„2.–8. mars. ,Lát Guð ríkja‘,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„2.–8. mars. ‚Lát Guð ríkja‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Esaú selur frumburðarrétt sinn, eftir Glen S. Hopkinson (hluti af mynd)
2.–8. mars: „Lát Guð ríkja“
1. Mósebók 24–33
Hvernig getið þið tryggt ykkur sjálfum blessun frá Guði? Segja mætti að frásögnin um Jakob, sonarson Abrahams og Söru, sé saga manns sem lærði svarið við þeirri spurningu. Í menningu þar sem elsti sonurinn hlaut frumburðarblessun fæddist Jakob annar í röðinni, rétt á eftir tvíburabróður sínum Esaú. Nafnið „Jakob“ þýðir „staðgengill“ – sá sem kemur í stað einhvers annars. Jakob stóð undir nafninu með því að reyna, oftar en einu sinni, að koma í stað Esaú sem erfingja blessunar frumburðarréttarins, því Esaú var ekki verðugur hennar (sjá 1. Mósebók 25:30–34; 26:34–35; 27:36). Af því leiddi ósætti í fjölskyldunni og Jakob varð að flýja til að bjarga lífi sínu út í óbyggðirnar.
Mörgum árum síðar bauð Guð Jakobi að snúa aftur heim. Á leiðinni leitaði Jakob aftur blessunar frá Guði af auðmýkt. Ritningarnar lýsa þessum tíma sem „glímu“ fyrir Jakob og hann lýsti yfir að hann myndi ekki gefast upp „nema þú blessir mig“ (1. Mósebók 32:26). Síðan kom lexían – og blessunin. Guð breytti nafni Jakobs í Ísrael – sem þýðir meðal annars „lát Guð ríkja“. Ísrael lærðist að til að hljóta dýrmætustu blessanir Guðs, sáttmálsblessanir hans, var ekki nauðsynlegt að koma í stað einhvers annars. Blessanir hans eru ekki keyptar eða áunnar. Hann gefur þær öllum fúslega sem standa undir því að lifa samkvæmt nafni Ísraels – sem láta Guð ríkja í lífi sínu.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
1. Mósebók 24
Sáttmálshjónaband er nauðsynlegt eilífri áætlun Guðs.
Þegar þið lesið 1. Mósebók 24, spyrjið ykkur þá sjálf að því hvers vegna Abraham hafi talið hjónaband Ísaks sonar síns svo mikilvægt. Af hverju er hjónabandið Guði mikilvægt?
Hvaða eiginleika finnið þið í fari Rebekku sem gætu stuðlað að sterku hjónabandi og fjölskyldu? (sjá einkum vers 15–28, 57–61).
Sjá einnig Topics and Questions, „Marriage,“ Gospel Library.
1. Mósebók 25:29–34
Ég get metið hið eilífa ofar hinu stundlega.
Í menningu Ísaks og Rebekku fékk elsti sonurinn frumburðarréttinn, sem fól í sér stærri arf og meiri ábyrgð á umönnun fjölskyldunnar. Þegar þið lesið 1. Mósebók 25:29–34, íhugið þá hvers vegna Esaú gæti hafa verið fús til að afsala sér frumburðarrétti sínum fyrir máltíð. Hvaða lexíur finnið þið í þessari frásögn? Gagnlegt gæti verið að búa til tvo dálka: (1) Eilífar blessanir sem Guð vill veita ykkur og (2) veraldlegir hlutir sem gætu truflað ykkur. Þið gætuð síðan lesið ritningarhlutann og sett eitthvað úr fyrri dálknum í stað orðsins „frumburðarréttur“ og eitthvað úr síðari dálknum í stað orðsins „baunakássa“. Hvernig munið þið einblína á frelsarann og eilífar blessanir fagnaðarerindis hans?
Sjá einnig Matteus 6:19–33; M. Russell Ballard, „Hafið hugfast það sem mestu skiptir,“ aðalráðstefna, apríl 2023.
Jakob í Betel, eftir James Smetham
1. Mósebók 28
Sáttmálar húss Drottins færa kraft Guðs í líf mitt.
Þegar Jakob svaf á kodda úr steini dreymdi hann draum sem gerbreytti lífi hans. Það var svo helg upplifun að Jakob gaf staðnum nafnið Betel eða „hús Guðs“ og sagði: „Sannarlega er Drottinn á þessum stað“ (1. Mósebók 28:16).
Þegar þið lesið 1. Mósebók 28, gætuð þið spurt ykkur hvað það hafi verið sem gerði þessa upplifun Jakobs svo heilaga. Hvað var hann að ganga í gegnum á þeim tíma? Hvernig gæti honum hafa liðið? Þið gætuð líka gætt að orðum og orðtökum í versum 10–22 sem minna ykkur á hús Drottins. Hvaða hughrif hljótið þið um Guð, hús hans og sáttmála hans?
Aftast í þessum lexíudrögum er málverk sem sýnir draum Jakobs; þið gætuð vísað í það við lesturinn. Hvað mynduð þið gera ef þið ættuð að búa til ykkar eigin listrænu mynd af draumi hans? Hvaða sannleika úr sögunni mynduð þið reyna að sýna?
