„26. janúar–1. febrúar ‚Fræðið börn ykkar óspart um þetta‘: 1. Mósebók 5; HDP Móse 6,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„26. janúar–1. febrúar ‚Fræðið börn ykkar óspart um þetta‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Betra en paradís, eftir Kendal Ray Johnson
26. janúar–1. febrúar: „Fræðið börn ykkar óspart um þetta“
1. Mósebók 5; HDP Móse 6
Stærsti hluti 1. Mósebókar 5 er ættarskrá frá Adam og Evu til Nóa. Við lesum þar mikið af nöfnum en lærum ekki mikið um þau. Við lesum síðan þessa áhugaverðu en óútskýrðu setningu: „Enok gekk með Guði, þá hvarf hann því að Guð tók hann“ (1. Mósebók 5:24). Vissulega er saga að baki þessu versi! En án frekari útskýringa heldur ættarskráin áfram.
Til allrar hamingju, þá afhjúpar HDP Móse 6 smáatriðin í sögu Enoks – og það er sannlega saga að segja frá. Við lærum um auðmýkt Enoks, óöryggi hans, hæfileikana sem Guð sá í honum og hið mikla verk sem hann vann sem spámaður Guðs. Við fáum líka skýrari mynd af því hvernig niðjar Adams og Evu þróuðust í gegnum kynslóðir. Við lesum um „mikil ráð“ Satans, en líka um foreldra sem kenndu börnum „vegu Guðs“ (HDP Móse 6:15, 21). Einkar dýrmætt er það sem við lærum um kenninguna sem þessir foreldrar kenndu: trú, iðrun, skírn og meðtaka heilags anda (sjá HDP Móse 6:50–52). Sú kenning, eins og prestdæmið sem fylgir henni, „var í upphafi [og] skal einnig verða við endi veraldar“ (HDP Móse 6:7).
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Syndin takmarkar getu mína til að sjá, skynja og heyra það sem Guðs er.
Hvað lærið þið við lestur HDP Móse 6:26–36 um áhrif syndar? Hvernig hafið þið greint þessi áhrif? Hvaða eiginleika hafði Enok sem hjálpuðu honum að sigrast á þessum áhrifum? Hvernig blessaði Guð hann í kjölfarið?
Guð kallar mig til að vinna verk sitt, þrátt fyrir misbresti mína.
Ef ykkur hefur einhvern tíma fundist það yfirþyrmandi sem Drottinn hefur kallað ykkur til að gera, þá eruð þið ekki ein um það. Meira að segja Enok upplifði það þegar Drottinn kallaði hann sem spámann. Þegar þið lesið HDP Móse 6:26–36, gætið þá að ástæðu þess að það þyrmdi yfir Enok og hvað Drottinn sagði til að telja í hann kjark.
Í versum 37–47 gætuð þið leitað að því hvernig Drottinn veitti Enok styrk og efldi hann til að gera verk sitt (sjá einnig HDP Móse 7:13). Þið gætuð borið upplifun Enoks saman við aðra spámenn sem fundu fyrir vanmætti, eins og Móse (sjá 2. Mósebók 4:10–16), Jeremía (sjá Jeremía 1:4–10), Nefí (sjá 2. Nefí 33:1–4) og Moróní (sjá Eter 12:23–29). Hvað finnst ykkur Guð vilji að þið lærið í þessum ritningargreinum um verkið sem hann hefur falið ykkur?
Sjáanda hefur Drottinn upp vakið (HDP Móse 6:36), eftir Evu Timothy
Margir nútíma spámenn og postular hafa tjáð álíka tilfinningar og Enok gerði, er þeir hafa lýst því hvernig þeim leið við köllun þeirra. Sjá t.d. vitnisburð öldungs Ulisses Soares í „Spámenn tala með krafti heilags anda“ (aðalráðstefna, apríl 2018).
Hvað getið þið lært af þessum spámönnum og postulum um vanmáttartilfinningar ykkar? Hvenær hafið þið fundið frelsarann hjálpa ykkur þegar hann bauð ykkur að gera erfiða hluti? Íhugið að skrifa niður nokkrar atburði í framtíðinni þar sem þið munið þurfa að reiða ykkur á hjálp frelsarans. Hvernig getið þið tekist á við þessa atburði með trú á Jesú Krist?
Sjá einnig David A. Bednar, „Þú munt vera í mér og ég í þér. Gakk þess vegna með mér,“ aðalráðstefna, apríl 2023; „Ég fer hvert sem vilt að ég fari,“ Sálmar, nr. 104.
Fagnaðarerindi Jesú Krists hefur verið kennt allt frá upphafi.
Þar sem við höfum Bók Móse, vitum við að Guð hefur kennt börnum sínum alveg frá upphafi hvernig finna má endurlausn. Leitið að því sem við þurfum að vita og gera til að endurleysast, við lestur HDP Móse 6:48–68. Gætið að spurningu Adams í versi 53. Hafið þið einhvern tíma velt henni fyrir ykkur? Hvað lærið þið af svari Drottins í versum 53–65? Þið gætuð hugsað um þessi vers sem boðskap Drottins við skírnarathöfn Adams. Hvað lærið þið um skírnina í boðskap hans? Af hverju haldið þið að hann hafi líkt skírn við að „endurfæðast“? (vers 59). Hvað getum við gert til að halda áfram að „endurfæðast“ ævina á enda?
