Kom, fylg mér
16.–22. febrúar. „Verða betri fylgjandi réttlætisins“: 1. Mósebók 12–17; Abraham 1–2


„16.–22. febrúar. ,Verða betri fylgjandi réttlætisins‘: 1. Mósebók 12–17; Abraham 1–2,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„16.–22. febrúar. ,Verða betri fylgjandi réttlætisins‘,“ Kom, fylg mér: 2026

Melkísedek leggur hendur á höfuð Abrams til að blessa hann

Melkísedek blessar Abram, eftir Walter Rane (hluti af mynd)

16.–22. febrúar: „Verða betri fylgjandi réttlætisins“

1. Mósebók 12–17; Abraham 1–2

Abraham hefur, vegna sáttmálans sem Guð gerði við hann, verið nefndur „faðir hinna staðföstu“ (Kenning og sáttmálar 138:41) og „vinur Guðs“ (Jakobsbréfið 2:23). Milljónir á okkar tíma heiðra hann sem forföður í beinni línu, aðrir hafa verið ættleiddir í fjölskyldu hans með því að snúast til trúar á fagnaðarerindi Jesú Krists. Abraham sjálfur kom þó úr erfiðri fjölskyldu – faðir hans, sem hafði yfirgefið sanna tilbeiðslu Guðs, reyndi að koma því til leiðar að Abraham yrði fórnað til falskra guða. Þrátt fyrir þetta þráði Abraham að „verða betri fylgjandi réttlætisins“ (Abraham 1:2) og frásögnin af lífi hans sýnir að Guð virti þrá hans. Líf Abrahams stendur sem vitnisburður um að litlu skiptir hver ættarsaga einstaklingsins er, framtíðin getur ætíð verið full vonar.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Abraham 1:1–19

Guð mun blessa okkur fyrir trú okkar og réttlátar þrár.

„Við verðum öll fyrir áhrifum af fjölskyldu okkar [og] menningu,“ kenndi öldungur Neil L. Andersen, „en samt trúi ég að innra með okkur sé staður sem við stjórnum og sköpum á einstakan hátt og hvert fyrir sig. … Að lokum munu okkar innri þrár fá að lifna við og þær sjást í vali okkar og verkum“ („Educate Your Desires, Elder Andersen Counsels,“ ChurchofJesusChrist.org). Íhugið hvernig Abraham 1:1–19 sýnir það sem öldungur Andersen kenndi. Spurningar sem þessar gætu hjálpað:

  • Hvað þráði Abraham? Hvernig voru þrár hans augljósar í verkum hans? Hvernig uppfyllti Guð þrár hans?

  • Hverjar eru þrár ykkar? Hvernig eru þær augljósar í verkum ykkar? Hvernig styður Guð ykkur?

  • Hver er boðskapur þessara versa fyrir þau sem eiga fjölskyldumeðlimi sem þrá ekki réttlætið?

Ein sterkasta þrá Abrahams og Söru – að eignast barn – uppfylltist ekki í mörg ár (sjá 1. Mósebók 15:1–6). Hvað lærið þið af Hebreabréfinu 11:8–13 um það hvernig Abraham og Sara tókust á við þessa raun? Hvernig hjálpar frelsarinn ykkur að „fagna“ loforðum sínum, jafnvel þótt þau séu „álengdar“?

Sjá einnig „Deliveranve of Abraham“ (myndband), Gospel Library.

1:38

Deliverance of Abraham

1. Mósebók 12:1–3; 13:15–16; 15:1–6; 17:1–8, 15–22; Abraham 2:6–11

trúarskólatákn
Guð vill að ég geri og haldi sáttmála við sig.

