Kom, fylg mér
13.–19. apríl. „Standið kyrr og horfið á þegar Drottinn bjargar ykkur“: 2. Mósebók 14–18


„13.–19. apríl. ‚Standið kyrr og horfið á þegar Drottinn bjargar ykkur‘: 2. Mósebók 14–18,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„13.–19. apríl. ‚Standið kyrr og horfið á þegar Drottinn bjargar ykkur‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Rauðahaf

13.–19. apríl: „Standið kyrr og horfið á þegar Drottinn bjargar ykkur“

2. Mósebók 14–18

Ísraelsmenn voru í sjálfheldu. Rauðahafið blasti við þeim og her faraós nálgaðist hratt á hæla þeirra. Flótti þeirra frá Egyptalandi virtist ætla að verða skammlífur. Guð var þó með boð til Ísraelsmanna sem hann vildi að yrðu þeim minnisstæð í margar kynslóðir: „Óttist ekki. … Drottinn mun sjálfur berjast fyrir ykkur“ (2. Mósebók 14:13–14).

Upp frá þessu hefur lýður Guðs sagt þessa sögu þegar hann hefur þurft á trú og hugrekki að halda. Þegar Nefí vildi uppörva bræður sína, sagði hann: „Verum sterkir sem Móse, því að hann talaði vissulega til vatna Rauðahafsins, og þau skiptust í báðar áttir, og feður okkar komust á þurru yfir það og úr ánauð“ (1. Nefí 4:2). Limí konungur minnti fólk sitt á þessa sömu frásögn þegar fólk hans var í ánauð, og sagði: „Lyftið því höfði, fagnið“ (Mósía 7:19). Það gerði Alma líka þegar hann vildi vitna fyrir syni sínum um mátt Guðs (sjá Alma 36:28). Þegar okkur finnst við vera í sjálfheldu – þegar við þurfum örlítið meiri trú til að „[sjá hjálpræði Drottins]“ – getum við minnst þess að „Drottinn [bjargaði] Ísrael … á þessum degi“ (2. Mósebók 14:13, 30).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

2. Mósebók 14; 15:1–21

Drottinn getur komið „máttarverki“ til leiðar í lífi mínu.

Við lestur 2. Mósebókar 14:1–10, skuluð þið ímynda ykkur hvernig Ísraelsmönnum gæti hafa liðið þegar þeir sáu her faraós þokast nær. Ykkur finnst kannski eins og þið þarfnist kraftaverks til að komast yfir erfiða áskorun sem þið standið andspænis. Hvað lærið þið af 2. Mósebók 14:13–31 sem getur innblásið ykkur til að leita eftir mætti Guðs í lífi ykkar? Íhugið á hvaða hátt þið hafið séð mátt hans í lífi ykkar. Hvað hafið þið lært um hann af þessum upplifunum?

2. Mósebók 15:1–19 er lofsöngur sem Ísraelsmenn sungu eftir að Drottinn klauf Rauðahafið. Hvaða orðtök í þessum söng finnst ykkur einkar þýðingarmikil? Ef til vill langar ykkur að syngja sálm um það þegar Drottinn hefur komið einhverju undraverðu til leiðar fyrir ykkur, t.d. „Nú Ísraels lausnari“ (Sálmar, nr. 26). Íhugið að syngja eða hlusta á hann sem hluta af tilbeiðslu ykkar í dag.

Sjá einnig Kenning og sáttmálar 8:2–3.

2. Mósebók 15:22–27; 16:1–15; 17:1–7

Drottinn getur breytt hinu beiska í sætt.

Að lesa um ferð Ísraels gæti vakið ykkur til umhugsunar um það í lífi ykkar sem virðist „beiskt“, eins og vatnið í Mara (sjá 2. Mósebók 15:23–27). Hvernig hefur Drottinn gert hið beiska sætt í ykkar lífi? Hvaða gildi hafa slíkar upplifanir haft í lífi ykkar?

Þið munuð sjá fleiri dæmi um beiskar upplifanir Ísraelsmanna í 2. Mósebók 16 og 17. Það er freistandi að vera gagnrýninn á mögl þeirra og kvartanir, en íhugið þó við lesturinn hvort þið hafið einhvern tíma gert það sama. Hvað lærið þið af upplifunum Ísraelsmanna sem getur hjálpað ykkur að mögla minna og treysta meira Guði? Hvað kenna þessi vers ykkur um Guð?

Sjá einnig 1. Nefí 2:11–12.

Ísraelsmenn safna saman manna

Ísraelsmennirnir safna saman manna. Neó-gotnesk freska, Trnava (hluti af mynd)

2. Mósebók 16

trúarskólatákn
Drottinn býður mér andlega næringu daglega.

Þar sem við þurfum öll að borða, líkir Drottinn oft andlegum hlutum við að matast. Leitið að andlegum lexíum hans í upplifunum Ísraelsmanna með manna í 2. Mósebók 16. Dæmi: Hvað finnið þið í leiðsögn Drottins í 2. Mósebók 16:16, 19, 22–26 sem á við um andlega næringu ykkar?

Til að uppgötva fleiri lexíur sem Drottinn gæti viljað að þið lærðuð af þessu kraftaverki, íhugið þá spurningar eins og þessar:

  • Hvað gefur Drottinn mér sem er eins og hið daglega manna sem hann gaf Ísraelsmönnum?

  • Hvað get ég gert sem er eins og að safna saman manna?

Þið gætuð fundið aukinn skilning í einu eða fleirum þessara myndbanda: „Daily Bread: Pattern,“ „Daily Bread: Experience“ og „Daily Bread: Change“ (Gospel Library).

