„23.–29. nóvember. ‚Leitið Drottins og þér munuð lifa‘: Amos; Óbadía; Jónas,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„23.–29. nóvember. ,Leitið Drottins og þér munuð lifa‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Jónas á ströndu við Níníve, eftir Daniel A. Lewis
23.–29. nóvember: „Leitið Drottins og þér munuð lifa“
Amos; Óbadía; Jónas
Jónas var í skipi á leið til Tarsis. Það er ekkert að því að sigla til Tarsis, nema að sá staður er langt í burtu frá Níníve, þangað sem Jónas átti að fara til að flytja boðskap Guðs. Þegar skipið lenti í miklum stormi, vissi Jónas að það var vegna óhlýðni hans. Að kröfu Jónasar, köstuðu skipsfélagar hans honum út í hafdjúpið til að stöðva storminn. Það leit út fyrir endalok Jónasar og þjónustu hans. Drottinn hafði þó ekki gefist upp á Jónasi – rétt eins og hann hafði ekki gefist upp á íbúum Níníve, Ísraelsætt eða nokkru okkar.
Hann heldur því áfram að senda spámenn – eins og Jónas, Amos, Óbadía og spámenn okkar í dag – með þau skilaboð að ef við iðrumst, verður okkur ekki að eilífu vísað frá. Af öllum þeim „fyrirætlunum“ sem Guð opinberar (sjá Amos 3:7), þá er þessi ein sú dýrmætasta: að sökum Jesú Krists er ekki of seint að breytast. Hann vill áfram hjálpa okkur að lifa eftir sáttmálunum sem við gerðum við hann og hann er fús til að bjóða okkur annað tækifæri.
Til frekari upplýsingar um þessar bækur, sjá þá „Amos,“ „Óbadía“ og „Jónas“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Amos 3:1–8; 7:10–15
Drottinn opinberar sannleika fyrir tilstilli spámanna sinna.
Í Amos 3:3–6 nefndi spámaðurinn Amos dæmi um ályktanir sem við getum dregið af táknum sem við heyrum eða sjáum: Þegar ljón öskrar, hlýtur það að hafa náð bráð. Ef fugl er fastur í gildru hlýtur að hafa verið þar beita. Í versum 7–8, heimfærir Amos þessa röksemd upp á spámenn. Hvaða ályktanir getum við dregið þegar spámaður spáir? Hvað annað lærið þið um spámenn frá Amos 7:10–15?
Hvað hefur Drottinn opinberað ykkur með spámönnum sínum?
Öldungur Ulisses Soares sagði: „Það að hafa spámenn er tákn um kærleika Guðs“ („Spámenn tala með krafti heilags anda,“ aðalráðstefna, apríl 2018). Íhugið hvernig þið mynduð ljúka þessari setningu: „Ég veit að Guð elskar mig, vegna þess að hann sendir spámenn sem …“. Hér eru nokkur ritningarvers sem geta verið gagnleg: 5. Mósebók 18:18; Esekíel 3:16–17; Efesusbréfið 4:11–14; 1. Nefí 22:2; Kenning og sáttmálar 21:4–6; 84:36–38; 107:91–92.
Hvað mynduð þið segja við þann sem finnst engin þörf vera fyrir spámenn á okkar tíma?
Sjá einnig Topics and Questions, „Prophets,“ Gospel Library.
Amos 4–5
„Leitið Drottins og þér munuð lifa.“
Hvað hafði Drottinn vonað að myndi gerast eftir að Ísraelsmenn höfðu upplifað raunir, samkvæmt Amos 4:6–13? (sjá einnig Helaman 12:3). Hvernig hafa erfiðleikar ykkar veitt ykkur tækifæri til að snúa til Guðs, jafnvel þótt þeir hafi ekki verið sendir ykkur af honum.
