„16.–22. mars. ‚Guð sneri því til góðs‘: 1. Mósebók 42–50,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„16.–22. mars. ‚Guð sneri því til góðs‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Fyrirgefning, eftir Megan Rieker
16.–22. mars: „Guð sneri því til góðs“
1. Mósebók 42–50
Liðin voru um 22 ár frá því að bræður Jósefs seldu hann í ánauð. Jósef leið mikla erfiðleika, þar á meðal falskar ásakanir og fangelsisvist. Þegar hann loks sá bræður sína aftur var Jósef landsherra yfir öllu Egyptalandi, aðeins faraó var hærra settur. Hann hefði hæglega geta hefnt sín á bræðrum sínum og miðað við það sem þeir höfðu gert honum gæti það virst skiljanlegt. Þrátt fyrir það fyrirgaf Jósef þeim. Hann lét það ekki nægja, heldur sýndi hann þeim einnig himneskan tilgang þjáningar sinnar. „Guð sneri því til góðs“ (1. Mósebók 50:20), sagði hann við þá, því það kom honum í stöðu til að bjarga „öllum ættmennum föður síns“ (1. Mósebók 47:12) frá hungursneyð.
Jósef var að mörgu leyti eins og Jesús Kristur. Þó að syndir okkar hafi valdið Jesú mikilli þjáningu, býður hann okkur fyrirgefningu sem frelsar okkur öll frá miklu verri örlögum en hungursneyð. Hvort sem við þurfum að öðlast eða bjóða fram fyrirgefningu, þá þurfum við á einhverjum tímapunkti að gera hvort tveggja. Fordæmi Jósefs leiðir okkur til frelsarans, hinnar sönnu uppsprettu lækningar og sáttar.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
1. Mósebók 45:5–7; 47:12
„Guð hefur sent mig hingað á undan ykkur til þess að halda við kyni ykkar.“
Hafið þið tekið eftir samlíkingum í lífi Jósefs og friðþægingarhlutverki Jesú Krists? Til að sjá nokkur dæmi um þessar líkingar, reynið þá að bera saman:
-
1. Mósebók 37:3 og Matteus 3:17.
-
1. Mósebók 37:26–28 og Matteus 26:14–16.
-
1. Mósebók 45:5–7 og Lúkas 4:18.
-
1. Mósebók 47:12 og Jóhannes 6:35.
Hvaða hughrif berast um frelsarann og hlutverk hans við lestur þessara ritningarhluta?
1. Mósebók 45; 50:15–21
Fyrirgefning færir lækningu.
Þegar þið lesið um Jósef fyrirgefa bræðrum sínum fyrir þá hræðilegu hluti sem þeir gerðu honum, gætuð þið hugsað um einhvern sem þið eigið erfitt með að fyrirgefa. Eftirfarandi spurningar gætu hjálpað ykkur í þeirri viðleitni að reyna að fylgja þessari reglu:
-
Af hverju gæti það hafa reynst Jósef erfitt að fyrirgefa bræðrum sínum? (sjá t.d. 1. Mósebók 37 til að rifja upp það sem þeir gerðu honum). Hvaða reynsla eða viðhorf gæti hafa veitt Jósef styrk til að fyrirgefa? (sjá t.d. 1. Mósebók 45:1–15 eða 50:15–21).
-
Hvaða blessanir hlutust af því að Jósef fyrirgaf bræðrum sínum? Berið til að mynda saman samband fjölskyldu Jósefs í upphafi sögunnar (sjá t.d. 1. Mósebók 37:3–11) og samband hennar í lok sögunnar (sjá 1. Mósebók 45:9–15; 50:15–21). Hvernig gætu málin hafa þróast öðruvísi, ef Jósef hefði ekki verið fús til að fyrirgefa?
-
Íhugið að skrá nafn einhvers sem gæti þurft á fyrirgefningu ykkar að halda – hvort sem hann eða hún hefur beðist fyrirgefningar eða ekki. Hvað getið þið gert til að bjóða lækningarmætti frelsarans í þessar aðstæður? Ef of erfitt virðist vera að fyrirgefa, íhugið þá að rifja upp leiðsögn öldungs Gerrits W. Gong í síðustu sex málsgreinum boðskapar hans „Varanleg hamingja“ (aðalráðstefna, október 2022). Hvað finnið þið sem vekur ykkur von um að þið getið fyrirgefið?
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 64:9–11; „Forgiveness: My Burden Was Made Light“ (myndband), Gospel Library.
Forgiveness: My Burden Was Made Light
1. Mósebók 49
Jakob veitti fjölskyldu sinni spámannlegar blessanir.
Blessanir Jakobs til niðja hans hafa að geyma lifandi myndmál, en ekki er auðvelt að skilja það. Til allrar hamingju, þá sér hið endurreista fagnaðarerindi okkur fyrir einhverri hjálp við það. Þegar þið lesið um blessanirnar sem Jósef hlaut í 1. Mósebók 49:22–26, lesið þá líka eftirfarandi vers og sjáið hvaða innsýn þau veita: 1. Nefí 15:12; 2. Nefí 3:4–5; Jakob 2:25; Kenning og sáttmálar 50:44.
Þegar þið lesið um blessunina sem Júda hlaut í 1. Mósebók 49:8–12, minnist þess þá að Jesús Kristur var afkomandi Júda. Hvað finnið þið í þessum versum sem minnir ykkur á frelsarann? (sjá einnig Opinberunarbókin 5:5–6, 9; 1. Nefí 15:14–15; Kenning og sáttmálar 45:59; 133:46–50).
