Ég þakka þér. faðir
Látlaust
1Ég þakka þér, faðir, á himninum hátt,
þinn hjálpandi, góðsama kærleikans mátt,
mér ástkæra foreldra’ og heimilið hér,
og hlýju, sem vinanna góðvildin ber.
2Mér hjálpa’ að sem gott barn ég haldi minn veg,
og hlýðið við pabba og mömmu sé ég.
Í frelsarans nafni ég bón mína ber,
sem barnið þitt njóti ég verndar hjá þér.
Texti: Höf. ókunnur
Íslensk þýðing: MarÍus Ólafsson
Lag: George Careless, 1839–1932