„19.–25. janúar. Fall Adams og Evu: 1. Mósebók 3–4; HDP Móse 4–5,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„19.–25. janúar. Fall Adams og Evu,“ Kom, fylg mér: 2026
Adam og Eva, eftir Douglas M. Fryer
19.–25. janúar: Fall Adams og Evu
1. Mósebók 3–4; HDP Móse 4–5
Við fyrstu sýn gæti fall Adams og Evu virst vera sorgarviðburður. Adam og Evu var vísað út úr hinum fallega aldingarði Eden. Þau voru send í heim þjáninga, sorgar og dauða (sjá 1. Mósebók 3:16–19). Þau voru líka aðskilin frá sínum himneska föður. Sannleikurinn sem endurreistur var með spámanninum Joseph Smith í Bók Móse, veitir okkur hins vegar einstakt sjónarhorn á fallið.
Já, aldingarðurinn Eden var fallegur. Adam og Eva þurftu þó meira en einungis fallegt umhverfi. Þau – líkt og við öll – þurftu aðstæður til vaxtar. Brottförin úr aldingarðinum Eden var nauðsynlegt upphafsskref í átt að endurkomu til Guðs og um síðir að verða eins og hann. Það þýddi að mæta andstöðu, gera mistök, læra að iðrast og treysta frelsaranum, sem gerði mögulega framþróun og „gleði endurlausnar okkar“ (HDP Móse 5:11). Sjáið það því ekki sem harmleik, þegar þið lesið um fall Adams og Evu, heldur sem möguleika – ekki sem þá paradís sem Adam og Eva glötuðu, heldur sem þá dýrð sem við fáum tekið á móti vegna vals þeirra.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
1. Mósebók 3; HDP Móse 4
Fallið var nauðsynlegur þáttur í áætlun Guðs.
Satt er að val Adams og Evu leiddi til margra þeirra erfiðleika sem við upplifum í jarðlífinu. Það merkir þó ekki að við sjáum eftir vali þeirra. Þegar þið lesið 1. Mósebók 3 og HDP Móse 4, gætuð þið spurt ykkur sjálf: Af hverju var fallið mikilvægt í áætlun Guðs?
Hvað fannst Adam og Evu um fallið, samkvæmt HDP Móse 5:9–12? Hvernig getið þið heimfært orð þeirra upp á upplifanir ykkar í þessum fallna heimi? Hvað annað lærið þið af 2. Nefí 2:19–25?
Sjá einnig Mósía 3:19; Alma 12:21–37; og Kenning og sáttmálar 29:39–43.
Eden yfirgefinn, eftir Annie Henrie Nader
1. Mósebók 3:1–7; HDP Móse 4:22–31; 5:4–15
Jesús Kristur veitir von og endurlausn.
Saga Adams og Evu fjallar um von og endurlausn fyrir tilstilli Jesú Krists. Til að komast að ástæðunni, gætuð þið byrjað á að leita að afleiðingum fallsins í 1. Mósebók 3:1–7; HDP Móse 4:22–31 og merkt við eða skráð það sem þið finnið. Hvernig hafa þessar niðurstöður áhrif á ykkur? Þið gætuð síðan kannað HDP Móse 5:4–15 og gætt að áætlun Guðs til að endurleysa okkur frá þessum áhrifum. Af hverju voru Adam og Eva „glöð“ eftir að engillinn hafði vitjað þeirra? Hvað lærið þið af þeim um áætlun himnesks föður?
Sjá einnig „Because of Him“ (myndband), Gospel Library.
Because of Him
1. Mósebók 3:16; HDP Móse 4:22
Hvað þýðir það að Adam hafi átt að „drottna yfir“ Evu?