Leitið að táknum. Hlutir eða atburðir í ritningunum standa oft fyrir eða tákna andlegan sannleika, einkum sannleika um frelsarann (sjá Kenna að hætti frelsarans, 7). Þessi tákn geta aukið skilning ykkar á honum og kenningu hans. Hvað lærið þið t.d. af táknunum um hjörtun og eyrun í HDP Móse 6:27, augun og leirinn í HDP Móse 6:35 eða vatnið í HDP Móse 6:59–60?
„Fræðið börn ykkar óspart um þetta.“
Eftir að hafa kennt Adam sannleika fagnaðarerindis Jesú Krists í HDP Móse 6:51–63, bauð Drottinn Adam að kenna þetta kynslóðum framtíðar. Íhugið að búa til lista yfir þennan sannleika. (Gagnlegt gæti verið að skipta versunum í litla hópa, t.d. vers 51–52, 53–57, 58–60, 61–63). Af hverju er þessi sannleikur mikilvægur hinni upprennandi kynslóð okkar tíma? Hvað annað getum við lært af boði Drottins til foreldra í Mósía 4:14–15 og Kenningu og sáttmálum 68:25–28; 93:40–50?
Að lesa um „minningabók“ sem fjölskylda Adams og Evu hélt, gæti uppörvað fjölskyldur ykkar til að halda eigin minningabók. Hvað finnst ykkur að Drottinn vilji að þið hafið þar með? Íhugið að vista upplýsingar úr minningabók ykkar á FamilySearch.org.
Sjá einnig Dieter F. Uchtdorf, „Jesús Kristur er styrkur foreldra,“ aðalráðstefna, apríl 2023; „Parenting: Touching the Hearts of Our Youth,“ „But Why?“ (myndbönd), Gospel Library.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Guð getur hjálpað mér að gera erfiða hluti.
-
Þegar Enok var kallaður til að prédika fagnaðarerindið, hafði hann áhyggjur af því að honum myndi mistakast. En Guð hjálpaði honum. Lesið þessa frásögn saman í HDP Móse 6:26–34 (sjá einnig „Spámaðurinn Enok“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 19–21). Af hverju fannst Enok hann ekki geta prédikað fagnaðarerindið? (sjá HDP Móse 6:31). Hvernig hjálpaði Guð Enok? (sjá HDP Móse 6:32–34; 7:13).
-
Börn ykkar gætu notið þess að miðla eða leika önnur dæmi um það hvernig Guð hjálpaði fólki að gera erfiða hluti – t.d. Nóa, Davíð, Ammon eða Lamanítann Samúel (sjá Trúarmyndabók, nr. 7, 19, 78, 81). Þið gætuð líka miðlað eigin reynslu og látið börn ykkar tala um það hvernig Guð hjálpar þeim að gera erfiða hluti.
Trú á Krist, iðrun, skírn og meðtaka heilags anda býr okkur undir að snúa aftur til Guðs.
-
Guð kenndi Adam það sem við þurfum að gera til að snúa aftur til hans – hafa trú á Jesú Krist, iðrast, láta skírast og meðtaka gjöf heilags anda. Hjálpið börnum ykkar að finna þessar reglur í HDP Móse 6:52, 57. Þið gætuð síðan hjálpað þeim að skrifa stutta ræðu um eina regluna. Hver ræða gæti innihaldið ritningarvers úr HDP Móse 6, upplifun og vitnisburð. Látið þau miðla hvert öðru ræðum sínum.
-
Þið gætuð líka sýnt myndir sem tákna frumreglur fagnaðarerindisins (sjá fjórða trúaratriðið). Setjið þær í röð sem leiðir þau að mynd af Jesú Kristi. Þegar þið lesið HDP Móse 6:52, gætu börn ykkar staðið við hlið réttrar myndar þegar þau heyra orðin sem myndin táknar.
-
Börn ykkar gætu notið þess að syngja söngva sem kenna reglurnar í HDP Móse 6:52, t.d. „Trú,“ „Þegar ég skírist“ og „Heilagur andi“ (Barnasöngbókin, 50, 53, 56). Hjálpið þeim að finna þessar reglur í HDP Móse 6:52.
Himneskur faðir vill að foreldrar kenni börnum sínum.
-
Til að hvetja börn ykkar til að styðja ykkur sem foreldra í hlutverki trúarkennara, íhugið þá að biðja barn að lesa HDP Móse 6:58 og bera kennsl á boðorðið sem Guð gaf foreldrum. Þið gætuð síðan sýnt mynd af Adam og Evu við að kenna börnum sínum (eins og þá sem er aftast í þessum lexíudrögum) og látið börn ykkar ræða um það sem þau sjá á myndinni. Börn ykkar gætu teiknað myndir af fjölskyldu sinni lesandi ritningarnar saman, biðjandi saman eða við leik saman.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.