Hvers vegna er mikilvægt fyrir ykkur að vita um sáttmálann sem Guð gerði við Abraham? Vegna þess að Guð vill gera svipaðan sáttmála við ykkur. Hann lofaði því að sáttmálinn skyldi gilda áfram hjá afkomendum Abrahams, „niðjum“ hans, og „að allir þeir, sem [meðtækju] þetta fagnaðarerindi, [skyldu] … teljast niðjar [hans]“ (sjá Abraham 2:10–11). Með öðrum orðum, sáttmálinn er áfram í ykkur – þegar þið látið skírast og í ríkari mæli þegar þið gerið sáttmála í musterinu (sjá Galatabréfið 3:26–29; Kenning og sáttmálar 132:30–32).

Af þeirri ástæðu gætuð þið viljað læra Abraham 2:6–11 og skrá nákvæmlega hverju Guð lofaði Abraham og Söru (sjá einnig 1. Mósebók 12:1–3; 13:15–16; 15:1–6; 17:1–8, 15–22). Hvernig gætu þessar blessanir átt við um ykkur?

Sum þessara loforða eiga sér eilífar hliðstæður. Hvernig uppfyllast fyrirheit eins og erfðaland eða fjölmennir afkomendur að eilífu? (sjá Kenning og sáttmálar 131:1–4; 132:20–24, 28–32).

Auk þess að lofa blessunum, bauð Guð Abraham: „Blessun skalt þú vera“ (1. Mósebók 12:2; skáletrað hér). Hverja teljið þið vera merkingu þess? Hvernig munuð þið verða blessun? (sjá Abraham 2:11).

Til að kenna um sáttmála, talaði öldungur Dale G. Renlund um flóðbylgjur í Amasonfljótinu og Emily Belle Freeman forseti talaði um að ganga grýttan stíg með brotinn ökkla (sjá „Aðgangur að krafti Guðs fyrir tilstuðlan sáttmála,“ aðalráðstefna, apríl 2023; „Ganga í sáttmálssambandi við Krist,“ aðalráðstefna, október 2023). Leitaðu í öðrum eða báðum ræðunum að setningum sem hjálpa við að svara spurningunni: „Hvers vegna vill Guð að ég geri sáttmála við sig?“

Bjóðið fólki að kenna hvert öðru. Ef þið eruð að kenna fjölskyldu ykkar eða kirkjubekk um sáttmála, íhugið þá að láta hvern einstakling fá hluta af boðskap öldungs Renlunds eða Freeman forseta til að læra. Þau gætu síðan miðlað hinum í fjölskyldunni eða bekknum því sem þau lærðu. Það gerir fólki kleift að bera vitni og læra hvert af öðru og það býður andanum heim. (Sjá Kenna að hætti frelsarans26.)

Sjá einnig Topics and Questions, „Abrahamic Covenant,“ Gospel Library; „Ábendingar til að hafa hugfastar: Sáttmálinn,“ í þessu riti.

Abraham og Sara

Abrahamssáttmálinn, eftir Dilleen Marsh (hluti af mynd)

1. Mósebók 14:18–19; Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 14:25–40

„Melkísedek var trúaður maður.“

Ímyndið ykkur að þið væruð að kynna Melkísedek fyrir einhverjum sem ekki þekkti hann. Hvað mynduð þið segja? Gætið að hugmyndum í Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 14:26–27, 33–38 (í Þýðing Josephs Smith – Viðauki); Alma 13:13–19; Kenning og sáttmálar 107:1–4. Hvaða kristilega eiginleika finnið þið í þessum lýsingum á Melkísedek? Hvernig hefur nám ykkar á lífi Melkísedeks áhrif á viðhorf ykkar til Melkísedeksprestdæmisins?

1. Mósebók 14:18–24; Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 14:36–40

Abraham greiddi tíund.

Hvað lærið þið um viðhorf Abrahams til ríkidæmis í 1. Mósebók 14:18–24 og Joseph Smith Þýðing á 1. Mósebók 14:36–40 (í Þýðing Josephs Smith – Viðauki)? Takið t.d. eftir svari hans til konungs Sódómu í 1. Mósebók 14:23. Hvernig hefur hlýðni við tíundarlögmálið haft áhrif á viðhorf ykkar til peninga?

