„23. febrúar–1. mars. ‚Er Drottni nokkuð ómáttugt?‘: 1. Mósebók 18–23,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„23. febrúar–1. mars. ‚Er Drottni nokkuð ómáttugt?‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Sara og Ísak, eftir Scott Snow
23. febrúar–1. mars: „Er Drottni nokkuð ómáttugt?“
1. Mósebók 18–23
Líf Abrahams og Söru, fyllt bæði átakanlegum og hjartanæmum atburðum, er til vitnis um sannleika sem Abraham lærðist í sýn – að við séum á jörðinni til að vera reynd „og sjá hvort [við gerum] allt, sem Drottinn Guð býður [okkur]“ (Abraham 3:25). Skyldu Abraham og Sara reynast trú? Skyldu þau áfram hafa trú á fyrirheit Guðs um mikinn fjölda afkomenda, jafnvel þegar þau voru barnslaus í elli sinni? Skyldi trú þeirra standast hið óhugsandi boð eftir fæðingu Ísaks – um að fórna einmitt þeim syni sem Guð hafði gefið fyrirheit um að myndi uppfylla sáttmálann?
Abraham og Sara treystu Guði og hann treysti þeim (sjá 1. Mósebók 15:6; Rómverjabréfið 4:3). Í 1. Mósebók 18–23 eru sögur úr lífi Abrahams, Söru og annarra, sem geta hvatt okkur til umhugsunar um fúsleika okkar sjálfra til að trúa fyrirheitum Guðs, til að flýja ranglæti og líta ekki aftur og til að treysta Guði, hver sem fórnin er. Með því að reyna okkur, bætir Guð okkur líka.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
1. Mósebók 18:9–14; 21:1–7
Drottinn uppfyllir fyrirheit sín á sínum tíma.
Drottinn hefur gefið hinum trúu dýrleg fyrirheit, en stundum leiða aðstæður lífsins okkur til umhugsunar um hvernig þessi fyrirheit gætu mögulega verið uppfyllt. Abraham og Söru gæti hafa liðið þannig. Hvað lærið þið af upplifunum þeirra? Það getur verið hjálplegt að hefja nám ykkar með upprifjun á því sem Drottinn hét Abraham í 1. Mósebók 17:4, 15–22. Hvernig brugðust Abraham og Sara við? (sjá Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 17:23 [í Genesis 17:17, neðanmálstilvísun b]; 1. Mósebók 18:9–12). Hvernig brást Drottinn við til aðstoðar þeim við að hafa meiri trú á fyrirheit hans? (sjá 1. Mósebók 18:14).
Hvað finnið þið í þessum versum sem eflir trú ykkar? Hvaða aðrar upplifanir – í lífi ykkar eða annarra – hafa styrkt trú ykkar á að Drottinn muni uppfylla fyrirheit sín á sínum tíma og á sinn hátt? Þið gætuð líka íhugað hvernig þið getið viðhaldið trú ykkar þegar fyrirheitnar blessanir veitast ekki í þessu lífi. Hvaða leiðsögn finnið þið í Hebreabréfinu 11:8–13 og boðskap Russells M. Nelson forseta, „Kristur er risinn; Trú á hann mun færa fjöll úr stað“? (aðalráðstefna, apríl 2021).
Sjá einnig Kenningu og sáttmála 88:68.
1. Mósebók 19:12–29
Drottinn býður mér að flýja ranglæti og líta ekki aftur.
Hvaða lexíur um að flýja ranglæti lærið þið, er þið lesið um Lot og fjölskyldu hans? Hvað hrífur ykkur við orð og gjörðir englanna til hjálpar Lot og fjölskyldu hans við að komast hjá tortímingu? (sjá 1. Mósebók 19:12–17). Hvernig hjálpar Drottinn ykkur og fjölskyldu ykkar að flýja ill áhrif heimsins eða finna skjól frá þeim? Hugsið um aðstæður þar sem þið gætuð látið freistast til að „líta … aftur“ (vers 26) þegar þið ættuð að líta fram í trú á frelsarann. Hverju bætir Lúkas 9:62 við skilning okkar á þessu efni?
