„7.–13. desember. ‚[Heilagleiki Drottins]“: Haggaí 1–2; Sakaría 1–4; 7–14,‘ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„7.–13. desember. ‚[Heilagleiki Drottins]‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Laie–musterið, Havaí
7.–13. desember: „[Heilagleiki Drottins]“
Haggaí 1–2; Sakaría 1–4; 7–14
Eftir áratuga ánauð var hópi Ísraelsmanna, þar á meðal líklega spámönnunum Haggaí og Sakaría, leyft að snúa aftur til Jerúsalem. Sumir í þessum hópi mundu eftir því hvernig musterið leit út áður en því var tortímt. Við þá sem efuðust um hvort þeir myndu einhvern tíma sjá musteri Drottins sem „hús í fyrri vegsemd sinni“ (Haggaí 2:3), mælti spámaðurinn Haggaí orð Drottins til hvatningar: „Hertu upp hugann, landslýður, segir Drottinn. Vinnið, því að ég er með ykkur. … Óttist ekki.“ „Ég mun fylla hús þetta dýrð. … Á þessum stað mun ég veita heill“ (Haggaí 2:4–5, 7, 9).
Það þurfti þó að endurbyggja meira en bara hið heilaga musteri. Fólk Guðs var að mörgu leyti eins og andlegar rústir. Meira þarf til að endurbyggja heilagt fólk en að höggva til steina og raða þeim til að reisa heilagt hús. Það merkir að áletrunina „[Heilagleiki Drottins]“ verður ekki aðeins að letra á veggi musterisins eða jafnvel á „bjöllur hestanna“ og „sérhvern ketil í Jerúsalem“ (Sakaría 14:20–21). Hún verður einnig að vera greypt á hvert hjarta.
Til að fá yfirlit yfir bækur Haggaís og Sakaría, sjá þá „Haggaí“ og „Sakaría“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Haggaí 1; 2:1–9
„Sjáið hvernig ykkur hefur farnast.“
Það var margt mikilvægt sem þurfti að gera til að endurbyggja Jerúsalem. Eftir að um 15 ár höfðu liðið frá því að Ísraelsmenn höfðu snúið til baka, var Drottinn ekki ánægður með að endurbygging musterisins hafði setið á hakanum (sjá Haggaí 1:2–5; sjá einnig Esrabók 4:24). Þegar þið lesið Haggaí 1; 2:1–9, hugleiðið þá spurningar sem þessar:
-
Hvaða afleiðingum stóðu Ísraelsmenn frammi fyrir vegna þess að þeir höfðu ekki lokið við musterið?
-
Hvaða blessunum lofaði Drottinn þeim, ef þeir lykju við byggingu húss hans?
-
Hver er boðskapur Drottins til ykkar í Haggaí 1:5–7? Hvernig gætuð þið samræmt forgangsatriði ykkar Drottni? Hvenær hafið þið verið blessuð fyrir að hafa Guð í fyrsta sæti í lífi ykkar?
Hinir fyrri Síðari daga heilagir stóðu frammi fyrir álíka aðstæðum og Ísraelsmenn á tíma Haggaí (sjá Kenning og sáttmálar 95). Hvað lærið þið af þessum tveimur dæmum um tilfinningar Drottins gagnvart musterinu?
Sjá einnig Dale G. Renlund, „Jesús Kristur er fjársjóðurinn,“ aðalráðstefna, október 2023; Terence M. Vinson, „Sannir lærisveinar frelsarans,“ aðalráðstefna, október 2019; „We Love Thy House, O God,“ Hymns, nr. 247; „Provo City Center Temple Completed“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
Provo City Center Temple Completed
Sakaría 1–3; 7–8; 14
Drottinn getur gert mig heilaga/n.
Hvert er gildi þess, að ykkar mati, að hafa áletrunina „Heilagleiki Drottins“ á hversdagslegum hlutum eins og þeim sem tilgreindir eru í Sakaría 14:20? (sjá einnig 2. Mósebók 28:36–38). Hvert er gildi þess að hafa hana letraða á musteri á okkar tíma? Hvaða þýðingu hefur þetta orðtak fyrir ykkur? Hvernig getið þið gert heilagleika að hluta af daglegu lífi ykkar? Íhugið þessar spurningar við lestur boða Drottins til fólks síns um að verða heilagra í Sakaría 1:1–6; 3:1–7; 7:8–10; 8:16–17.