1. Mósebók 16

Guð heyrir í mér.

Þegar þið lesið 1. Mósebók 16, gætuð þið hugsað um tímabil þar sem ykkur fannst þið fá ósanngjarna meðferð, eins og Hagar gerði. Athugið að „Ísmael“ þýðir „Guð heyrir“. Hvernig hefur Guð sýnt ykkur að hann heyrir í ykkur?

Sjá einnig „Bænamál,“ Sálmar, nr. 45.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta 01

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Abraham 1:18; 2:8

Jesús Kristur mun leiða mig sér við hönd.

  • Þegar þið og börn ykkar lesið Abraham 1:18 og 2:8, gætuð þið boðið þeim að hlusta eftir þeim líkamshluta sem nefndur er í báðum versunum. Ef til vill gætuð þið farið í leik þar sem barn lokar augunum og þið leiðið barnið eitthvert við hönd. Þið gætuð síðan rætt hvernig það er að hafa Jesú Krist sér við hönd eða sér til verndar.

1. Mósebók 13:5–12

Ég get verið friðflytjandi.

  • Börn ykkar gætu haft gaman af því að leika söguna í 1. Mósebók 13:5–12 og látast vera Abraham, Lot og fjárhirðarnir. Hvernig getum við fylgt því fordæmi Abrahams að vera friðflytjendur með fjölskyldu okkar og vinum? Reynið að leika svörin þeirra.

Abraham talar við Lot

Val Lots, eftir William Fredericks © Providence Collection/með leyfi frá goodsalt.com

1. Mósebók 13:16; 15:1–6; 17:1–8; Abraham 2:9–11

Guð vill að ég geri sáttmála við sig.

  • Íhugið að sýna börnum ykkar ílát fyllt sandi, stjörnurnar á næturhimninum eða myndina aftast í þessum lexíudrögum. Þetta gæti hjálpað þeim að skilja loforð Guðs í 1. Mósebók 13:16; 15:1–6. Ræðið um það hvernig þið hafið lært að treysta loforðum Guðs, jafnvel þegar þau virtust ómöguleg.

  • Til að kenna börnum ykkar um sáttmála, biðjið þau þá að segja ykkur frá því þegar þau gáfu loforð eða einhver gaf þeim loforð. Ef það er gagnlegt, skuluð þið miðla einhverjum eigin dæmum – þar með talið sáttmálum sem þið hafið gert við Guð í skírn eða í musterinu. Hvernig hafa sáttmálar ykkar haft áhrif á samband ykkar við Guð? Veljið nokkur orðtök í 1. Mósebók 15:1–6; 17:1–8; Abraham 2:9–11 til að miðla nokkrum þeirra blessana sem Guð lofaði Abraham og Söru.

  • Til að hjálpa börnum ykkar að búa sig undir að gera sáttmála við Guð þegar þau eru skírð, gætuð þið notað nokkrar hugmyndanna um verkefnið sem lagðar eru til í viðauka A eða viðauka B.

Abraham 1:12–17; 1. Mósebók 16:7–11

Guð heyrir í mér.

  • Þegar líf Abrahams var í hættu, ákallaði hann Guð. Þegar Hagar var ein í óbyggðunum, komst hún að því að Guð heyrði til hennar. Íhugið að miðla börnum ykkar þessum tveimur sögum: „Abraham og Sara“ og „Hagar“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 28–31, 32–33. Hvað lærum við um Guð af þessum sögum? Þið gætuð síðan miðlað hvert öðru upplifunum þar sem ykkur fannst Guð heyra til ykkar. Söngur eins og „Bæn barns“ (Barnasöngbókin, 6) gæti undirstrikað þessa reglu.

2:20

Abraham and Sarah

1:23

Hagar

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Sara horfir upp til stjarnanna

Fyrirheit Guðs ígrunduð, eftir Courtney Matz

Verkefnasíða Barnafélagsins: Guð vill að ég geri sáttmála við sig