Sjá einnig Þýðingu Josephs Smith á 1. Mósebók 19:9–15 (í Þýðing Josephs Smith – Viðauki).
1. Mósebók 19:26
Hvað gerði kona Lots rangt?
Öldungur Jeffrey R. Holland kenndi:
„Svo virðist sem kona Lots hafi ekki aðeins litið um öxl. Í hjarta sínu vildi hún snúa til baka. Svo virðist sem hún hafi saknað þess sem Sódóma og Gómorra höfðu að bjóða henni, jafnvel áður en hún var komin út fyrir borgarmörkin. …
Hugsanlegt er að eiginkona Lots hafi horft til baka í gremju yfir því sem Drottinn bauð henni að segja skilið við. … Hún leit því ekki aðeins um öxl; hún leit um öxl í eftirsjá. Í stuttu máli, þá var hún svo föst í fortíðinni, að það yfirskyggði tiltrú hennar á framtíðinni. Það var augljóslega hluti af synd hennar.
… Ég sárbið ykkur að dvelja ekki við liðna tíð eða staldra til einskins við gærdaginn, hversu góður sem sá gærdagur hefur verið. Læra ætti af fortíðinni en ekki lifa í henni. Við horfum til baka til að sjá glæður hinnar glitrandi reynslu, en ekki öskuna. Þegar við svo höfum lært það sem læra þarf og höfum tekið með okkur það besta sem við höfum upplifað, þá horfum við fram á við og munum að trú beinist alltaf að framtíðinni. …
Að dvelja við fortíðina og mistök hennar, er einfaldlega ekki rétt! Það er ekki fagnaðarerindi Jesú Krists. …
Ég kalla til [fólks] af öllum kynslóðum: ‚Minnist eiginkonu Lots‘ [Lúkas 17:32]. Trúin er fyrir framtíðina. Trúin byggir á fortíðinni, en vil aldrei ílengjast þar. Trúin treystir því að Guð geymi hverju okkar dásamlega hluti og að Kristur sé sannlega ‚æðsti prestur hinna komandi gæða‘ (Hebreabréfið 9:11)“ („The Best Is Yet to Be,“ Ensign, jan. 2010, 24, 26–27).
Abraham og Ísak, eftir Harold Copping
1. Mósebók 22:1–19
Fúsleiki Abrahams til að fórna Ísak er í líkingu við Guð og son hans.
Þótt við þekkjum ekki allar ástæður þess að Guð bauð Abraham að færa Ísak fram sem fórn, við vitum þó að það var prófraun trúar hans á Guð. Við vitum líka að hún var „í líkingu við Guð og hans eingetna son“ (Jakob 4:5). Þegar þið lesið 1. Mósebók 22:1–19, gætuð þið gætt að líkindum á milli fórnar Abrahams á Ísak og fórnar föðurins á syni hans, Jesú Kristi. Íhugið að skrá það sem þið finnið í töflu eins og þessa:
|
Abraham og Ísak |
Himneskur faðir og Jesús Kristur |
|---|---|
Abraham og Ísak Ísak var einkasonur Abrahams og Söru (1. Mósebók 22:2; sjá einnig Hebreabréfið 11:17) | Himneskur faðir og Jesús Kristur Jesús er einkasonur föðurins (Jóhannes 3:16) |
Abraham og Ísak Fórna átti Ísak í stað lambs (1. Mósebók 22:7–9) | Himneskur faðir og Jesús Kristur Jesús Kristur er Guðs lamb (Jóhannes 1:29) |
Hvaða tákn eða samlíkingar við friðþægingarfórn frelsarans finnst ykkur mikilvægust? Íhugið að syngja eða lesa texta sálms sem staðfestir elsku himnesks föður til okkar, svo sem „Hann sendi soninn,“ Barnasöngbókin, 20. Þið gætuð líka skráð tilfinningar ykkar til himnesks föður og Jesú Krists og fórna þeirra fyrir ykkur.
Ef þið viljið læra meira um fórn frelsara okkar, íhugið þá að lesa boðskap Jeffreys R. Holland forseta, „Sjá, Guðslambið“ (aðalráðstefna, apríl 2019). Af hverju er lamb svo áhrifamikið tákn um son Guðs? Hvað kenndi Holland forseti sem eykur lotningu ykkar fyrir gjöf himnesks föður?
