Kom, fylg mér
9.–15. mars. „Drottinn var með Jósef“: 1. Mósebók 37–41


„9.–15. mars. ‚Drottinn var með Jósef‘: 1. Mósebók 37–41,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„9.–15. mars. ‚Drottinn var með Jósef‘,“ Kom, fylg mér: 2026

Bræður Jósefs taka burtu kyrtilinn

Jósef og bræður hans, eftir Sam Lawlor

9.–15. mars: „Drottinn var með Jósef “

1. Mósebók 37–41

Við vitum að Guð blessar fólk sem setur traust sitt á hann og heldur boðorð hans. Stundum virðist það þó ekki vera þannig. Stundum er sú manneskja sem treystir Guði beitt ofbeldi og yfirgefin af fjölskyldumeðlimum. Stundum er sú manneskja sem neitar hugrökk að brjóta skírlífislögmálið samt ranglega ásökuð um það. Þegar svona hlutir koma fyrir okkur getum við freistast til að verða reið við Guð. Við gætum hugsað: „Hver er tilgangurinn með því að reyna að breyta rétt ef það virðist bara gera lífið erfiðara?“

Jósef, sonur Jakobs, gæti hafa velt því fyrir sér. Stundum vegnaði þessum trúfasta manni vel; á öðrum stundum virtist sem mótlætið yrði því meira sem hann var trúfastari. Jósef yfirgaf þó aldrei Drottin og Drottinn yfirgaf Jósef aldrei. Það merkir ekki að Drottinn hafi komið í veg fyrir að slæmir hlutir gerðust fyrir Jósef, heldur var „Drottinn með honum“ gegnum það allt (1. Mósebók 39:3).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

1. Mósebók 37:1–28; 39; 41:9–45

Drottinn getur verið með mér í mótlæti.

Gæfan virtist hvað eftir annað yfirgefa Jósef, en Drottinn gerði það aldrei. Þegar þið lesið sögu Jósefs, íhugið þá spurningar sem þessar: Hvað gerði Jósef til að halda sig nærri Drottni? Hvernig var Drottinn „með honum“? (sjá 1. Mósebók 39; 40:1–19; 41:9–45). Hvað lærið þið af frásögn Jósefs sem gæti hjálpað ykkur að bera kennsl á nærveru Drottins í lífi ykkar?

Þið gætuð líka spurt ykkur sjálf svipaðra spurninga. Hvaða vísbendingar hafið þið séð um að Drottinn hafi ekki yfirgefið ykkur í erfiðleikum ykkar? Íhugið hvernig þið getið miðlað fjölskyldumeðlimum og komandi kynslóðum upplifunum ykkar (sjá 1. Nefí 5:14).

Auðvitað munuð þið upplifa fleiri raunir í framtíðinni. Hvað getið þið gert núna til að tryggja að slíkar raunir dragi ykkur ekki frá Drottni? Hugleiðið að skrifa bréf til að hvetja ykkur sjálf í framtíðinni til að vera nálæg honum hvað sem fyrir ber. Þið gætuð bætt við skilningi á lífi Jósefs eða einhverju úr boðskap öldungs D. Todd Christofferson, „Samband okkar við Guð“ (aðalráðstefna, apríl 2022).

Sjá einnig Jóhannes 14:18; Rómverjabréfið 8:28; Alma 36:3; Kenning og sáttmálar 121:7–8; „Dvel hjá mér, Guð,“ Sálmar, nr. 54.

1. Mósebók 37:5–11; 40; 41:1–38

Ef ég sýni trúfesti, mun Drottinn leiða mig og veita mér innblástur.

Jósef bjó yfir þeirri gjöf að geta skilið boðskap frá Drottni í gegnum drauma. Hvað getið þið lært um móttöku og skilning á opinberunum frá Drottni í 1. Mósebók 37:5–11; 40:5–8; 41:14–25, 37–38? Hvað getið þið lært af fordæmi Jósefs þegar erfitt er að skilja opinberun? (sjá 1. Mósebók 40:8; 41:16).

Íhugið hvernig Drottinn opinberar ykkur vilja sinn. Hvað gerið þið til að framfylgja opinberun sem hann hefur gefið ykkur? Hvernig leitið þið frekari leiðsagnar frá honum?

Jósef ræður drauma

Jósef ræður drauma byrlarans og bakarans, eftir François Gérard

1. Mósebók 39:1–20

trúarskólatákn
Með liðsinni Drottins get ég flúið freistingar.

Hvað haldið þið að Jósef myndi segja ef hann ætti að veita leiðsögn um það hvernig standast megi þá freistingu að drýgja kynlífssynd? Íhugið þetta er þið lesið um upplifun hans í 1. Mósebók 39. Íhugið t.d. hvernig Jósef gæti brugðist við áhyggjumálum sem þessum:

  • Hvað er málið ef enginn annar veit hvað ég er að gera? (sjá vers 8–9).

  • Ég reyni að standast en freistingin virðist bara ekki gefa eftir (sjá vers 10).

  • Hvað ætti ég að gera þegar ég er í aðstæðum þar sem freistingin er mikil? (sjá vers 12).

Hvernig mynduð þið útskýra af hverju mikilvægt er að hlýða skírlífislögmálinu? (sjá Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum, 23–28).

Fordæmi Jósefs getur auðvitað átt við annars konar freistingar. Íhugið að gera áætlun um að forðast og standast freistingar, með fordæmi Jósefs í huga. Þið gætuð t.d. hugsað um freistingu og skrifað niður aðstæður sem ber að forðast og hvernig þið munið „flýja“ þegar freistingin gerir vart við sig.