Lestur þessara blessana gæti innblásið ykkur til að lesa patríarkablessun ykkar – eða til að verða ykkur úti um hana, ef þið hafið ekki hlotið hana. Hvaða orð og orðtök í blessun ykkar snúa hugsunum ykkar til Jesú Krists?
Sjá einnig Randall K. Bennett, „Patríarkablessunin þín – innblásin leiðsögn frá himneskum föður,“ aðalráðstefna, apríl 2023.
1. Mósebók 50:19–21
Guð getur hjálpað mér að finna merkingu í þrengingum mínum.
Þótt Jósef hafi ekki fyllilega skilið af hverju þrengingar hans væru svo miklar meðan á mótlæti hans í Egyptalandi stóð, þá sá hann eftir á að „Guð sneri því til góðs“ (1. Mósebók 50:20). Hvernig hefðum við hughreyst Jósef, ef við hefðum getað vitjað hans í pyttinum eða í fangelsinu? Hvernig getur 1. Mósebók 50:19–21 hjálpað á erfiðleikatímum ykkar?
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 122; „Vor Guð hefur spámönnum gefið sitt mál,“ Sálmar, nr. 21.
Joseph Smith meðal spámannanna, eftir Paul Mann (hluti af mynd)
1. Mósebók 50:24–25
„Sjáanda mun Drottinn Guð minn upp vekja.“
Þegar þið lesið 1. Mósebók 50:24–25 og Þýðingu Josephs Smith á 1. Mósebók 50:24–38 (í Þýðing Josephs Smith – Viðauki), íhugið þá hvers vegna það hafi verið mikilvægt fyrir Jósef að þekkja Móse og Joseph Smith svo mörgum öldum fram í tímann. Hvernig uppfyllti Joseph Smith spádóma Jósefs um hann? (sjá Kenning og sáttmálar 1:17–23; 20:7–12; 39:11; 135:3).
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
1. Mósebók 42–44; 45:4–15
Ég get sýnt fjölskyldu minni elsku og fúsleika til að fyrirgefa.
-
Gaman gæti verið fyrir börn ykkar að leika söguna um það þegar Jósef sameinaði fjölskyldu sína aftur (sjá 1. Mósebók 42–44). Þau gætu líka þess í stað notað „Jósef og hungursneyðin“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 57–60) eða myndir í þessum lexíudrögum til að kenna hvert öðru söguna. Hér eru nokkrar spurningar sem gætu hjálpað börnum ykkar að læra af frásögninni:
-
Hvað gerði Jósef til að sýna fjölskyldu sinni elsku? (sjá 1. Mósebók 45:4–15).
-
Af hverju haldið þið að Jósef hafi fyrirgefið bræðrum sínum?
-
Hvernig haldið þið að bræðrum Jósefs hafi liðið þegar þeir komust að því að Jósef hafði fyrirgefið þeim? Hver í lífi ykkar þarfnast fyrirgefningar? Hvernig getið þið sýnt öðrum elsku og fúsleika til að fyrirgefa?
2:26Joseph and the Famine
-
Þegar þið búið ykkur undir kennslu, spyrjið þá: „Hvað munu börnin mín gera til að læra?“ Dæmi: Í þessu verkefni eru börnin ykkar að leika eða endursegja sögu. Það mun hjálpa þeim að muna bæði eftir því sem gerðist og reglum fagnaðarerindisins sem finna má í sögunni.
-
Þið eða börn ykkar gætuð viljað segja frá reynslu þar sem þau fyrirgáfu einhverjum eða einhver fyrirgaf þeim. Þið gætuð síðan sungið söng eins og „Elskið hver annan“ (Barnasöngbókin, 74) eða „Hjálpa mér, faðir“ (Barnasöngbókin, 52).
1. Mósebók 48:8–9
Drottinn hjálpar mér með prestdæmisblessunum.
-
Þið og börn ykkar gætuð horft á myndina af Jakobi blessa syni sína aftast í þessum lexíudrögum og rætt hvað þar er að gerast (sjá 1. Mósebók 48:8–9). Ef þörf er á, útskýrið þá að Jakob faðir Jósefs hafi viljað veita fjölskyldu sinni prestdæmisblessanir. Þið gætuð ef til vill miðlað hvert öðru einhverjum upplifunum sem þið hafið hlotið af því að þiggja hjálp frá Guði með prestdæmisblessun. Hverjar eru nokkrar ástæður fyrir því að við gætum beðið um prestdæmisblessun?
1. Mósebók 45:5–11
Himneskur faðir sendi Jesú Krist til að frelsa mig.
-
Hvernig getið þið hjálpað börnum ykkar að sjá frelsarann í frásögninni um Jósef bjarga fjölskyldu sinni frá hungursneyð? Íhugið að búa til töflu með tveimur dálkum merktum Jósef og Jesús Kristur. Hjálpið börnum ykkar að leita í eftirfarandi ritningarversum og fylla út töfluna með því sem Jósef og Jesús eiga sameiginlegt: 1. Mósebók 37:3 og Matteus 3:17; 1. Mósebók 37:26–28 og Matteus 26:14–16; 1. Mósebók 45:5–7 og Lúkas 4:18; og 1. Mósebók 47:12 og Jóhannes 6:35.
-
Spyrjið börn ykkar hvað það þýðir að frelsa einhvern eða bjarga einhverjum. Ef einhver þeirra hefur upplifað að vera bjargað úr hættu, bjóðið þeim þá að miðla því. Hvernig bjargaði Jósef bræðrum sínum? (sjá 1. Mósebók 42:1–3; 45:5–7). Þið gætuð síðan horft saman á mynd af frelsaranum og beðið börn ykkar að ræða hvernig Jesús frelsar okkur.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.