Kom, fylg mér
9.–15. febrúar. „Nói fann náð í augum Drottins“: 1. Mósebók 6–11; HDP Móse 8


„9.–15. febrúar. ‚Nói fann náð í augum Drottins‘: 1. Mósebók 6–11; HDP Móse 8,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„9.–15. febrúar. ‚Nói fann náð í augum Drottins‘,“ Kom, fylg mér: 2026

dýr yfirgefa örkina með Nóa og fjölskyldu hans standandi á steini

Jehóva stendur við loforð, eftir Sam Lawlor

9.–15. febrúar: „Nói fann náð í augum Drottins“

1. Mósebók 6–11; HDP Móse 8

Við sem lifum á síðari dögum höfum sérstaka ástæðu til að veita frásögninni um flóðið athygli. Þegar Jesús Kristur kenndi hvernig við skyldum bíða eftir síðari komu hans, sagði hann: „En eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða við komu mannssonarins“ (Joseph Smith–Matteus 1:41). Til viðbótar gætu orðtök sem lýstu tíma Nóa líkt og „spillt“ og „full … af ranglæti“ alveg eins lýst okkar tíma (1. Mósebók 6:12–13; HDP Móse 8:28). Söguna um Babelsturninn væri líka hægt að heimfæra upp á okkar tíma, með lýsingu á hroka sem leiddi af sér ringulreið og ágreining.

Þessar fornu frásagnir eru ekki aðeins verðmætar til að sýna okkur að ranglæti endurtekur sig í sögulegu samhengi. Mikilvægara er að þær kenna okkur hvað skuli gera í því. „Nói fann náð í augum Drottins“ (HDP Móse 8:27). Fjölskyldur Jareds og bróður hans sneru sér einnig til Drottins og þau voru leidd burt úr ringulreiðinni og ágreiningnum í Babel (sjá Eter 1:33–43). Ef við veltum fyrir okkur hvernig við getum tryggt öryggi fjölskyldna okkar á tíma spillingar og ofbeldis, geta sögur þessara kafla kennt okkur mikið.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

1. Mósebók 6; HDP Móse 8

trúarskólatákn
Það felst andlegt öryggi í því að fylgja spámanni Drottins.

Sjáið þið eitthvað í lýsingunni á tíma Nóa sem virðist svipa til aðstæðna á okkar tíma? Leitið einkum í HDP Móse 8:15–24, 28. Hvaða þemu sjáið þið endurtekin?

Eitt mikilvægt sem þið munið sjá er að Guð kallaði Nóa sem spámann og hann hefur líka kallað spámann á okkar tíma. Íhugið að búa til lista yfir sannleika sem þið lærið um spámenn í HDP Móse 8:13–30. Hvernig er lifandi spámaður okkar eins og Nói? Auðvitað varar spámaður Drottins í dag ekki við flóði eða býður okkur að hjálpa við að byggja örk. Hverju er hann að vara okkur við? Hvað er hann að bjóða okkur að gera? Til að hjálpa ykkur að svara þessum spurningum, gætuð þið lesið kafla í Kenningar forseta kirkjunnar í Gospel Library, einkum hlutann „Boð og fyrirheitnar blessanir“. Þið gætuð kannski valið eina aðvörun og eitt boð sem ykkur virðist einkar mikilvæg.

Öldungur Allen D. Haynie kenndi: „Fullkominn og kærleiksríkur faðir á himnum hefur valið þá skipan að opinbera börnum sínum sannleika með spámanni“ („Lifandi spámaður fyrir síðari daga,“ aðalráðstefna, apríl 2023). Íhugið að læra boðskap öldungs Haynie og leita að ástæðum þess að það að hafa spámann sé tákn um elsku himnesks föður. Hvernig hefur það hjálpað ykkur að finnast þið örugg á síðari dögum að fylgja spámanni Drottins?

Sjá einnig Topics and Questions, „Prophets,“ Gospel Library; „Why Do We Have Prophets?“ (myndband), Gospel Library.

1:37

Why Do We Have Prophets?

1. Mósebók 6:5–13

Flóðið var miskunnarverk Guðs.

Sumir velta fyrir sér þeirri réttvísi Guðs að senda flóðið til að „afmá mennina“ (1. Mósebók 6:7). Öldungur Neal A. Maxwell útskýrði að á tíma hins mikla flóðs, hefði „spillingin náð að tortíma sjálfræðinu upp að því marki að ekki var mögulegt og réttsýnt að senda anda hingað“ (We Will Prove Them Herewith [1982], 58). Þið gætuð líka íhugað hvernig flóðið var miskunnarverk. Hvað finnið þið í 1. Mósebók 6:5–13 sem sýnir hina mildu miskunn Drottins og elsku til fólksins?

1. Mósebók 9:8–17

Tákn og merki hjálpa mér að hafa sáttmála okkar við Drottin hugfasta.

Hvaða hugsanir getur regnboginn vakið, samkvæmt 1. Mósebók 9:8–17? Hverju bætir Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 9:21–25 (í Þýðing Josephs Smith – Viðauki) við skilning ykkar? Þið gætuð líka íhugað að skrá aðra hluti (eins og tákn, hluti eða eitthvað annað) sem Guð hefur gefið ykkur til að minna ykkur á sáttmála ykkar. Hvað kennir þetta ykkur? Hvernig hjálpar þetta ykkur að muna?

