Kom, fylg mér
5.–11. janúar. „Þetta er verk mitt og dýrð mín“: HDP Móse 1; Abraham 3


„5.–11. janúar. ‚Þetta er verk mitt og dýrð mín‘: HDP Móse 1; Abraham 3,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„5.–11. janúar. ‚Þetta er verk mitt og dýrð mín‘,“ Kom, fylg mér: 2026

stjörnur og geimþoka

5.–11. janúar: „Þetta er verk mitt og dýrð mín“

HDP Móse 1; Abraham 3

Biblían hefst á orðunum: „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð“ (1. Mósebók 1:1). Hvað var til staðar fyrir þetta „upphaf“? Og hvers vegna skapaði Guð þetta allt saman? Með spámanninum Joseph Smith hefur Drottinn varpað ljósi á þessar spurningar.

Hann gaf okkur til dæmis skrásetningu sýnar, þar sem Abraham sá tilveru okkar sem anda „áður en heimurinn varð til“ (sjá Abraham 3:22–28). Drottinn gaf okkur líka innblásna þýðingu eða endurbætta útgáfu af fyrstu sex köflum 1. Mósebókar sem kallast Bók Móse – sem hefst ekki á „í upphafi“. Þess í stað hefst hún á upplifun sem Móse varð fyrir, sem er í samhengi við hina vel þekktu sköpunarsögu. Í sameiningu eru þessar síðari daga ritningar tilvaldar til að hefja nám okkar í Gamla testamentinu, þar sem þær takast á við grundvallarspurningar sem geta mótað lestur okkar: Hver er Guð? Hver erum við? Hvert er verk Guðs og hvert er hlutverk okkar í því? Fyrstu kaflar 1. Mósebókar gætu verið skildir sem svar Drottins við beiðni Móse: „Ver þjóni þínum miskunnsamur, ó Guð, og fræð mig um þessa jörð og íbúa hennar og einnig um himnana“ (HDP Móse 1:36).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

HDP Móse 1

trúarskólatákn
Sem barn Guðs, á ég mér guðleg örlög.

„Ef Drottinn talaði beint til ykkar,“ kenndi Russell M. Nelson forseti, „myndi hann ganga úr skugga um að þið skilduð ykkar sanna auðkenni“ („Choices for Eternity“ [heimslæg trúarsamkoma fyrir ungt fólk, maí 2022], Gospel Library). Af þessu leiðir að Satan myndi reyna að rugla ykkur í ríminu varðandi þetta sama. Gætið að þessu mynstri í boðskap Guðs til Móse í HDP Móse 1:4, 6 og í því sem Satan segir í HDP Móse 1:12. Hvað lærið þið af þessum versum um það sem skilur að Guð og Satan?

Nelson forseti kenndi einnig: „Hvernig þið hugsið um það hver þið í raun eruð, hefur áhrif á næstum allar ákvarðanir sem þið munuð nokkurn tíma taka“ („Choices for Eternity“). Íhugið að halda skrá yfir allar ákvarðanir sem þið takið vegna þess að auðkenni ykkar sem barn Guðs stendur framar öllum öðrum merkimiðum.

Hvaða fleiri vers eða orðtök í HDP Móse 1 hjálpa ykkur að skilja guðlegt virði ykkar? Þið gætuð líka lesið meira af boðskap Nelsons forseta í „Choices for Eternity“, í hlutanum sem ber heitið „First: Know the truth about who you are“. Hvað finnst ykkur þið hvött til að gera, til að auðkenni ykkar sem barn Guðs verði mikilvægasta auðkenni ykkar?

Sjá einnig „Guðs barnið eitt ég er,“ Sálmar (1985), nr. 112; „Our True Identity“ (myndband), Gospel Library; Topics and Questions, „Children of God,“ Gospel Library.

3:39

Our True Identity

móðir, faðir og barn brosa

HDP Móse 1:12–26

Með liðsinni Drottins get ég staðið gegn Satan.

Eins og HDP Móse 1 sýnir greinilega, þýðir áhrifamikil andleg upplifun ekki að okkar verði aldrei freistað aftur. Í raun er ein aðferða Satans sú að freista okkar til að efast um slíkar upplifanir. Hvað lærið þið þegar þið lesið svar Móse til Satans í versum 12–26, sem getur hjálpað ykkur að vera trú vitnisburðinum sem þið hafið meðtekið? Hvað var það sem hjálpaði Móse að lokum að sigrast á Satan?

Eitt af því sem læra má af reynslu Móse er að Satan reynir að falsa sannleika og mátt Guðs. Hugsið um einhverjar falsaðar útgáfur af hlutum, eins og gerviplöntu eða brúðu. Hvernig sjáið þið að þær eru falsaðar? Íhugið síðan falsanir sem Satan notar til að freista ykkar á okkar tíma. Hvað lærið þið af HDP Móse 1:13–18 um það hvernig þekkja á eftirlíkingar hans og hafna þeim? Hvernig getur Drottinn hjálpað ykkur? (sjá HDP Móse 1:24–26).

Sjá einnig Matteus 4:1–11; Gary E. Stevenson, „Ekki skaltu blekkja mig,“ aðalráðstefna, október 2019; „I Am a Son of God“ (myndband), Gospel Library.