Sálmurinn „Hærra, minn Guð til þín“ (Sálmar, nr. 32) sótti innblástur í upplifun Jakobs. Hvaða tengingu sjáið þið á milli þessa söngs og 1. Mósebókar 28:10–22? Hvernig hjálpar musterið ykkur að finnast þið vera nær Guði? Íhugið að leita svara við þessari spurningu í boðskap Russells M. Nelson forseta „Musterið og ykkar andlega undirstaða“ (aðalráðstefna, október 2021). Þið gætuð einnig viljað lesa um sáttmála og blessanir húss Drottins í Almenn handbók, 27.2 (Gospel Library). Hvernig vekur það kraft Guðs í lífi ykkar að halda þessa sáttmála?
Verið skapandi. Lestur ritninganna er aðeins ein leið af mörgum til að læra þær. Sumum finnst þeir skilja ritningarnar betur með því að teikna myndir af frásögnunum. Aðrir hljóta andlegan skilning í helgri tónlist sem tengist ritningunum. Ekki takmarka ykkur við eina leið til að læra; verið opin fyrir því að prófa fjölbreyttar aðferðir.
1. Mósebók 29:31–35; 30:1–24
Drottinn minnist mín í raunum mínum.
Þegar þið lesið 1. Mósebók 29:31–35 og 30:1–24, gætið þá að orðum sem lýsa miskunn Guðs í þágu Rakelar og Leu. Íhugið á hvaða hátt Guð hefur „séð neyð [ykkar]“ og „[minnst]“ ykkar (1. Mósebók 29:32; 30:22).
1. Mósebók 32–33
Frelsarinn getur grætt fjölskyldu mína.
Þegar Jakob sneri aftur til Kanaanslands var hann „óttasleginn og fullur kvíða“ yfir því hvernig Esaú bróðir hans myndi taka á móti honum (1. Mósebók 32:7). Þegar þið lesið 1. Mósebók 32–33, íhugið þá eigin fjölskyldusambönd – ef til vill einkum þau sem græða mætti. Þessi frásögn gæti mögulega hvatt ykkur til að liðsinna einhverjum. Spurningar sem þessar gætu verið í huga ykkar við lesturinn:
-
Hvernig bjó Jakob sig undir að hitta Esaú?
-
Hvað vekur sérstakan áhuga ykkar við bæn Jakobs í 1. Mósebók 32:9–12?
-
Hvað lærið þið um fyrirgefningu af fordæmi Esaú?
-
Á hvaða hátt getur frelsarinn hjálpað okkur að græða fjölskyldusambönd?
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
1. Mósebók 24:10–21
Ég get sýnt öðrum góðvild.
-
Til að undirstrika hið áhrifamikla fordæmi Rebekku um góðvild, gætuð þið sýnt börnum ykkar myndina hér að neðan eða verkefnasíðu þessarar viku, er þið dragið saman söguna í 1. Mósebók 24:10–21. Börn ykkar gætu haft gaman af því að leika söguna. Þetta gæti leitt til umræðna um góðverk sem þið og börn ykkar hafið séð.
-
Íhugið að syngja saman söng um góðvild, t.d. „Góðvildin hefst hjá mér“ (Barnasöngbókin, 83). Börn ykkar gætu hlustað eftir orðinu „góðvild“ (eða álíka orði) og staðið upp þegar þau heyra það. Hvernig getum við verið líkari Rebekku?
Hetjur Gamla testamentisins, eftir Dilleen Marsh (hluti myndar)
1. Mósebók 25:21–34
Hið eilífa er mikilvægara hinu veraldlega.
-
Íhugið að nota „Jakob og Esaú“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 38–41) til að hjálpa börnum ykkar að skilja frásögnina í 1. Mósebók 25:21–34. Börn ykkar gætu ef til vill ímyndað sér að Esaú bæði þau að ráðleggja sér hvort hann ætti að skipta á frumburðarrétti sínum og baunakássunni. Hvað mynduð þið segja við hann?
2:5Jacob and Esau
-
Hvaða hlutir hafa eilífa þýðingu fyrir ykkur og börn ykkar? Börn ykkar gætu ef til vill fundið myndir eða hluti sem tákna þessa hluti. Hvernig getum við sýnt Drottni að þessir hlutir eru okkur mikilvægir?
1. Mósebók 28:10–22
Sáttmálar hjálpa mér að snúa aftur til himnesks föður.
-
Þegar þið lesið saman 1. Mósebók 28:10–22 gætuð þið notað stiga (eða mynd eins og þá sem er aftast í þessum lexíudrögum) til að ræða hvernig sáttmálar okkar eru eins og að klífa stiga. Börn ykkar gætu ef til vill látist klífa stiga og talað um það í hverju þrepi er við lofum að hlýða Guði, eins og þegar við erum skírð, meðtökum sakramentið eða förum í musterið. Hvernig færa sáttmálar okkar okkur nær Guði?
1. Mósebók 32:6–11; 33:1–4
Himneskur faðir og Jesús Kristur geta hjálpað mér að elska fjölskyldu mína.
-
Til að kynna þessi vers, gætuð þið útskýrt að Jakob ætlaði að hitta Esaú aftur, eftir margra ára erfiðar tilfinningar. Lesið saman 1. Mósebók 32:6–11. Hvernig leið Jakobi? Hvað gerði hann sér til hjálpar? Lesið saman 1. Mósebók 33:1–4 til að komast að því hvernig Drottinn svaraði bæn Jakobs. Hvað myndu Jakob og Esaú segja ef þeir gætu talað til okkar nú, okkur til hjálpar þegar upp kæmi ágreiningur í fjölskyldu okkar?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.