2:52

Daily Bread: Pattern

3:12

Daily Bread: Experience

3:0

Daily Bread: Change

Hugsið um aðra hluti en að matast sem þið gerið á hverjum degi. Af hverju þarf að gera ákveðna hluti daglega til að fullnægjandi sé? Hvað finnst ykkur þið hvött til að gera til að sækjast eftir andlegum upplifunum?

Sjá einnig Dieter F. Uchtdorf, „Dagleg endurreisn,“ aðalráðstefna, október 2021; „Daily Restoration“ (myndband), Gospel Library.

5:27

Daily Restoration

2. Mósebók 17:1–7

Jesús Kristur er minn andlegi klettur og lifandi vatn.

Hugsið til frelsarans við lestur 2. Mósebókar 17:1–7. Hvernig er Jesús Kristur eins og klettur í ykkar huga? (sjá Sálmana 62:7–8; Helaman 5:12). Á hvaða hátt er hann eins og vatn? (sjá Jóhannes 4:10–14; 1. Korintubréf 10:1–4; 1. Nefí 11:25).

Gætið að efnislegum hlutum sem vitna um Krist. Alltaf þegar ritningarnar lýsa því sem gæti verið táknrænt fyrir Jesú Krist, eins og gert er í 2. Mósebók 17:1–7, gæti þar verið tækifæri til sýnikennslu. Að horfa á eða snerta kletta eða vatn getur auðveldað okkur að skilja hvernig líkja má þessum hlutum við Jesú Krist. Ef þið getið virkjað mörg skilningarvit í náminu verður það eftirminnilegra og áhrifaríkara.

2. Mósebók 17:8–16; 18:13–26

Lærisveinar hjálpa hverjum öðrum að „létta undir“ í verki Drottins.

Það gætu komið stundir í lífi ykkar þar sem þið getið fundið samsvörun með Móse – þegar aðrir reiða sig á ykkur, en „hendur [ykkar] þreytast“ (2. Mósebók 17:12). Á öðrum stundum gætuð þið verið líkari Aron, Húr og Jetró, sem studdu Móse. Setjið ykkur í spor hvers þessara einstaklinga þegar þið lesið 2. Mósebók 17:8–16; 18:13–26 og sjáið hvað Drottinn kennir ykkur um verk sitt.

Sjá einnig Mósía 4:27; 18:8–9.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

2. Mósebók 14:5–22

Drottinn getur komið „máttarverki“ til leiðar í lífi mínu.

  • Þegar Drottinn klauf Rauðahafið, sáu Móse og Ísraelsmenn hve máttugur hann er. Leyfið börnum ykkar að hjálpa ykkur að hugsa um skemmtilega leið til að leika frásögnina í 2. Mósebók 14:5–22 (sjá einnig „Páskahátíð Gyðinga“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 70–74). Þið gætuð ef til vill raðað upp stólum eða teppum og „klofið“ þau eins og þau væru Rauðahafið. Þið gætuð síðan sagt hvert öðru frá því hvernig þið hafið séð mátt Guðs í lífi ykkar.

    2:54

    The Passover

  • Hverju bætir Kenning og sáttmálar 8:2–3 við skilning okkar á þessari sögu í 2. Mósebók 14? Íhugið að segja börnum ykkar frá reynslu þar sem heilagur andi sagði ykkur eitthvað í huganum eða hjartanu og bjóðið þeim að ræða um reynslu sína. Þið gætuð líka sungið söng um heilagan anda, t.d. „Heilagur andi“ (Barnasöngbókin, nr. 56).

2. Mósebók 15:22–25

Drottinn getur breytt hinu beiska í sætt.

  • Þið og börn ykkar gætuð ef til vill drukkið eitthvað sætt og eitthvað beiskt í sameiningu meðan þið lærið saman 2. Mósebók 15:22–25 . Hvernig hefur frelsarinn gert „beiskar“ upplifanir „sætar“ í lífi okkar?

2. Mósebók 15:23–25; 16:14–15; 17:1–6

Jesús er mitt lifandi vatn, mitt brauð lífsins og minn klettur.

  • Þegar þið og börn ykkar lesið 2. Mósebók 15:23–25; 16:14–15; 17:1–6, fáið þau þá til að hjálpa ykkur að finna hluti til að auðvelda að segja hverja sögu – eins og grein (til að lækna vatnið í Mara), krukku eða pott (til að fylla af manna) og klett (fyrir vatnið í Hóreb). Hvernig minna þessar sögur okkur á það sem Jesús Kristur gerir fyrir okkur? Sem hluta af umræðum ykkar, væri hægt að lesa: Matteus 7:24–27; Jóhannes 4:10–14; 6:29–35, 48–51; Helaman 5:12; Kenning og sáttmálar 20:77, 79.

málverk sem sýnir Móse, Aron og Húr

Eitt frammi fyrir Guði, eftir Joseph Brickey (hluti af mynd)

2. Mósebók 17:8–16; 18:13–26

Þið getið hjálpað við að „létta byrði“ í verki Drottins.

  • Þegar þið lesið 2. Mósebók 17:8–16, gætuð þið beðið barn að halda höndum sínum hátt á lofti. Þegar barnið verður þreytt geta önnur börn hjálpað á sama hátt og Aron og Húr hjálpuðu Móse. Hvað kennir þessi saga um það hvernig við getum hjálpað ríki Guðs að verða farsælt? Þið gætuð líka lesið 2. Mósebók 18:13–26 og rætt hina þungu ábyrgð fólks sem þjónar í deild ykkar. Hvað getum við gert í dag til að hjálpa kirkjuleiðtogum okkar á sama hátt og Aron og Húr hjálpuðu spámanninum Móse?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Móse klýfur Rauðahafið

Farið yfir Rauðahafið, eftir Otto Semler

Verkefnasíða Barnafélagsins: Drottinn getur komið „máttarverki“ til leiðar í lífi mínu