Þegar þið lesið Amos 5:4, 14–15, íhugið þá hvernig Drottinn hefur verið ykkur miskunnsamur. Hvernig hefur það vakið ykkur líf að leita hans?
Amos 8:11–12
Orð Drottins megnar að seðja andlegt hungur og þorsta.
Þegar þið lesið Amos 8:11–12, íhugið þá ástæðu þess að hungursneyð er góð samlíking þess að lifa án orðs Guðs (sjá einnig Jóhannes 6:26–35; 2. Nefí 9:50–51; 32:3; Enos 1:4–8). Hvernig vitið þið það hvenær þið eruð andlega hungruð?
Þessi vers gætu líka átt við um fráhvarfið mikla (sjá Leiðarvísir að ritningunum, „Fráhvarf,“ Gospel Library). Hvernig hefur þessi andlega „hungursneyð“ haft áhrif á börn Guðs? Hvernig hefur endurreisnin fullnægt andlegu hungri ykkar?
Sjá einnig „The Great Apostasy“ (myndband), Gospel Library.
The Great Apostasy
Óbadía 1:21
Hverjir eru „bjargvættirnir … [á] Síonarfjalli“?
Gordon B. Hinckley forseti vísaði í Óbadía 1:21 og útskýrði að við verðum frelsarar á Síonarfjalli þegar við tökum á móti helgiathöfnum fyrir dána í musterinu (sjá „Lokaorð,“ aðalráðstefna, október 2004). Hvernig er það verk svipað – þó ekki væri nema að litlu leyti – því sem frelsarinn gerði fyrir okkur? Hvernig hefur það hjálpað ykkur að finnast þið vera nær frelsaranum að vinna þetta verk?
Sjá einnig „Holy Temples on Mount Zion,“ Hymns, nr. 289.
Jónas 1–4
Drottinn er miskunnsamur öllum þeim sem leita til hans.
Nínívebúar voru óvinir Ísraels, þekktir fyrir ofbeldi og grimmd. Jónasi fannst óraunhæft að fólkið væri reiðubúið til iðrunar. Áhugavert gæti verið að bera saman viðhorf Jónasar (sjá Jónas 1; 3–4) og tilfinningar Alma og sona Mósía (sjá Mósía 28:1–5; Alma 17:23–25). Hvað lærið þið af Jónasi 3 sem innblæs ykkur til að miðla fagnaðarerindinu, jafnvel með fólki sem ekki virðist reiðubúið til að breytast?
Þegar þið lesið Jónas, skuluð þið leita að dæmum um miskunn Drottins. Af hverju haldið þið að Jónas hafi fyllst „gremju“ og honum hafi „brunnið reiðin“ (Jónas 4:1) þegar Drottinn sýndi íbúum Níníve miskunn? Hvað haldið þið að Drottinn hafi verið að reyna að kenna honum í kafla 4? Íhugið hvernig þið hafið upplifað miskunn hans í lífi ykkar. Hvað lærið þið af Jónasi sem getur hjálpað ykkur að vera miskunnsamari?
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Þar sem þessi sunnudagur er fimmti sunnudagur mánaðarins, eru Barnafélagskennarar hvattir til að nota námsverkefnin í „Viðauki B: Búa börn undir ævilanga veru á sáttmálsvegi Guðs“.
Amos 3:7
Spámenn eru boðberar Jesú Krists.
-
Til að hjálpa börnum ykkar að skilja Amos 3:7, gætuð þið hvíslað einföldum boðskap að einu þeirra og beðið þau um að miðla hinum börnunum boðskapnum. Hvernig er boðberinn í þessu verkefni eins og spámaður? Af hverju gefur Drottinn okkur spámenn?
-
Til að læra meira um það sem spámenn gera, gætuð þið og börn ykkar rifjað upp nýlegan boðskap frá núverandi forseta kirkjunnar. Þið gætuð líka sungið söng, t.d. „Fylgið spámanninum“ (Barnasöngbókin, 58). Miðlið hvert öðru ástæðu þess að þið veljið að fylgja spámanni Guðs.