Þetta ritningarvers hefur stundum verið misskilið á þann hátt að réttlæta megi slæma meðferð eiginmanns á eiginkonu. Á okkar tíma hafa spámenn Drottins kennt að eiginmaður og eiginkona eigi að líta á hvort annað sem jafningja er þau framfylgja guðlegri ábyrgð sinni í fjölskyldunni (sjá „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“ [Gospel Library]). Öldungur Dale G. Renlund og systir Ruth Lybbert Renlund útskýrðu að réttlátur eiginmaður „leggi sig fram við að þjóna; hann viðurkenni mistök og leiti fyrirgefningar; hann sé fljótur til hróss; hann sé tillitssamur gagnvart dálætismálum fjölskyldumeðlima; hann hafi ríka ábyrgðartilfinningu gagnvart því að sjá fjölskyldu sinni fyrir ‚öryggi og nauðsynjum lífsins’; hann sýni eiginkonu sinni mestu virðingu og tillitssemi. … Hann muni blessa fjölskyldu sína“ (The Melchizedek Priesthood: Understanding the Doctrine, Living the Principles [2018], 23).
Ég þarf sjálfræði og andstæður til að vaxa.
Líkt og öldungur Dale G. Renlund kenndi: „Uppeldismarkmið föður okkar á himnum er ekki að láta börn sín gera það sem rétt er, heldur að fá börn sín til velja að gera það sem rétt er og að lokum verða eins og hann er“ („Kjósið þá í dag,“ aðalráðstefna, október 2018). Hvers vegna er svo mikilvægt í áætlun himnesks föður að við veljum að gera það sem er rétt?
Þegar þið lesið HDP Móse 4:1–4, gætið þá að því sem himneskur faðir og Jesús Kristur gerðu til að vernda rétt ykkar til að velja – sjálfræði ykkar. Hvernig getið þið fengið aðgang að verndandi krafti þeirra? Til að fá hugmyndir, íhugið þá að læra hlutann „Taka innblásnar ákvarðanir“ í Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum (4–5).
Íhugið líka að lesa það sem Lehí kenndi um sjálfræði í 2. Nefí 2:11–20, 25–30. Hvers vegna eru andstæður nauðsynlegar fyrir sjálfræði? Hvernig getið þið sýnt þakklæti fyrir Jesú Krist fyrir að hafa gert ykkur „frjálst að velja“? (2. Nefí 2:27).
Sjá einnig Dallin H. Oaks, „Andstæður í öllu,“ aðalráðstefna, apríl 2016; Topics and Questions, „Agency,“ Gospel Library; „Veldu rétt,“ Sálmar, nr. 98.
Aukið þátttöku. Mörg verkefni er hægt að vinna sem námsbekkur, á eigin spýtur, með fjölskyldunni, í fámennum hópum eða tvö og tvö saman. Notið fjölbreyttar aðferðir til að gera öðrum kleift að taka þátt, sem að öðrum kosti myndu ekki gera það. Þið gætuð boðið einum einstaklingi eða hópi í þessu verkefni að lesa HDP Móse 4 og leiðarvísinn Til styrktar ungmennum meðan annar hópur lærir versin í 2. Nefí 2. Þau gætu síðan kennt hvert öðru það sem þau lærðu í sínum hluta.
Satan reynir að „blekkja og blinda“ mig.
Þegar þið lesið HDP Móse 4:4–12; 5:13–33, íhugið þá að skrá hvernig Satan reyndi að freista Adams og Evu og barna þeirra. Hvernig reynir hann þetta sama á okkar tíma? Hvernig hjálpar himneskur faðir ykkur að sjá í gegnum blekkingar Satans?
„Ég, Drottinn Guð … lét þau klæðast.“
Eftir að Adam og Eva höfðu neytt af hinum forboðna ávexti reyndu þau að hylja nekt sína. Síðar bauðst Drottinn til að klæða þau. Íhugið eftirfarandi við lestur HDP Móse 4:13–16, 27:
-
Hugleiðið hvað nekt og klæðnaður geta táknað í ritningunum (sjá t.d. Opinberunarbókin 7:9, 13–15; 2. Nefí 9:14; Kenning og sáttmálar 109:22–26, 76). Hvað lærið þið af reynslu Adams og Evu um nekt og klæðnað?