Sjá einnig „Akedah (The Binding)“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
Akedah (The Binding)
Kennið á sjónrænan hátt. Til að auka fjölbreytni í kennslu og námi, gætuð þið notað eina eða fleiri myndir í þessum lexíudrögum þegar þið lærið frásagnirnar í 1. Mósebók 18–23. Þið og fjölskylda ykkar eða námsbekkur gætuð t.d. skráð það sem finna má á myndunum af Abraham og Ísak. Ræðið hvers vegna þessi atriði eru mikilvæg fyrir söguna og finnið þau atriði í ritningunum. Hvernig draga þau fram hina táknrænu frásögn um fórn sonar Guðs?
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
1. Mósebók 17:15–21; 18:14; 21:1–7
Ég get treyst Guði til að standa við loforð sín.
-
Til að læra um traust Abrahams og Söru á loforð Guðs, gætuð þið og börn ykkar rætt um það þegar þau hafa þurft að bíða eftir einhverju sem þeim virkilega langaði í. Þið gætuð síðan skoðað myndina af Söru og Ísak fremst í þessum lexíudrögum og rætt loforðið sem Guð gaf henni og Abraham (sjá einnig „Abraham og Sara,“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 28–31). Hjálpið börnum ykkar að hugsa um það sem Guð hefur lofað okkur, ef við erum trúföst. Hvetjið þau til að sýna þolinmæði og treysta því að Guð efni loforð sín.
2:20Abraham and Sarah
-
Til að hjálpa börnum ykkar að læra hinn mikilvæga sannleika í 1. Mósebók 18:14, gætuð þið skrifað hvert orð úr fyrstu setningu þess vers á aðskilin blöð. Blandið síðan blöðunum saman og bjóðið börnum ykkar að setja orðin í rétta röð. Þið og börn ykkar gætuð síðan lesið 1. Mósebók 17:15–21; 21:1–7 til að finna dæmi um eitthvað sem Drottinn gerði sem virtist ómögulegt. Miðlið börnunum trú ykkar á að Drottinn muni uppfylla loforð sín, jafnvel þótt þau virðist ómöguleg eða taki langan tíma.
1. Mósebók 19:15–26
Ég get flúið ranglæti.
-
Biðjið börn ykkar að segja frá aðstæðum þar sem einhver gæti boðið þeim að gera eitthvað sem þau vita að er ekki rétt. Hvernig myndum við „flýja“ þessar aðstæður? Gerið samantekt á 1. Mósebók 19:15–26 með því að útskýra að fjölskylda Lots hafi búið í mjög ranglátri borg og að englar hafi boðið þeim að fara. Þegar þið og börn ykkar lesið saman vers 15–17, 26, spyrjið þau þá hvaða þýðingu það gæti haft fyrir okkur í dag að „forða“ ykkur frá hinu illa og „líta ekki um öxl“ (vers 17).
Sódóma, eftir Julius Schnorr von Carolsfeld
1. Mósebók 22:1–14
Abraham hlýddi Drottni.
-
Að nota myndir af Abraham og Ísak og af krossfestingunni (sjá Trúarmyndabók, nr. 9, 57) getur hjálpað börnum ykkar að gera samanburð á sögunni í 1. Mósebók 22 og fórn frelsarans (sjá Matteus 27:26–37). Hvað getum við lært um himneskan föður og Jesú Krist af frásögnunum um Abraham og Ísak og krossfestinguna? (Sjá einnig „Abraham og Ísak,“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 34–37.)
2:0Abraham and Isaac
-
Getið þið hugsað um einfaldan leik til að leika við börn ykkar sem krefst þess að þau fylgi leiðbeiningum? Ef til vill gætu leiðbeiningarnar vísað til falinnar myndar af frelsaranum. Leikurinn gæti hvatt til umræðna um það sem himneskur faðir hefur boðið okkur að gera, svo við getum aftur lifað með honum og Jesú Kristi. Íhugið að syngja söng eins og „Boðorðin haldið“ (Barnasöngbókin, 68). Verkefnasíða þessarar viku gæti líka orðið að gagni.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.