Hjálpið börnum að læra ritningarvers utanbókar. Öldungur Richard G. Scott sagði: „Að leggja ritningarvers á minnið, er líkt og að stofna til nýrrar vináttu. Það er líkt og að uppgötva nýjan einstakling, sem getur hjálpað á neyðarstundu, veitt innblástur og huggun og verið hvatning til nauðsynlegra breytinga“ („Máttur ritninganna,“ aðalráðstefna, október 2011). Til að hjálpa börnum ykkar að læra Amos 3:7 utanbókar eða hluta af því versi, gætuð þið skrifað það niður og endurtekið það saman. Þið gætuð síðan strokað út eða hulið nokkur orð í einu, þar til börn ykkar geta þulið upp allt versið eftir minni.
Amos 8:11–12
Endurreisn fagnaðarerindisins batt enda á hungursneyð fráhvarfs.
-
Bjóðið börnum ykkar að látast vera svöng er þið lesið Amos 8:11–12. Hvernig líður okkur þegar okkur hungrar eftir orði Guðs? Börn ykkar gætu ef til vill látist borða er þið miðlið hvert öðru einhverjum af ykkar uppáhaldsritningarversum.
-
Þið gætuð notað Leiðarvísi að ritningunum, „Fráhvarf“ (Gospel Library) eða „Eftir tíma Nýja testamentisins“ (í Sögur úr Nýja testamentinu, 167–70), til að hjálpa börnum ykkar að skilja „hungursneyðina“ sem átti sér stað vegna fráhvarfsins mikla og hvernig endurreisnin batt enda á hana. Miðlið hverju öðru ástæðum þess að þið eruð þakklát fyrir að Drottinn endurreisti fagnaðarerindi sitt á okkar tíma.
2:52After the New Testament
Jónas 1–3
Drottinn mun hjálpa mér að hlýða sér, jafnvel þegar það er erfitt.
-
Þið gætuð lesið „Spámaðurinn Jónas“ í Sögur úr Gamla testamentinu, til að hjálpa börnum ykkar að læra söguna um Jónas; sjá einnig verkefnasíðu þessarar viku. Þið gætuð síðan spurt:
-
Hvað gerðist þegar Jónas hlýddi ekki Drottni? (sjá Jónas 1:4–16; 2:1).
-
Hvað gerði Jónas til að iðrast? (sjá Jónas 1:10–12; 2:2–5, 10; 3:1–4).
-
Hvað gerðist þegar Jónas hlýddi? (sjá Jónas 3:5).
2:30Jonah the Prophet
-
-
Börn ykkar gætu notið þess að endursegja söguna um Jónas eða leika hana. Miðlið hvert öðru einhverjum upplifunum þar sem Drottinn vildi að þið gerðuð eitthvað sem ykkur reyndist erfitt. Hvernig hjálpaði hann ykkur að hlýða sér?
Jónas 1–4
Drottinn er miskunnsamur öllum þeim sem leita til hans.
-
Börn ykkar gætu ef til vill látist vera að taka viðtal við Jónas um upplifun hans. Hvaða spurninga myndu þau spyrja hann? Hvetjið þau til að spyrja spurninga til að komast að því hvað Jónas lærði um Drottin. Hvað gæti Jónas til að mynda sagt um miskunn Drottins? (sjá t.d. Jónas 2:8–11; 3:10; 4:2).
Kristur og lamaði maðurinn, eftir J. Kirk Richards
-
Hjálpið börnum ykkar að hugsa um dæmi þar sem frelsarinn sýndi öðrum miskunn, t.d. Markús 2:3–12; Lúkas 23:33–34; og Jóhannes 8:1–11. Þið og börn ykkar gætuð leitað að myndum af þessum dæmum. Hvaða tækifæri höfum við til að vera miskunnsöm við aðra?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.