-
Ef þið hafið fengið musterisgjöf ykkar, íhugið þá hvað Adam og Eva gætu sagt við ykkur um mikilvægi musterisklæða ykkar og hvað þau tákna.
Sjá einnig „Sacred Temple Clothing“ (myndband), Gospel Library.
Sacred Temple Clothing
Guð tekur á móti fórnum mínum, ef ég færi þær af hlýðni og fúsu hjarta.
Þegar þið lærið HDP Móse 5:4–9, 16–26, íhugið þá hið ólíka viðhorf sona þeirra, Kains og Abels, til fórna. Af hverju tók Drottinn á móti fórn Abels en ekki Kains?
Hverju býður Drottinn ykkur að fórna? Er eitthvað í þessum versum sem mótar viðhorf ykkar til þessara fórna?
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
1. Mósebók 3; HDP Móse 4; 5:8–15
Jesús Kristur frelsar okkur frá fallinu.
-
Til að hjálpa börnum ykkar að skilja fall Adams og Evu betur, gætuð þið afritað myndir úr „Adam og Eva“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 13–16) og klippt þær út. Þið gætuð síðan unnið saman við að raða myndunum í rétta röð, samhliða umræðum um raunir Adams og Evu. Þegar þið gerið það, ræðið þá hvers vegna mikilvægt var í áætlun himnesks föður fyrir Adam og Evu að þau yfirgæfu aldingarðinn Eden.
-
Börn ykkar geta fundið til þakklætis fyrir friðþægingu Jesú Krists þegar þau skilja hvernig hann sigrast á áhrifum fallsins. Þegar þið lesið saman HDP Móse 4:25; 6:48; Rómverjabréfið 5:12; 2. Nefí 2:22–23, hjálpið þá börnum ykkar að finna leiðir til að ljúka þessari setningu: „Vegna fallsins, mun ég …“. Þau gætu síðan, er þið lesið HDP Móse 5:8–11, 14–15; 6:59; Alma 11:42, fullgert þessa setningu: „Vegna Jesú Krists, mun ég …“. Miðlið hvert öðru þakklæti ykkar fyrir Jesú Krist.
Ég get valið hið rétta.
-
Íhugið einfalda sýnikennslu til að kynna regluna um sjálfræði: Bjóðið börnum ykkar að lita verkefnasíðu þessarar viku, en fáið þeim aðeins einn lit til afnota. Af hverju væri betra að hafa val um fleiri? Þið gætuð síðan lesið saman HDP Móse 4:1–4 og rætt hvers vegna Guð vill að við getum valið á milli þess sem er rétt og rangt. Hvernig hjálpa himneskur faðir og Jesús Kristur okkur að taka góðar ákvarðanir?
-
Hjálpið börnum ykkar að hugsa um og teikna myndir af góðum ákvörðunum sem þau geta tekið til að fylgja Jesú Kristi. Þess í stað gætuð þið líka sungið saman söng um að taka góðar ákvarðanir, svo sem „Velja rétta veginn“ (Barnasöngbókin, 82). Þið gætuð sagt hvert öðru frá því þegar þið tókuð góða ákvörðun og rætt hvernig ykkur leið eftir á.
Fallið, eftir Robert T. Barrett
Ég get beðið til himnesks föður.
-
Þegar Adam og Eva þurftu að yfirgefa aldingarðinn Eden, gátu þau ekki lengur verið hjá himneskum föður. Lesið HDP Móse 5:4, 8 með börnum ykkar og hjálpið þeim að finna það sem Adam og Eva gerðu til að finnast þau vera nálæg honum og hlýða á hann. Hvað er sumt af því sem við getum sagt við himneskan föður í bænum okkar?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.
Í líkingu fórnar hins eingetna föðurins, eftir Mike Malm (sjá HDP Móse 5:5–9)