Kom, fylg mér
30. nóvember–6. desember. „Hann hefur unun af að sýna mildi“: Míka; Nahúm; Habakkuk; Sefanía


„30. nóvember–6. desember. ‚Hann hefur unun af að sýna mildi‘: Míka; Nahúm; Habakkuk; Sefanía,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„30. nóvember–6. desember. ‚Hann hefur unun af að sýna mildi‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

maður með útrétta arma horfir upp í stjörnubjartan himininn

Í upphafi var orðið, eftir Evu Timothy

30. nóvember–6. desember: „Hann hefur unun af að sýna mildi“

Míka; Nahúm; Habakkuk; Sefanía

Að lesa Gamla testamentið, felur oft í sér lestur spádóma um eyðileggingu. Drottinn kallaði oft spámenn til að aðvara hina ranglátu við dómum sínum. Þjónusta Míka, Nahúms, Habakkuks og Sefanía eru góð dæmi um það. Í ógnvænlegum smáatriðum spáðu þessir spámenn falli borga sem á þeim tíma virtust sterkar og valdamiklar: Níníve, Babýlon og Jerúsalem. Það var þó fyrir þúsundum ára. Af hverju er dýrmætt að lesa þessa spádóma á okkar tíma?

Þótt þessum drambsömu, ranglátu borgum hafi verið eytt, eru dramb og illska ríkjandi. Við gætum jafnvel greint eitthvað slíkt í eigin hjarta. Spámenn Gamla testamentisins opinbera hvernig við getum látið af slíkri illsku. Ef til vill er það ein ástæða þess að við lesum enn orð þeirra enn á okkar tíma. Þeir voru ekki aðeins spámenn ömurlegra endaloka – þeir voru spámenn endurlausnar. Lýsingar eyðileggingar eru mildaðar með boðum um að koma til Krists og hljóta fyrirgefningu hans. Eins og Míka orðaði það, þá hefur Drottinn enga ánægju af því að fordæma okkur, heldur hefur „[hann] unun af að sýna mildi“ (Míka 7:18). Þetta var vegur Drottins til forna og þetta er vegur hans á okkar tíma. „[Vegir hans eru eilífir]“ (Habakkuk 3:6).

Til að fá yfirlit þessara bóka, sjá þá „Míka,“ „Nahúm,“ „Habakkuk“ og „Sefanía“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Míka 6:1–8

„Hvers [væntir Drottinn] af þér?“

Míka býður að við ímyndum okkur hvernig það væri að koma „fram fyrir Drottin, fram fyrir Guð á hæðum“ (Míka 6:6). Hvað finnst ykkur sagt í versum 6–8 um hvað sé Drottni mikilvægt er hann leggur mat á líf ykkar?

Sjá einnig Dale G. Renlund, „Gjörið rétt, hafið dálæti á miskunn og fram gangið í lítillæti fyrir Guði,“ aðalráðstefna, október 2020.

steinveggir virkis

„Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar“ (Nahúm 1:7).

Nahúm 1

Drottinn er bæði máttugur og miskunnsamur.

Verkefni Nahúms var að spá fyrir um eyðingu Níníve – höfuðborgar hins ofbeldisfulla heimsveldis Assýríu, sem hafði tvístrað Ísrael og misþyrmt Júda. Nahúm byrjaði á því að lýsa reiði Guðs og óviðjafnanlegum mætti hans, en talaði líka um miskunn og gæsku Guðs. Gætið að versum í kafla 1 sem hjálpa ykkur að skilja hvern þessara eiginleika – og aðra eiginleika Guðs sem þið komið auga á. Af hverju haldið þið að mikilvægt sé að vita allt þetta um Drottin?

Habakkuk

trúarskólatákn
Ég get treyst vilja og tímasetningu Drottins.

Jafnvel spámenn hafa stundum spurningar varðandi hætti Drottins. Habakkuk, sem var uppi á tíma mikils ranglætis í Júda, byrjaði heimild sína á spurningum til Drottins (sjá Habakkuk 1:1–4). Hvernig mynduð þið taka saman áhyggjumál Habakkuks? Hvaða álíka spurningar spyr fólk varðandi Guð í dag? Hafið þið einhvern tíma upplifað álíka tilfinningar? Þið gætuð einnig borið spurningar hans saman við aðrar í ritningunum, eins og þær sem má finna í Markúsi 4:37–38 og Kenningu og sáttmálum 121:1–6.

Drottinn svaraði spurningum Habakkuks með því að segja að hann myndi senda Kaldea (Babýloníumenn) til að refsa Júda (sjá Habakkuk 1:5–11). Habakkuk var þó enn áhyggjufullur, því honum virtist ósanngjarnt af Drottni að halda að sér höndum „meðan hinn rangláti [Babýlon] svelgdi í sig þann sem honum [var] réttlátari [Júda]“ (sjá vers 12–17). Hvað finnið þið í Habakkuk 2:1–4 sem innblæs ykkur til að treysta Drottni þegar þið hafið ósvaraðar spurningar? (sjá einnig Markús 4:39–40; Kenning og sáttmálar 121:7–8; „God Will Lift Us Up“ [myndband], Gospel Library).

