„29. desember–4. janúar. Fyrsta vitnið um Jesú Krist: Kynning á Gamla testamentinu,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„Kynning á Gamla testamentinu,“ Kom, fylg mér: 2026
29. desember–4. janúar: Fyrsta vitnið um Jesú Krist
Kynning á Gamla testamentinu
Hvernig líður ykkur þegar þið hugsið um að læra í Gamla testamentinu á þessu ári? Spennt? Óviss? Hrædd? Hver og ein þessara tilfinninga er skiljanleg. Gamla testamentið er eitt elsta ritsafn í heimi og það getur gert það bæði spennandi og yfirþyrmandi. Ritsafn þetta á uppruna í fornri þjóðmenningu, sem getur virst framandi og stundum furðuleg eða jafnvel óþægileg. Samt sjáum við fólk í þessu ritsafni sem upplifir hluti sem virðast kunnuglegir. Við berum kennsl á trúarlegt þema sem vitnar um guðleika Jesú Krists og fagnaðarerindi hans. Já, líf fólks eins og Abrahams, Söru, Hönnu og Daníels var á einhvern hátt mjög frábrugðið lífi okkar sjálfra. Samt upplifðu þau bæði gleði og ágreining í fjölskyldunni, stundir trúar og stundir óvissu og sigra og ósigra – líkt og við öll gerum. Það sem skiptir meira máli er að þau iðkuðu trú, iðruðust, gerðu sáttmála, upplifðu andlega hluti og gáfust aldrei upp í viðleitni sinni til að hlýða Guði. Þegar við lærum hvernig Guð var í lífi þeirra, sjáum við hann líka í lífi okkar og við segjum með sálmaskáldinu: „Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. … Þjónn þinn elskar það“ (Sálmarnir 119:105, 140).
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Gamla testamentið vitnar um Jesú Krist.
Ein leið til að finna ríkulega andlega næringu í Gamla testamentinu er að gæta að brauði lífsins, Jesú Kristi (sjá Jóhannes 6:48). Hvernig sjáið þið frelsarann t.d. í eftirfarandi dæmum?
-
Manna (2. Mósebók 16:4, 11–15; Jóhannes 6:35)
-
Fórnarlambið (2. Mósebók 12:3–5; Jóhannes 1:29)
-
Eirormurinn (4. Mósebók 21:4–10; Jóhannes 3:14–15).
-
Jónas (Jónas 1:4–2:1; Matteus 12:38–41)
Hvað kenna þessi dæmi um hann? Hvaða fleiri tilvísunum í Jesú Krist í Gamla testamentinu eruð þið þegar kunnug?
Í boðskap sínum „Jesús Kristur er fjársjóðurinn,“ hvatti öldungur Dale G. Renlund okkur til að „hafa Jesú Krist ávallt í huga og einblína ávallt á hann“ (aðalráðstefna, október 2023). Íhugið að lesa boðskap hans og gæta að því sem þið getið gert til að finna Jesú Krist, ekki aðeins í Gamla testamentinu heldur einnig í lífi ykkar sjálfra.
Sjá einnig „Tákn eða merki um Krist“ undir „Jesús Kristur“ í Leiðarvísi að ritningunum, Gospel Library; „Í æsku leita ég lausnarans,“ Barnasöngbókin, 67.
Leitið að táknum sem bera vitni um Jesú Krist. Drottinn kenndi Adam: „Allt hefur sína líkingu og allt er skapað og gjört til að bera vitni um mig“ (HDP Móse 6:63). Hvort sem þið eruð að læra eða kenna, getur það að einblína á Jesú Krist hjálpað ykkur að finna merkingu í ritningunum og aukið elsku ykkar til hans og trú á hann. (Sjá Kenna að hætti frelsarans, 7.)
Jesús Kristur er Jehóva í Gamla testamentinu.
Dallin H. Oaks forseti kenndi: „Faðirinn [kynnti] hinn eingetna son, Jesú Krist, sem frelsara okkar og lausnara og bauð okkur: ‚Hlýðið á hann.‘ Af þessari leiðsögn má draga þá ályktun að þegar ritningargreinar vitna í orð ‚Guðs‘ eða ‚Drottins‘, þá eru þau nánast alltaf orð Jehóva, upprisins Drottins okkar, Jesú Krists“ („Kenningar Jesú Krists,“ aðalráðstefna, apríl 2023).
Kenningar Jesú Krists
Þegar leiðtogar Gyðinganna véfengdu Jesú um hver hann væri, sagði hann: „Áður en Abraham fæddist er ég.“ Þessi orð hneyksluðu fólkið sem hlýddi á Jesú og það var reiðubúið að grýta hann (sjá Jóhannes 8:58–59). Íhugið að lesa 2. Mósebók 3:13–15; 6:3–5 til að skilja hvers vegna sumir Gyðingar voru í uppnámi vegna þess sem Jesús sagði.
Hvers vegna er ykkur mikilvægt að vita að Jesús Kristur er Jehóva?
Drottinn endurreisti „mörg skýr og afar dýrmæt atriði“ fyrir tilstilli Josephs Smith.
Drottinn sýndi Nefí fram komu Biblíunnar í sýn og útskýrði að „mörg skýr og afar dýrmæt atriði“ yrðu felld úr henni. Íhugið að lesa 1. Nefí 13:21–29, 38–42 og gæta að því hvernig Drottinn hyggst „leiða í ljós þau skýru og dýrmætu atriði“. Hvernig vinna Biblían og Mormónsbók saman, samkvæmt 2. Nefí 3:12?
