Trú
sannfærandi
1Trú er vissan, að sólin rísi
sérhvern nýjan dag.
Trú er vissan, að Drottinn annist
allan bæna hag.
Trúin vex sem frækorn smátt
í frjóan jarð veg sett.
Trúin er aflgjafi innra manns,
sem ætíð breytir rétt.
2Trú er vissan, ég var hjá Guði
fyrr en fæddist hér,
trúin, að ég fer heim til hans,
þá hérvist lokið er.
Trú er traust á góðan Guð
og ljúfan lausnarann.
Trúin styrkist, ef lifi ég
í ljúfri sátt við hann.
Texti: Beatrice Goff Jackson, f. 1943. © 1978 IRI
Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson
Lag: Michael Finlinson Moody, f. 1941. © 1978 IRI