6:31

I Am a Son of God

Lærdómur á heimilinu getur verið skipulagður, en einnig fyrirvaralaus. „Kennslutækifæri fjölskyldunnar verða oft á óformlegum, eðlilegum stundum – við máltíðir, heimilisverkin, í leikjum [eða] á ferðalögum“ (Kenna að hætti frelsarans, 31). Til viðbótar við að lesa um hvernig Móse stóðst Satan í HDP Móse 1, gætuð þið t.d. varið smástund við kvöldverðarborðið til að ræða saman sem fjölskylda um það hvernig þið stóðust áhrif andstæðingsins.

HDP Móse 1:27–39; Abraham 3

Verk og dýrð Guðs eru mér til hjálpar við að öðlast eilíft líf.

Eftir að hafa séð sýn af sköpunarverkum Guðs, bað Móse til Drottins: „Seg mér … hvers vegna þetta er svo“ (HDP Móse 1:30). Hvað vekur athygli ykkar við orð Drottins í HDP Móse 1:31–39? Hver er munurinn á ódauðleika og eilífu lífi? (sjá Topics and Questions, „Eternal Life,“ Gospel Library). Hvernig hjálpar Jesús Kristur við að gera hvort tveggja að veruleika? Abraham upplifði líka sýn sem skrásett er í Abraham 3. Hvað í versum 24–26 getur hjálpað ykkur að svara fyrirspurn Móse?

Abraham 3:22–28

Ég lifði sem andi áður en ég fæddist á jörðu.

Við vitum afar lítið um fortilveru okkar. Margt af því sem við vitum á rætur í sýn Abrahams í Abraham 3:22–28. Þegar þið lesið þessi vers, skráið þá sannleika sem þið finnið – þar á meðal sannleika um ykkur sjálf og um Jesú Krist. Af hverju er þessi sannleikur ykkur mikilvægur? Hvaða gæfumun hefur hann gert í líf ykkar?

Sjá einnig Topics and Questions, „Premortal Life,“ Gospel Library.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta 01

Hugmyndir fyrir kennslu barna

HDP Móse 1:1–4, 6, 12

Ég er barn Guðs.

  • Eftir að þið hafið lesið saman boðskap Guðs til Móse í HDP Móse 1:4, íhugið þá að láta börn ykkar horfa á sig sjálf í spegli og færa sjálfum sér svipuð skilaboð: „Guðs barnið eitt ég er.“ Þau gætu síðan sent hvert öðru þessi sömu skilaboð: „Guðs barnið eitt þú ert.“ Þið gætuð jafnvel fundið myndir af mismunandi fólki og boðið börnum ykkar að benda á hvert þeirra og segja: „Guðs barnið eitt þetta er.“ Miðlið hvert öðru ástæðu þess að þið eruð glöð yfir að vita að þið eruð börn Guðs. Hvernig breytir þessi vitneskja því hvernig þið komið fram við ykkur sjálf og aðra?

  • Þið og börn ykkar gætuð gert samanburð á orðum Guðs til Móse í HDP Móse 1:4 og orðum Satans í versi 12. Hvernig getið þið hjálpað börnum ykkar að greina á milli boðskapar Guðs til þeirra og Satans?

Jehóva birtist Móse

Móse sér Jehóva, eftir Joseph Brickey (hluti af mynd)

HDP Móse 1:6, 39

Himneskur faðir hefur verk fyrir mig að vinna.

  • Þegar þið lesið HDP Móse 1:6 með börnum ykkar, gætuð þið rætt við þau um „verkið“ sem Guð ætlaði Móse. Íhugið að nota Trúarmyndabók, nr. 13–16, eða Sögur úr Gamla testamentinu, bls. 64–84, til að hjálpa börnum ykkar að skilja hverju Móse fékk áorkað með hjálp himnesks föður. Hvert er það verk sem Guð ætlar okkur að vinna? (sjá t.d. Kenning og sáttmálar 11:20).

HDP Móse 1:12–26

Ég get staðið gegn áhrifum Satans.

  • Þegar þið lærið HDP Móse 1:12–26 með börnum ykkar, hjálpið þeim þá að átta sig á hvað Móse gerði til að standast Satan (sjá vers 13, 15, 18, 20–22, 26). Það gæti verið skemmtilegt fyrir þau að leika það sem þau gætu gert til að standast freistingar (eins og að biðja, ganga burtu eða biðja um hjálp).

Abraham 3:22–28

Ég lifði sem andi áður en ég fæddist á jörðu.

  • Vitneskjan um fortilveru okkar getur innblásið börn ykkar til að taka ákvarðanir byggðar á eilífum sannleika. Til að hjálpa þeim að læra um þetta, gætuð þið látið þau fá lykilorð og orðtök til að finna í Abraham 3:22–28, t.d. „áður en heimurinn varð til“, „andar“, „búa til jörð“ og „sannreyna“. Hvað kenna þessi vers okkur um ástæðu þess að himneskur faðir sendi okkur til jarðar?

  • Söngur eins og „Ég fylgi áformi Guðs“ (Barnasöngbókin, 86) gæti undirstrikað það sem Abraham 3 kennir. Þið gætuð ef til vill boðið börnum ykkar að teikna myndir sem eiga við textann.

  • Hjálpið börnum ykkar að hugsa um aðstæður þar sem þau þurfa að velja hvort þau geri það sem Guð hefur beðið þau um eða ekki (sjá Abraham 3:25; sjá einnig Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum). Látið þau æfa möguleg viðbrögð við slíkum aðstæðum. Hvernig getur frelsarinn hjálpað okkur þegar við tökum rangar ákvarðanir?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Móses vísar Satan burt

Móse sigrast á Satan, eftir Joseph Brickey

Verkefnasíða Barnafélagsins: Guðs barnið eitt ég er