Kom, fylg mér
12.–18. janúar. „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð“: 1. Mósebók 1–2; HDP Móse 2–3; Abraham 4–5


„12.–18. janúar. ‚Í upphafi skapaði Guð himin og jörð‘: 1. Mósebók 1–2; HDP Móse 2–3; Abraham 4–5,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„12.–18. janúar. ‚Í upphafi skapaði Guð himin og jörð‘,“ Kom, fylg mér: 2026

jörðin og tunglið

12.–18. janúar: „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð“

1. Mósebók 1–2; HDP Móse 2–3; Abraham 4–5

Vegna fegurðar og mikilfengleika heimsins umhverfis, er erfitt að ímynda sér jörðina þegar hún var „auð og tóm“ (1. Mósebók 1:2; Abraham 4:2). Eitt af því sem við lærum af sköpunarsögunni er að Guð getur gert nokkuð stórbrotið úr hinu óskipulagða. Þetta er gagnlegt að muna þegar lífið virðist óreiðukennt. Himneskur faðir og Jesús Kristur eru skaparar og sköpunarverki þeirra meðal okkar er ekki lokið. Þeir geta látið ljós skína á dimmum stundum í lífi okkar. Þeir geta fyllt tómleika okkar með lífi. Þeir geta umbreytt okkur í þær guðlegu verur sem okkur var ætlað að vera. Þetta er hluti merkingarinnar að vera sköpuð eftir mynd Guðs, að vera eftirmynd hans (sjá 1. Mósebók 1:26). Við eigum möguleika á að verða eins og hann: upphafnar, dýrðlegar, himneskar verur.

Til að fá yfirlit yfir 1. Mósebók, sjá þá „Genesis (Fyrsta Mósebók)“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

1. Mósebók 1:1–25; HDP Móse 2:1–25; Abraham 4:1–25

„Með mínum eingetna skapaði ég þessa hluti.“

Þótt við vitum ekki allt um það hvernig heimurinn var skapaður, þá er áhugavert að vita hvað Guð hefur valið að opinbera um sköpunina. Hvað kennir Guð ykkur um efnið í 1. Mósebók 1:1–25; HDP Móse 2:1–25; og Abraham 4:1–25? Af hverju vill hann að þið vitið þessa hluti? Þegar þið hugleiðið þessar frásagnir, gætuð þið líka íhugað hvað þær kenna ykkur um himneskan föður, Jesú Krist, heiminn og ykkur sjálf.

Íhugið að lesa þessi vers meðan þið eruð úti á meðal sköpunarverka Guðs, til að auðga nám ykkar eða meðan þið hlustið á söng eins „Öll sköpun syngi Drottni dýrð“ (Sálmar, nr. 16). Þið gætuð fundið myndir af sköpunarverki hans sem stuðla að lotningu fyrir skaparanum. Íhugið að miðla öðrum þessum myndum, ásamt vitnisburði ykkar.

Sjá einnig Kenning og sáttmálar 101:32–34.

málverk af aldingarðinum Eden

Aldingarðurinn Eden, eftir Grant Romney Clawson

1. Mósebók 1:26–27; HDP Móse 2:26–27; Abraham 4:26–27

trúarskólatákn
Ég er skapaður/sköpuð í mynd Guðs.

Þegar þið lesið 1. Mósebók 1:26–27; HDP Móse 2:26–27; og Abraham 4:26–27, hugleiðið þá merkingu þess að vera sköpuð í „mynd“ eða „líkingu“ Guðs, karl og kona. Af hverju er ykkur mikilvægt að þekkja sannleikann í þessum versum? Hvernig hefur þessi sannleikur t.d. áhrif á það hvernig þið sjáið ykkur sjálf, aðra og Guð? Hvernig getur hann hjálpað ykkur þegar þið hafið neikvæðar tilfinningar gagnvart ykkur sjálfum?

Til að hjálpa ykkur að íhuga þessar spurningar, reynið þá að ljúka setningu eins og þessari: „Þar sem ég veit að ég er skapaður/sköpuð í mynd Guðs, vel ég að …“. Það getur verið gagnlegt að lesa „Líkami þinn er heilagur“ í Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum (bls. 22–29). Íhugið að ákveða eitthvað sem þið munið gera til að sýna Guði að þið vitið að líkami ykkar er heilagur.

Í myndbandinu „God‘s Greatest Creation“ (Gospel Library), ber Russell M. Nelson forseti vitni um hinn undursamlega líkama mannsins. Þegar þið horfið á þetta myndband, spyrjið ykkur þá sjálf: „Hvernig vill himneskur faðir að mér líði varðandi líkama minn?“ Hvernig er þetta frábrugðið skilaboðum sem þið gætuð heyrt frá öðrum?

2:51

God's Greatest Creation

Sum gætu sagt að það að vera skapaður í mynd Guðs merkti að allar hugsanir okkar, tilfinningar og þrár séu samþykktar af honum og að við þurfum ekki (eða getum ekki) bætt okkur. Hvað mynduð þið segja við þau? Hvaða skilning hljótið þið af Mósía 3:19 og Eter 12:27?

Sjá einnig Russell M. Nelson, „Your Body: A Magnificent Gift to Cherish,“ Liahona, ágú. 2019, 50–55.

1. Mósebók 1:27–28; 2:18–25; HDP Móse 3:18, 21–24; Abraham 5:14–18

Hjónaband milli karls og konu er vígt af Guði.

