Tónlist
Ungur, albúinn


Ungur, albúinn

Með ákafa

1Þó að ungur teljist enn,

verð ég senn, sem vaxnir menn.

Ef undirbý allt mitt réttast ráð,

í hugsun, orði og allri dáð,

hæfur telst Guðs helgri prestskapar náð.

Þannig albúinn er til,

öllum mönnum þjóna vil.

Tek mér sannleikans sverð,

gyrður Guðs orði verð,

ungur, albúinn fer mína ferð.

Ungur, albúinn fer mína ferð.

Lag og texti: Daniel Lyman Carter, f. 1955. © 1981 IRI

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

Mormón 1:2, 15

Kenning og sáttmálar 4:5

1. Tímóteusarbréf 4:12