Þegar þið lærið Gamla testamentið á þessu ári, munuð þið líka læra „aðrar bækur“ sem Nefí sá fyrir. Þær eru meðal annarra:
-
Bók Móse, sem er fyrsti hluti innblásinnar þýðingar Josephs Smith á Biblíunni. Hún endurreisir sannleika og frásagnir sem ekki er að finna í núverandi texta 1. Mósebókar 1–6.
-
Bók Abrahams, sem opinberaðist Joseph Smith þegar hann rannsakaði fornegypskan papírus (sjá Topics and Questions, „Book of Abraham,“ Gospel Library).
-
Þýðing Josephs Smith – Viðauki og sumt af því má finna í neðanmálstilvísunum, viðauka Biblíunnar og Leiðarvísi að ritningunum.
Hér eru nokkur dæmi um frásagnir Gamla testamentisins sem endurreistar voru með Joseph Smith: Síonarborg Enoks (HDP Móse 7:18–19), sýn Abrahams um stórþing himins (Abraham 3:22–28) og þjónusta Melkísedeks (Þýðing Josephs Smith á 1. Mósebók 14:25–40). Af hverju eru þessar frásagnir ykkur „skýrar og dýrmætar“?
Adam og Eva færa fórnir, eftir Keith Larson (hluti af mynd)
Gamla testamentið hjálpar mér að skilja sáttmálssamband mitt við Guð.
Gamla testamentið er saga Guðs sem leitast við að gera okkur að „sérstakri eign“ með sáttmála (2. Mósebók 19:5). Þess vegna er gott að læra um sáttmála til að búa sig undir að lesa Gamla testamentið – einkum hinn ævarandi sáttmála sem Guð bauð fornum spámönnum, líkt og Abraham, Ísak, Jakobi og afkomendum þeirra. Ein góð leið til að læra um sáttmála, er að kynna sér boðskap Russells M. Nelson forseta „Hinn ævarandi sáttmáli“ (aðalráðstefna, október 2022).
Spyrjið ykkur sjálf við lesturinn: Hvers vegna eru sáttmálar mér mikilvægir? Hvaða „sérstaka tegund elsku og náðar“ hlýt ég frá Guði þegar ég held sáttmála mína við hann? Þegar þið lesið Gamla testamentið á þessu ári, gætið þá að því sem Guð vill kenna ykkur um sáttmálssamband ykkar við hann.
Sjá einnig Jeremía 31:31–34.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Ég get lært um Jesú Krist í Gamla testamentinu.
-
Börn geta átt erfitt með að skilja orð og menningu Gamla testamentisins, en þið getið hjálpað þeim að sjá Jesú Krist í táknum og sögum. Þið og börn ykkar gætuð ef til vill skoðað myndina hér að neðan, Spámaðurinn Jesaja spáir fyrir um fæðingu Krists. Látið börn ykkar benda á það sem þau sjá á myndinni. Beinið athygli þeirra einkum að Jesúbarninu. Þið gætuð síðan lesið með þeim það sem Jesaja ritaði um fæðingu frelsarans í Jesaja 7:14; 9:5. Miðlið börnum ykkar hvað ykkur finnst um að leita frelsarans í Gamla testamentinu á þessu ári.
Jesaja ritar um fæðingu Krists (Spámaðurinn Jesaja spáir fyrir um fæðingu Krists), eftir Harry Anderson
-
Þið og börn ykkar gætuð líka lesið Sálmana 23 eða Jesaja 53:3–9 og fundið orð sem minna ykkur á Jesú Krist. Hvað kenna þessi orð okkur um líf hans og friðþægingu?
Himneskur faðir vill gera sáttmála við mig.
-
Sáttmálar eru meginþema í Gamla testamentinu. Til að kynna þetta þema fyrir börnum ykkar, gætuð þið rætt við þau um loforð sem þau gefa fjölskyldu og vinum og hvers vegna mikilvægt er að halda þessi loforð. Þið gætuð síðan skoðað mynd af skírn og rætt loforðið eða sáttmálann sem við gerum við Guð þegar við erum skírð (sjá Mósía 18:10, 13). Þið gætuð líka sýnt mynd af musterinu og sagt frá tilfinningum ykkar um sáttmálana sem við gerum þar.
-
Verkefnasíða þessarar viku gæti hjálpað börnum ykkar að hlakka til að gera og halda sáttmála við himneskan föður. Þið gætuð líka sungið söng um sáttmálsgjörð, eins og „Þegar ég skírist“ (Barnasöngbókin, 53).
Jesús Kristur er Jehóva í Gamla testamentinu.
-
Þekkja börn ykkar einhvern sem gengur undir mismunandi nöfnum við mismunandi aðstæður? Ef til vill er foreldri eða kennari ávarpaður á ólíkan hátt í vinnu, heima og í kirkju. Ræðið þessi nöfn; lesið síðan saman 2. Mósebók 6:3 og biðjið börn ykkar að finna þau nöfn sem Jesús Kristur var þekktur undir fyrir fæðingu sína (sjá einnig Þýðingu Josephs Smith í neðanmálstilvísun c).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.