4:59

God Will Lift Us Up

Kafli 3 er lofgjörðar- og trúarbæn Habakkuks. Hvernig er tónn Habakkuks í kafla 3 frábrugðinn kafla 1? Hér er ábending til að hjálpa ykkur að ígrunda vers 17–19: Skráið stundlegar og andlegar blessanir sem Guð hefur veitt ykkur. Ímyndið ykkur síðan að þið hafið glatað þessum stundlegu blessunum. Hvað finnst ykkur um hinar blessanirnar? Af hverju gæti verið erfitt að „gleðjast í Drottni“ (vers 18) í erfiðleikum eins og lýst er í versi 17? Íhugið hvernig þið getið þróað sterkari trú á Guð, jafnvel þótt lífið virðist ósanngjarnt?

Sjá einnig Gerrit W. Gong, „Allt okkur til velfarnaðar,“ aðalráðstefna, apríl 2024; „Lýs milda ljós,“ Sálmar, nr. 30; Topics and Questions, „Seeking Answers to Questions,“ Gospel Library.

Verið þolinmóð. Stundum viljum við svör við spurningum okkar þegar í stað, en andlegur skilningur krefst tíma og verður ekki knúinn fram. Eins og Drottinn sagði við Habakkuk: „[Bíð] engu að síður því að þetta rætist vissulega“ (Habakkuk 2:3).

Sefanía

„Leitið Drottins, allir hógværir í landinu.“

Þegar þið lesið þessa spádóma Sefanía, gætið þá að því atferli og viðhorfi sem leiddi Júda og aðra hópa til tortímingar – sjá einkum Sefanía 1:4–6, 12; 2:8, 10, 15; 3:1–4. Gætið síðan að eiginleikum þeirra sem Guð þyrmdi – sjá Sefanía 2:1–3; 3:12–13, 18–19. Hvaða boðskap haldið þið að Drottinn ætli ykkur í þessum versum?

Sefanía 3:14–20

Drottinn mun gleðjast með fólki sínu í Síon.

Eftir að hafa lesið Sefanía 3:14–20, athugið þá á hve marga vegu þið getið lokið þessari setningu: „Kætist og gleðjist af öllu hjarta,“ vegna þess að …. Hvers vegna er ykkur mikilvægt að þekkja þessar ástæður til að fagna? Þið gætuð borið þessi vers saman við þær upplifanir sem lýst er í 3. Nefí 17 og íhugað hvað Jesú Kristi finnst um fólk sitt – líka ykkur.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Míka 5:1

Jesús Kristur fæddist í Betlehem.

  • Börn ykkar vita kannski ekki að það var spádómur Míka sem hjálpaði vitringunum að finna barnið Jesú í Betlehem. Með því að nota Míka 5:1 og Matteus 2:1–6, gætu börn ykkar ef til vill endurleikið upplifun sína. Þið gætuð síðan rætt hvers vegna fæðing Jesú var svo mikilvæg að spámenn vissu um hana mörgum árum áður en hann fæddist.

þrír vitringar horfa á hina nýju stjörnu

Hið heilaga barn fæðist, eftir Dana Wood

Nahúm 1:7

„Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar.“

  • Eftir að hafa lesið Nahúm 1:7, gætu börn ykkar byggt eða teiknað einfalt „athvarf“ eða virki (mynd er af virki í þessum lexíudrögum). Hverjar eru nokkrar ástæður þess að fólk gæti þurft virki? Hvað gerir okkar tíma að „degi neyðarinnar“? Hvernig er Jesús Kristur eins og athvarf fyrir okkur?

Habakkuk 2:3

Guð mun alltaf uppfylla loforð sín.

  • Til að kynna Habakkuk 2:3, gætuð þið og börn ykkar rætt um það sem er gott en aðeins eftir að við höfum beðið eftir því – eins og ávexti sem þarf að þroskast eða deigi sem þarf að baka. Hvað myndi gerast ef við reyndum að borða ávöxtinn eða deigið áður en tilbúið væri fyrir átu? Þið getið síðan rætt um spámanninn Habakkuk, sem þráði að vita hvenær Drottinn myndi binda endi á ranglæti heimsins. Lesið svar Drottins í Habakkuk 2:3. Þið gætuð hjálpað börnum ykkar að hugsa um það sem Guð hefur lofað. Með hverju dæmi gætuð þið sagt saman: „Bíð … því að þetta rætist vissulega.“

Habakkuk 2:14

Ég get hjálpað við að fylla jörðina af þekkingu á Jesú Kristi.

  • Til að útskýra Habakkuk 2:14, gætuð þið og börn ykkar fyllt krukku eða annað ílát af myndum eða orðum sem tákna það sem Jesús gerði eða kenndi. Hvernig getum við hjálpað við að fylla heiminn af þekkingu á Drottni?

  • Þið gætuð líka sýnt börnum ykkar kort af heiminum (sjá Kirkjusögukort nr. 7, „Kort af heiminum“). Hjálpið þeim að finna staðinn þar sem þau búa á og staði þar sem trúboðar sem þau þekkja hafa þjónað. Þið gætuð líka sungið söng um að miðla fagnaðarerindinu, t.d. „Við boðum heiminum sannleikann,“ (Barnasöngbókin, 92). Hvað getum við sagt öðrum um Jesú Krist?

Sefanía 3:14–20

Jesús Kristur gleðst með þeim sem fylgja honum.

  • Í Sefanía 3:14–20 gætu börn ykkar leitað að einhverju sem vekur löngun til að „hrópa … og kætast og gleðjast af öllu hjarta“. Þið gætuð ef til vill sungið saman gleðisálma eða söngva og rætt gleðina sem þið finnið í fagnaðarerindi Jesú Krists.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Jesús brosir til barnahóps

Og hann tók litlu börnin þeirra, hvert af öðru, eftir Casey Childs

Verkefnasíða Barnafélagsins: Leitið Drottins