Kom, fylg mér
2.–8. febrúar. „Drottinn nefndi þjóð sína Síon“: HDP Móse 7


„2.–8. febrúar. ‚Drottinn nefndi þjóð sína Síon‘: HDP Móse 7,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„2.–8. febrúar. ‚Drottinn nefndi þjóð sína Síon‘,“ Kom, fylg mér: 2026

Enok fær sýn um Jesú Krist

Enok sér hádegisbaug tímans, eftir Jennifer Paget

2.–8. febrúar: „Drottinn nefndi þjóð sína Síon“

HDP Móse 7

Í gegnum söguna hefur fólk reynt að afreka það sem Enok og fólki hans tókst – að byggja upp fullkomið samfélag, án fátæktar eða ofbeldis. Sem fólk Guðs, deilum við þessari löngun. Þetta köllum við að byggja upp Síon og það felur í sér – að viðbættu því að annast fátæka og stuðla að friði – að gera sáttmála, dvelja saman í réttlæti, verða eitt með hvert öðru og með Jesú Kristi, sem er „konungur Síonar“ (HDP Móse 7:53). Ef heimurinn, samfélag ykkar eða fjölskylda ykkar er ekki eins og þið viljið að þau séu, er gagnlegt að spyrja: Hvernig fór Enok og fólk hans að þessu? Hvernig varð „hugur þess og hjarta eitt“ (HDP Móse 7:18), þrátt fyrir illskuna umhverfis? Meðal þeirra mörgu atriða sem HDP Móse 7 veitir okkur um Síon, er þetta einkar verðmætt fyrir síðari daga heilaga: Síon er ekki aðeins borg – hún er ástand hugans og andans. Síon er, eins og Drottinn hefur kennt, „hinir hjartahreinu“ (Kenning og sáttmálar 97:21). Kannski að besta leiðin til að byggja upp Síon sé því sú, að byrja á eigin hjörtum og heimilum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju

HDP Móse 7:16–21, 27, 53, 62–69

trúarskólatákn
Ég get hjálpað við uppbyggingu Síonar.

Þegar spámaðurinn Joseph Smith lærði fyrst um Enok og heilagleika borgar hans, fann hann fyrir andagift. Hann „vissi að sá dagur var upp runninn, er Drottinn myndi aftur stofna Síon á jörðu“ (Heilagir, 1:108–9) og hann hóf hið ævilanga verkefni að byggja upp Síon. Lestur HDP Móse 7 getur innblásið ykkur til að halda því verki áfram á okkar tíma.

Þið gætuð byrjað á því að kanna spurningarnar „hvað er Síon?“ og „hvernig sker hún sig úr í heiminum?“ Íhugið að skrá svörin sem berast ykkur við lestur HDP Móse 7, einkum versa 16–21, 27, 53, 62–69.

Svör ykkar við þessum spurningum gætu gert það ljóst að við eigum enn mikið verk fyrir höndum við uppbyggingu Síonar. Hvernig gerum við það þá? Það gæti verið gagnlegt að hugsa um tilvik þar sem ykkur hefur fundist þið vera „eitt í hjarta og huga“ með einhverjum (HDP Móse 7:18). Ef til vill var það með deild, fjölskyldu eða í vinnu- eða skólahópi. Hvað gerði fólkið til að stuðla að réttlátri einingu?

Hér eru nokkur úrræði til viðbótar sem þið gætuð kannað til að finna hugmyndir og innblástur. Veljið eitt eða fleiri til að læra og skrifið síðan það sem ykkur finnst þið innblásin að gera til að byggja upp Síon:

Vinir hughreysta hvert annað í hóptíma

Við ættum að sækjast eftir því að vera „eitt í huga og hjarta“ (HDP Móse 7:18).

HDP Móse 7:53

Jesús Kristur er „konungur Síonar“.

Hvað merkir það fyrir þig að Jesús Kristur er konungur okkar? Gætið að öðrum titlum Jesú Krists í þessu versi. Hvað kenna þeir ykkur um hann? Hverja teljið þið vera merkingu orðanna: „Inn um hliðið og [feta] upp með [honum]“?

Sjá einnig „Kom, kóngur konunganna,“ Sálmar, nr 15.

HDP Móse 7:28–69

Guð grætur – og gleðst – yfir börnum sínum.

Sumt fólk lítur á Guð sem fjarlæga veru sem verður ekki fyrir tilfinningalegum áhrifum vegna neins sem fyrir okkur kemur. Enok hlaut aðra sýn á Guð í sýninni sem skráð er í HDP Móse 7. Hvað lærði hann um Guð – og hvað lærið þið – í versum 28–40? Af hverju haldið þið að Enok hafi undrast yfir að sjá Guð gráta? Af hverju er ykkur mikilvægt að vita að hann gerir það?

Þegar sýnin hélt áfram grét Enok líka. Guð miðlaði honum líka ástæðum til að fagna. Gætið að þeim í HDP Móse 7:41–69. Hvað lærið þið af sýn Enoks sem getur hjálpað ykkur að „létta á hjarta ykkar og vera glöð“ þótt tilveran geti verið „beisk“ (vers 44)?

