apríl. ‚Minnist þessa dags þegar þið fóruð út úr Egyptalandi‘: 2. Mósebók 7–13,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„6.–12. apríl. ‚Minnist þessa dags þegar þið fóruð út úr Egyptalandi‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Teikning af Móse og Aroni í hallarsal faraós, eftir Robert T. Barrett
6.–12. apríl: „Minnist þessa dags þegar þið fóruð út úr Egyptalandi“
2. Mósebók 7–13
Plága eftir plágu dundi á Egyptalandi, en faraó neitaði enn að veita Ísraelsmönnum frelsi. Guð hélt því áfram að sýna vald sitt og gefa faraó tækifæri til að samþykkja „að [hann] er Drottinn“ og að „enginn er sem [hann] á allri jörðinni“ (2. Mósebók 7:5; 9:14). Í millitíðinni hljóta Móse og Ísraelsmenn að hafa horft í forundran á kraftaverk Guðs í þeirra þágu. Vafalaust hafa þessi viðvarandi tákn staðfest trú þeirra á Guð og styrkt vilja þeirra til að fylgja spámanni Guðs. Eftir níu misheppnaðar tilraunir til að frelsa Ísraelsmenn með hræðilegum plágum, var það sú tíunda – dauði frumburða, þar á meðal frumburðar faraós – sem loks batt enda á ánauðina. Þetta virðist passandi, vegna þess að í hverri andlegri ánauð er sannarlega aðeins ein leið til undankomu. Aðeins fórn Jesú Krists, frumburðarins – blóð hins lýtalausa lambs – mun bjarga okkur.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
2. Mósebók 7–11
Ég get valið að mýkja hjarta mitt.
Vonandi stendur vilji ykkar aldrei gegn vilja Guðs eins og hjá faraó. Við höfum samt öll upplifað stundir þar sem hjarta okkar er ekki eins mjúkt og það hefði átt að vera. Hvað vekur athygli ykkar varðandi viðbrögð faraós við plágunum í 2. Mósebók 7:14–25; 8:1–28; 9:1–26; 10:12–29; 12:29–33? Takið eftir skýringum í Þýðingu Josephs Smith á 2. Mósebók 7:3, 13; 9:12.
Af hverju er orðið „hart“ góð lýsing á hjarta faraós? Íhugið hvað þið lærið af þessum versum um að vera mjúk í hjarta: 1. Nefí 2:16; Mósía 3:19; Alma 24:7–8; 62:41; Eter 12:27. Íhugið þá ástand hjarta ykkar þegar þið lesið um afleiðingar harðúðar faraós. Hvaða breytingar finnst ykkur þið hvött til að gera?
2. Mósebók 12:1–42
Jesús Kristur getur frelsað mig sökum friðþægingar sinnar.
Eina leið Ísraelsmanna til að verjast tíundu plágunni, eins og henni er lýst í 2. Mósebók 11:4–5, var að fylgja nákvæmlega leiðsögninni sem Guð gaf Móse í 2. Mósebók 12, helgisið sem varð páskahátið Gyðinga. Páskarnir kenna okkur með táknum, að alveg eins og Drottinn frelsaði Ísraelsmenn úr ánauð í Egyptalandi, þá getur hann líka leyst okkur úr ánauð syndar. Til að rannsaka þessa samlíkingu í 2. Mósebók 12:1–42, gætuð þið notað töflu eins og þessa:
|
Tákn |
Möguleg merking |
Skilaboð Guðs til mín |
|---|---|---|
Tákn Upphaf mánaða (vers 2; Drottinn bauð Ísraelsmönnum að nota þennan atburð til að marka upphaf tímatals þeirra). | Möguleg merking Þetta átti að verða nýtt upphaf fyrir Ísrael. Fólkið átti að „fæðast að nýju“. | |
Tákn Lambið (vers 3–5). | Möguleg merking Sjá Jóhannes 1:29; 6:54; 1. Pétursbréf 1:19. | |
Tákn Blóð lambsins á dyrastöfunum (vers 7, 13, 23). | Möguleg merking Sjá Mósía 4:2; Opinberunarbókin 12:11. | |
Tákn Hin ósýrðu brauð (vers 8, 15, 19–20). | Möguleg merking Súrdeig, eða ger, getur verið táknrænt um spillingu vegna þess að það spillist auðveldlega. Sjá Matteus 16:6–12; Jóhannes 6:35. | |
Tákn Beiskar jurtir (vers 8). | Möguleg merking Áminning um biturleika syndar og ánauðar. Sjá 2. Mósebók 1:14; HDP Móse 6:55. | |
Tákn Borðað í flýti, klædd til brottfarar (vers 11). | Möguleg merking Tákn um nauðsyn þess að yfirgefa fjötra syndar. Sjá 1. Mósebók 39:12; 2. Tímóteusarbréf 2:22. | |
Tákn Eyðandinn (vers 13, 23). | Möguleg merking | |
Tákn Ísraelsmenn voru frelsaðir (vers 29–32). | Möguleg merking | |
Hvað annað finnið þið í fyrirmælum og táknum páskanna sem minnir ykkur á Jesú Krist og friðþægingu hans? Hvað segja táknin ykkur um hvernig skuli meðtaka blessanir friðþægingar hans?