„Adam og Eva sameinuðust í hjónabandi um tíma og alla eilífð, með valdi [hins] ævarandi prestdæmis“ (Russell M. Nelson, „Lessons from Eve,“ Ensign, nóv. 1987, 87). Íhugið þetta þegar þið lesið 1. Mósebók 1:27–28; 2:18–25; HDP Móse 3:18, 21–25; og Abraham 5:14–19. Hvernig getið þið umvafið hjónabandið þeirri helgi sem Guð hefur gefið því?

Sjá einnig 1. Korintubréf 11:11; „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins,“ Gospel Library.

1. Mósebók 1:28; HDP Móse 2:28; Abraham 4:28.

Ég ber ábyrgð á umönnun sköpunarverks Guðs.

Hvað segja 1. Mósebók 1:28; HDP Móse 2:28; og Abraham 4:28 um ábyrgð okkar á sköpunarverki Guðs? Hvaða frekari skilning hljótum við í Kenningu og sáttmálum 59:16–21 og 104:13–18?

Sjá einnig Gérald Caussé, „Ráðsmennska okkar á jörðu,“ aðalráðstefna, október 2022; Topics and Questions, „Environmental Stewardship and Conservation,“ Gospel Library.

1. Mósebók 2:2–3; HDP Móse 3:2–3; Abraham 5:2–3

Guð blessaði og helgaði hvíldardaginn.

Guð gerði hvíldardaginn heilagan og býður okkur að halda hann heilagan. Þegar þið lesið 1. Mósebók 2:2–3; HDP Móse 3:2–3; og Abraham 5:2–3, íhugið þá hvað það er sem gerir hvíldardaginn „blessaðan“ fyrir ykkur.

Sjá einnig Kenning og sáttmálar 59:9–13; „The Sabbath Is a Delight“ (myndband), Gospel Library.

0:50

Highlight: The Sabbath Is a Delight

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta 01

Hugmyndir fyrir kennslu barna

1. Mósebók 1:1–25; HDP Móse 2:1–25; Abraham 4:1–25

Jesús skapaði jörðina.

  • Hvernig getið þið gert námið um sköpunina skemmtilegt fyrir börn ykkar? Þið gætuð farið með þau í skoðunarferð úti til að sýna þeim hvað var skapað á hverju tímabili sköpunarinnar. Börn ykkar gætu líka skoðað myndir af því sem Jesús skapaði (sjá „Sköpun jarðar“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 8–12). Þið og börn ykkar gætuð síðan rætt hvað ykkur finnst um Jesú Krist eftir að hafa lesið um sköpunina.

  • Íhugið að syngja saman söng um okkar fallegu veröld, t.d. „Himnafaðir elskar mig“ (Barnasöngbókin, 16). Börn ykkar gætu ef til vill bætt fleiru sem Guð hefur skapað við sönginn sem hjálpar þeim að finna elsku hans.

Hjálpið börnunum að tjá sköpunargáfu sína. „Þegar þið bjóðið börnum að teikna, byggja, lita eða skrifa eitthvað í tengslum við reglu fagnaðarerindisins, eruð þið að hjálpa þeim að skilja þá reglu og veita þeim áþreifanlega minningu um það sem þau hafa lært“ (Kenna að hætti frelsarans32).

1. Mósebók 1:26–27; HDP Móse 2:26–27; Abraham 4:26–27

Ég var skapaður/sköpuð í mynd Guðs.

  • Börn ykkar geta þróað með sér lotningu og virðingu fyrir eigin líkama og líkama annarra, er þau læra að við vorum öll sköpuð í mynd Guðs. Til að hjálpa börnum ykkar að skilja hvað í þessu felst, gætuð þið látið þau horfa á sig sjálf í spegli eða á mynd af sjálfum sér meðan þið lesið HDP Móse 2:26–27 fyrir þau. Þið gætuð líka sýnt þeim hvernig ung dýr eru oft í „líkingu“ foreldra sinna (sjá til dæmis myndina í þessum lexíudrögum). Þetta gæti leitt til umræðna um það hvers vegna það er ykkur mikilvægt að vita að þið eruð sköpuð í mynd himnesks föður.

    bjarndýr og húnar
  • Þið og börn ykkar gætuð haft gaman af því að teikna mannslíkama og klippa myndina í púsluspil. Þegar börnin ykkar raða púsluspilunum saman, gætu þau rætt hvernig þau geti sýnt himneskum föður að þau séu þakklát fyrir líkama sinn.

1. Mósebók 2:2–3; HDP Móse 3:2–3; Abraham 5:2–3

Hvíldardagurinn er heilagur.

  • Þegar þið lesið HDP Móse 3:2–3, biðjið þá börn ykkar að hlusta eftir því sem Guð gerði á sjöunda degi. Hjálpið börnum ykkar að finna eða teikna myndir af því sem þau geta gert á sunnudögum, til að gera hann að helgum degi og öðruvísi en aðra daga. Miðlið hvert öðru ástæðum þess að mikilvægt er fyrir ykkur að halda hvíldardaginn heilagan.

  • Hjálpið börnum ykkar að fara í hlutverkaleik og útskýra fyrir vini af hverju þau velja að gera hluti á sunnudögum til heiðurs himneskum föður og Jesú. Leggið til að þau noti 1. Mósebók 2:2–3 við útskýringar sínar. Hvernig sýnir það elsku okkar til himnesks föður og Jesú Krists að halda hvíldardaginn heilagan?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Jehóva stendur í skýjunum með hönd sína yfir heiminum sem hann er að skipuleggja

Sköpunin, eftir Annie Henrie Nader

Verkefnasíða Barnafélagsins: Jesús skapaði jörðina