Freisting

Aðstæður sem ber að forðast

Áætlun um viðbrögð

Hér eru nokkur fleiri ritningarvers sem gætu auðgað áætlun ykkar. Hvað lærið þið af hverju þessara atriða um það hvernig frelsarinn getur hjálpað ykkur að standast freistingar? Matteus 4:1–11; 1. Korintubréf 10:13; 1. Nefí 15:23–24; 3. Nefí 18:17–18.

Þegar þið gerið áætlun ykkar, gæti líka hjálpað að hugsa um atvik þegar ykkur hefur tekist að forðast eða standast freistingar. Hvernig liðsinnti frelsarinn ykkur? (sjá 2. Nefí 4:18–33).

1. Mósebók 41:15–57

Drottinn mun hjálpa mér að búa mig undir hugsanlega erfiðleika.

Túlkun Jósefs á draumi faraós leiddi til afar viturlegrar og hagnýtrar leiðsagnar til að lifa af hungursneyð (sjá 1. Mósebók 41:15–57). Íhugið hvaða andlegan boðskap Drottinn gæti ætlað ykkur í þessari frásögn. Hvernig finnst ykkur að hann vilji að þið búið ykkur undir erfiðleika framtíðar?

Sjá einnig David A. Bednar, „Með þessu munum við reyna þá,“ aðalráðstefna, október 2020.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta 01

Hugmyndir fyrir kennslu barna

1. Mósebók 37

Ég get sýnt fjölskyldu minni góðvild.

  • Lestur um erfiðar tilfinningar í fjölskyldu Jósefs gæti hvatt til umræðna um það hvernig okkur ber að koma fram við fjölskyldumeðlimi. Til að segja söguna um Jósef og bræður hans í 1. Mósebók 37, gætuð þið notað myndirnar í þessum lexíudrögum eða í „Innblásnir draumar Jósefs“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 47–51). Látið börn ykkar miðla því sem þau vita um söguna. Þið gætuð beðið börn ykkar að ímynda sér að þau væru í fjölskyldu Jósefs. Hvað hefðu þau sagt eða gert til að vera friðflytjendur í fjölskyldunni? Hvað felst t.d. í því að „tala vinsamlega“ í fjölskyldu okkar? (vers 4). Hvernig er Jesús Kristur friðflytjandi í fjölskyldu Guðs?

    2:17

    Joseph’s Inspired Dreams

1. Mósebók 37:18–28; 39:20–23; 41:38

Guð getur hjálpað mér þegar slæmir hlutir gerast.

  • Þegar börn ykkar standa frammi fyrir erfiðum tímum þurfa þau að vita að Drottinn verður með þeim, eins og hann var með Jósef. Þið gætuð ef til vill hjálpað börnum ykkar að skrá það erfiða sem kom fyrir Jósef (sjá 1. Mósebók 37:23–28; 39:20; eða „Innblásnir draumar Jósefs“ og „Jósef í Egyptalandi“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 47–51, 52–56). Eftir hverja þá erfiðleika sem börn ykkar finna, biðjið þau þá að endurtaka: „Drottinn var með Jósef“ (1. Mósebók 39:2).

    2:17

    Joseph’s Inspired Dreams

    2:50

    Joseph in Egypt

  • Börn ykkar gætu ef til vill leitað að orðtakinu „Drottinn var með Jósef“ í 1. Mósebók 39:1–3, 20–23 og álíka orðtökum. Látið þau miðla því hvað þeim finnst þessi orðtök merkja. Hvernig vitum við að Drottinn er með okkur? Segið hvert öðru frá því hvernig ykkur fannst Guð vera með ykkur á erfiðum tíma.

Jósef í fangelsi

Jósef frá Egyptalandi í fangelsi, eftir Jeff Ward (hluti af mynd)

1. Mósebók 39:7–12

Með liðsinni Drottins get ég flúið freistingar.

  • Hér er sýnikennsla sem getur hjálpað börnum ykkar að fylgja fordæmi Jósefs um að flýja frá eiginkonu Pótífars: Notið tvo segla til að tákna Jesú Krist og Satan. Notið lítinn málmhlut, eins og bréfaklemmu, til að tákna okkur. Látið síðan börn ykkar sjá hvernig aðdráttarafl seguls á málmhlut er sterkara þegar þau færa hlutinn nær honum. Hvernig sýnir upplifun Jósefs í 1. Mósebók 39:7–12 þennan sannleika? Hvað getum við gert til að hverfa frá synd og komast nær Jesú? Myndbandið „Temptation Fades as We Seek Christ in Every Thought“ (Gospel Library) og söngur eins og „Ver hjá mér hverja stund“ (Sálmar, nr. 31) gætu auðgað umræðurnar.

    2:58

    Temptation Fades as We Seek Christ in Every Thought

    Notið tónlist. „Sálmar og önnur helg tónlist getur hjálpað börnum að skynja elsku Guðs, finna fyrir andanum og læra sannleika fagnaðarerindisins. Laglínurnar, takturinn og einfaldir textar geta hjálpað börnum að muna sannleika fagnaðarerindisins um ókomin ár. Þegar þið syngið með börnum, hjálpið þeim þá að uppgötva og skilja reglurnar sem kenndar eru í söngvunum“ (Kenna að hætti frelsarans32).

  • Hjálpið börnum ykkar að hugsa um freistingar sem þau gætu tekist á við. Leyfið þeim að leika það hvernig þau gætu „flúið“ undan þessum freistingum.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Bræður Jósefs taka burtu kyrtilinn

Draumtúlkurinn Jósef, eftir Kristi Kirisberg Harmon

Verkefnasíða Barnafélagsins: Ég get sýnt fjölskyldu minni góðvild