Sjá einnig Gerrit W. Gong, „Hafa hann ávallt í huga,“ aðalráðstefna, apríl 2016; „Um Jesú ég hugsa,“ Sálmar, nr. 65.

turn með mönnum sem klifra upp með reipi og stiga

Babelsturninn, eftir David Green

1. Mósebók 11:1–9

Að fylgja Jesú Kristi er eina leiðin til himnesks föður.

Frásögnin af fólkinu í Babel byggjandi turn er athyglisverð andstæða við frásögn Enoks og hans fólks sem byggði Síon, sem þið lærðuð um í síðustu viku. Hvorir um sig voru þessir hópar að reyna að komast til himna en á ólíkan hátt. Hvernig öðlaðist fólk Síonar himininn? (sjá HDP Móse 7:18–19, 53, 62–63, 69). Hvað lærið þið af 1. Mósebók 11:1–9 og Helaman 6:26–28 um fólkið í Babel? Hvað kennir þetta okkur um eigin viðleitni til að snúa aftur til dvalar hjá Guði? Hverju hefur Guð séð okkur fyrir til að hjálpa okkur að „ná til himins“? (1. Mósebók 11:4; sjá einnig Jóhannes 3:16).

Lærið á virkan hátt. Að læra getur falið í sér meira en bara að lesa eða hlusta. Þegar þið t.d. lærið um Babelsturninn, gætuð þið, fjölskylda ykkar eða námsbekkur, skrifað það á blaðræmur sem leiðir okkur burtu frá Guði. Þið gætuð síðan skrifað á aðra blaðræmu það sem leiðir okkur nær Guði. Raðið fyrri blaðræmunum á borðið svo þær myndi turn og þeim síðari svo þær myndi musteri.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta 01

Hugmyndir fyrir kennslu barna

1. Mósebók 6:14–22; 7–8; HDP Móse 8:16–24

Að fylgja spámanni Drottins mun blessa mig og fjölskyldu mína.

  • Flest börn elska söguna um Nóa og örkina. Íhugið að gefa börnum ykkar kost á að miðla því sem þau vita um þetta. Þeim til stuðnings gætuð þið notað myndirnar í þessum lexíudrögum, „Nói og fjölskylda hans“ í Sögur úr Gamla testamentinu (22–25) og þriðja versið í „Fylgið spámanninum“ (Barnasöngbókin, 58). Börn ykkar gætu haft gaman af því að leika hluta sögunnar – til dæmis með því að þykjast nota verkfæri til að smíða örkina eða ganga eins og dýr sem koma inn í örkina.

  • Þegar þið ræðið saman um Nóa, hjálpið þá börnum ykkar að skilja hve blessuð við erum að hafa spámann Guðs á okkar tíma. Hjálpið börnum ykkar að kanna HDP Móse 8:16–24 til að finna það sem Nói kenndi og spámenn Drottins kenna enn á okkar tíma. Hvernig erum við blessuð þegar við hlítum þeirri kennslu?

1. Mósebók 9:15–16

Guð mun halda loforð sín við mig.

  • Ung börn gætu notið þess að teikna eða lita regnboga, meðan þið ræðið merkingu hans (sjá Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 9:21–25 [í Þýðing Josephs Smith – Viðauki]). Hvað vildi Guð að Nói og fjölskylda hans hugsuðu um í hvert sinn sem þau sæju regnboga?

  • Þið gætuð líka sýnt börnum ykkar eitthvað sem þið eigið sem minnir ykkur á eitthvað mikilvægt í lífi ykkar, eins og giftingarhring, mynd eða dagbók. Látið börn ykkar miðla eigin dæmum. Þetta gæti leitt til umræðu um hluti sem hjálpa okkur að minnast sáttmála okkar, til að mynda sakramentisins, sem hjálpar okkur að minnast skírnarsáttmálans um að fylgja Jesú Kristi (sjá Kenning og sáttmálar 20:75–79).

tvöfaldur regnbogi

Guð sagði fjölskyldu Nóa að regnboginn yrði „tákn sáttmálans … sem ég stofna til milli mín og ykkar“ (1. Mósebók 9:12).

1. Mósebók 11:1–9

Að fylgja Jesú Kristi er eina leiðin til himins.

  • Það gæti verið gaman að byggja turn úr kubbum eða öðrum hlutum með börnum ykkar. Þegar þið gerið það, útskýrið þá að fólkið í Babel hafi talið sig geta komist til himna með því að reisa háan turn. Síðan gætuð þið skoðað mynd af frelsaranum saman og spurt börn ykkar að því hvernig hann hjálpi okkur að komast til himna. Þið gætuð síðan rætt saman um það sem þið getið gert til að fylgja frelsaranum.

  • Auk þess að lesa söguna um Babelsturninn í 1. Mósebók 11:1–9, gætuð þið og börn ykkar lesið Helaman 6:28. Af hverju byggði fólkið í Babel turninn, samkvæmt þessu versi? Af hverju var rangt að byggja turninn til að komast til himna? Þið gætuð síðan kannað 2. Nefí 31:20–21 og Helaman 3:28 til að finna réttu leiðina til að komast til himna. Hvaða ráð myndum við gefa fólkinu í Babel?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Örkin hans Nóa

Örkin hans Nóa, eftir Adam Klint Day. adamdayart.com

Verkefnasíða Barnafélagsins: Að fylgja spámanninum, mun blessa mig og fjölskyldu mína