Komið til Krists með því að bera kennsl á tákn sem vitna um hann. Drottinn sagði: „Allt er skapað og gjört til að bera vitni um mig“ (HDP Móse 6:63; sjá einnig 2. Nefí 11:4). Í 2. Mósebók 12 vísa tákn eins og lamb, blóð, ósýrt brauð, kraftaverk og frelsun öll til Krists. „Þegar við skiljum að þessi atriði tengjast frelsaranum, geta þau kennt okkur um kraft hans og eiginleika“ (Kenna að hætti frelsarans, 7).
Í mína minning, eftir Walter Rane
2. Mósebók 12:14–17, 24–27; 13:1–16
Sakramentið hjálpar mér að minnast björgunar minnar fyrir milligöngu Jesú Krists.
Frelsarinn bauð Ísraelsmönnum að halda páskahátíðina heilaga ár hvert, til að hjálpa þeim að minnast þess að hann frelsaði þá, jafnvel eftir að ánauð þeirra var orðin fjarlæg minning. Hugsið um hvað þið gerið til að minnast blessana Guðs fyrir við lestur leiðsagnar hans í 2. Mósebók 12:14–17, 24–27; 13:1–16. Hvernig getið þið varðveitt minninguna „kynslóð eftir kynslóð“? (sjá 2. Mósebók 12:14, 26–27).
Hvaða samlíkingar sjáið þið milli páskahátíðarinnar og sakramentisins? Hvað getið þið gert til að hafa Jesú Krist „ávallt í huga“? (Moróní 4:3; 5:2).
Þið getið líka íhugað fleiri hluti sem Drottinn vill að þið munið; sjá t.d. Helaman 5:6–12; Moróní 10:3; Kenning og sáttmálar 3:3–5, 10; 18:10; 52:40.
Sjá einnig Kevin W. Pearson, „Ertu enn fús?,“ aðalráðstefna , október 2022; „Always Remember Him“ (myndband), Gospel Library; „Á krossi háum Kristur minn,“ Sálmar, nr. 66.
Always Remember Him
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
2. Mósebók 7–11
Drottinn hefur vald yfir öllum hlutum.
-
Plágurnar sem lýst er í 2. Mósebók 7–11 sýndu Egyptum og Ísraelsmönnum að Drottinn er afar máttugur. Drottinn mun hjálpa börnum ykkar alla ævi þegar þau trúa á mátt hans. Til að hjálpa þeim að læra af þessari frásögn, gætuð þið látið hvert barn fá blað sem skipt er í 10 hluta og boðið þeim að teikna myndir af plágunum sem lýst er í þessum versum: 2. Mósebók 7:17–18; 7:26–29; 8:12–13; 8:16–18; 9:1–6; 9:8–9; 9:22–23; 10:4–5; 10:21–22; 11:4–7 (sjá einnig „Plágur Egyptalands“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 67–69). Lesið saman 2. Mósebók 7:5 og 9:14 til að útskýra hvers vegna Drottinn sendi plágurnar.
2:3The Plagues of Egypt
-
Miðlið börnum ykkar hvernig Drottinn hefur sýnt ykkur „að enginn er sem [hann] á allri jörðinni“ (2. Mósebók 9:14). Látið þau segja frá því hvernig þau vita að Drottinn er máttugur.
2. Mósebók 8:24–28; 9:7
Drottinn getur hjálpað mér að hafa mjúkt hjarta.
-
Til að hjálpa börnum ykkar að sjá fyrir sér hvað það þýðir að hafa mjúkt hjarta, gæti verið gaman að sýna þeim harðan hlut, líkt og stein, og annan hlut sem er mjúkur og rakadrægur, líkt og svamp. Þið gætuð líka hellt vatni yfir þessa hluti til að sýna hve auðveldlega mjúkt hjarta meðtekur orð Drottins. Þið gætuð síðan lesið saman nokkur vers sem lýsa því hvernig faraó brást við plágum Drottins (sjá 2. Mósebók 8:24–28; 9:7). Hver hlutanna táknar best hjarta eða viðhorf faraós? Hver er merking þess að hafa mjúkt hjarta? (sjá Mósía 3:19).
-
Þið og börn ykkar gætuð skráð sumt það sem einkennir hart hjarta (til að mynda að nota óvinsamleg orð eða vera tregur til að deila með öðrum). Hvernig getum við sýnt Drottni að við viljum hafa mjúkt hjarta?
2. Mósebók 12:1–13
Sakramentið getur hjálpað mér að minnast Jesú.
-
Páskarnir kenndu Ísraelsmönnum að vænta frelsarans og fórnar hans fyrir okkur. Þegar þið skoðið saman 2. Mósebók 12:1–13, hjálpið þá börnum ykkar að skilja samhengi hlutanna milli páskahátíðarinnar og friðþægingar Jesú Krists (sjá einnig „Páskahátíð Gyðinga“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 70–74). Dæmi: Hvernig er Jesús eins og lambið sem lýst er í versi 5?
2:54The Passover
-
Í dag meðtökum við sakramentið til að minnast fórnar Jesú. Þið gætuð sýnt börnum ykkar mynd af sakramentinu og rætt hvernig þessi helgiathöfn hjálpar okkur að hafa Jesú Krist í huga. Þið gætuð hjálpað börnum ykkar að finna orðin „til minningar“ í sakramentisbænunum (sjá Moróní 4–5). Eða sungið saman kæran sálm um sakramentið og hjálpað börnum ykkar að finna friðinn sem þau upplifa þegar þau hugsa um frelsarann. Hvernig getum við sóst eftir þeirri tilfinningu þegar við meðtökum sakramentið?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.