Tónlist
Heyr þú mig, Guð


Heyr þú mig, Guð

Biðjandi

1Heyr þú mig, Guð, er best til þín ég bið,

beindu mér inn á dagsins verkasvið.

Gef, að mín opnist augu, Drottinn minn,

eflist mér trú að nema boðskap þinn.

2Vildi ég hönd þín ljúfust leiddi mig,

leiðsögn að hlýtt ég gæti’ um ævistig,

viljastyrk beitt, já, óttann fælt oss frá,

fundið á hverri stundu þig mér hjá.

Texti: M. E. P.

Íslensk þýðing: Bjarni Valtýr Guðjónsson

Lag: C. Harold Lowden

Kenning og sáttmálar 76:10

Kenning og sáttmálar 112:10