Sjá einnig Jeffrey R. Holland, „Göfgi Guðs,“ aðalráðstefna, október 2003.

HDP Móse 7:59–67

Jesús Kristur mun koma aftur á efstu dögum.

Sýn Enoks, einkum sú sem skráð er í HDP Móse 7:59–67, er einn fyrsti spádómur sögunnar um síðari komu frelsarans. Hvað vekur áhuga ykkar varðandi það hvernig þessi vers lýsa síðustu dögum? Íhugið t.d. hvernig ykkur finnst spádómarnir í versi 62 vera að uppfyllast. Hvað kenna þessi orðtök ykkur um verk Guðs á síðari dögum?

Sjá einnig Henry B. Eyring, „Systur í Síon,“ aðalráðstefna, október 2020.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta 01

Hugmyndir fyrir kennslu barna

HDP Móse 7:18–21, 62–63, 68–69

Guðs vill að við séum „eitt í huga og hjarta“.

  • Til að hjálpa börnum ykkar að læra um Enok og Síon, gætuð þið notað „Spámaðurinn Enok“ í Sögur úr Gamla testamentinu (19–21) eða annað versið í „Fylgið spámanninum“ (Barnasöngbókin, 58). Þið gætuð síðan beðið börn ykkar að hjálpa ykkur að endursegja söguna með eigin orðum. Myndirnar af Enok í þessum lexíudrögum gætu verið gagnlegar.

  • Hér er ein leið til að hjálpa börnum ykkar að skilja merkingu orðanna „hugur hennar og hjarta voru eitt“ (HDP Móse 7:18): Búið til pappírshjarta og klippið það í hluta, svo hvert barn fái einn. Látið þau skrifa nafn sitt á hlutann sinn og vinnið saman að því að setja hjartað saman. Þegar þau gera það, gætuð þið rætt það sem þið elskið varðandi hvert barn.

móðir faðmar dóttur
  • Hjálpið börnum ykkar að telja hversu oft orðið „Síon“ kemur fyrir í HDP Móse 7:18–21, 62–63, 68–69. Í hvert sinn sem þau finna orðið, hjálpið þeim þá að skilja hvað versið segir um Síon (sjá einnig Leiðarvísir að ritningunum, „Síon,“ Gospel Library). Hvernig getum við verið líkari fólkinu sem lýst er í þessum versum?

Hvetjið til persónulegs ritningarnáms. Eitt það besta sem þið getið gert til að hjálpa öðrum að byggja upp varanlega trú á Jesú Krist, hvort sem þið kennið í námsbekk á sunnudögum eða fjölskyldu ykkar heima, er að hjálpa þeim að koma á þeim vana að leita persónulegrar reynslu gegnum ritningarnar. Miðlið upplifunum ykkar í ritningunum og hvetjið fjölskyldu ykkar eða námsbekk til að miðla eigin upplifunum. Þegar við heyrum hvernig ritningarlestur blessar aðra, vaknar oft hvatning hjá okkur sjálfum til að leita þessara sömu blessana frá Drottni. (Sjá Kenna að hætti frelsarans25.)

HDP Móse 7:32–33

Himneskur faðir vill að ég velji að fylgja honum.

  • Til að kynna HDP Móse 7:32–33 fyrir börnum ykkar, gætuð þið rætt við þau um ákvörðun sem þau þurftu nýlega að taka. Þið gætuð síðan lesið versin saman til að komast að því hvað himneskur faðir vill að við veljum. Hvaða ákvarðanir getum við tekið til að sýna að við veljum hann? Börn ykkar gætu ef til vill skipst á um að leika einn þessara valkosta, á meðan hinir geta sér til um hvað athöfnin táknar.

HDP Móse 7:59–67

Jesús mun koma aftur til jarðar.

  • Í HDP Móse 7:59 spyr Enok Drottin einnar spurningar. Bjóðið börnum ykkar að finna hana og biðjið þau síðan að finna svarið í versi 60. Þið gætuð líka rætt við þau um það þegar þau væntu þess að einhver kæmi heim. Spyrjið þau hvernig þeim leið og hvað þau gerðu til að undirbúa sig. Hvernig getum við búið okkur undir endurkomu Jesú?

  • Íhugið að sýna myndir af tilvikum þar sem frelsarinn birtist fólki (svo sem Trúarmyndabók, nr. 60, 82, 83 og 84). Hvað er fólkið að gera á myndunum? Hvernig gæti fólkinu hafa liðið þegar það hitti Jesú? Þið gætuð líka sungið lag um síðari komu frelsarans, t.d. „Þegar hann kemur aftur“ (Barnasöngbókin, 46) og spurt börnin hvernig þau telji að það verði þegar Jesús kemur aftur. Fáið börnin til að segja frá því hvað þeim finnst um að sjá Jesú þegar hann kemur aftur.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Enok og fólk í borginni Síon numið upp

Borg Síonar uppnumin, eftir Del Parson

Verkefnasíða Barnafélagsins: Guð vill að við elskum hvert annað