Þið gætuð líka lesið Sakaría 2:14–15; 8:1–8; 14:9–11, 20–21, til að læra hvernig lífið verður dag einn í framtíðinni er við dveljum með Drottni í heilagleika. Hvað vekur áhuga ykkar varðandi sýn Sakaría um framtíð Jerúsalem? Hvað finnið þið þar sem þið mynduð vilja sjá í samfélagi ykkar? Hvernig getið þið búið ykkur undir að búa við þær aðstæður sem Sakaría lýsti?
„Sjá, konungur þinn kemur til þín. Réttlátur er hann og sigursæll, lítillátur og ríður asna“ (Sakaría 9:9). Sigurinnreiðin, eftir Harry Anderson
Sakaría 9:9–11; 11:12–13; 12:10; 13:6–7; 14:1–9
Jesús Kristur er hinn fyrirheitni Messías.
Nokkur ritverk Sakaría vísa bæði til jarðneskrar þjónustu Jesú Krists og til væntanlegrar síðari komu hans. Hér á eftir eru nokkrir spádómar Sakaría, ásamt ritningarversum um uppfyllingu þeirra. Spyrjið ykkur sjálf er þið lærið þessa ritningarhluta: Hvað kennir þetta mér um frelsarann?
-
Sakaría 9:9–11 (sjá Matteus 21:1–11; 1. Pétursbréf 3:18–19)
-
Sakaría 11:12–13 (sjá Matteus 26:14–16; 27:1–7)
-
Sakaría 12:10 (sjá Jóhannes 19:37; Opinberunarbókin 1:7)
-
Sakaría 13:6–7; 14:1–9 (sjá Matteus 26:31; Kenning og sáttmálar 45:47–53)
Hvernig haldið þið að það hafi verið að vera meðal fólksins sem bauð Jesú velkominn í Jerúsalem, eins og lýst er í Sakaría 9:9–11? Hvernig getið þið boðið hann velkominn í líf ykkar, á heimili ykkar og í samfélag ykkar?
Sjá einnig Leiðarvísir að ritningunum, „Messías,“ Gospel Library; „The Lord‘s Triumphal Entry into Jerusalem“ (myndband), Gospel Library; Ronald A. Rasband, „Hósanna sé æðstum Guði,“ aðalráðstefna, apríl 2023.
The Lord's Triumphal Entry into Jerusalem
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Haggaí 1:2–8
„Sjáið hvernig ykkur hefur farnast.“
-
Þegar þið lesið hluta af Haggaí 1:2–5 með börnum ykkar, hjálpið þeim þá að komast að ástæðu þess að Drottinn var ekki ánægður með fólkið. Ef til vill gætu börn ykkar valið orðtak í versi 6 og teiknað mynd af því. Þau gætu sýnt hvert öðru hana og getið sér til um hvaða orðtak hver teikning stendur fyrir. Hvernig er það að verja tíma í eitthvað annað en Drottinn vill líkt því að matast en verða ekki södd? Þið gætuð rætt saman um það hvernig þið getið helgað því tíma sem Drottni er mikilvægt.
-
Þið gætuð líka lesið vers 8 fyrir börn ykkar og boðið þeim að látast „fara upp í fjöllin“, „sækja við“ og „reisa hús [Drottins]“. Börn ykkar gætu skráð allt það sem þau gera á venjulegum degi, þar á meðal það sem Drottinn hefur beðið þau um að gera. Biðjið börn ykkar um að „sjá hvernig [þeim] hefur farnast“ með því að draga hring um það sem Drottinn gæti sagt vera það mikilvægasta á lista þeirra.
Heimilismiðuð kennsla. Russell M. Nelson forseti hefur kennt okkur að heimilið ætti vera „miðstöð trúarfræðslu“ („Verum fyrirmyndar Síðari daga heilagir,“ aðalráðstefna, október 2018). Þegar fjölskylda ykkar lærir leiðsögn Haggaí um að „sjá hvernig ykkur hefur farnast“, gætuð þið rætt hvernig setja mætti Guð í fyrsta sæti í fjölskyldulífi ykkar.
Sakaría 3:1–7
Að gera og halda sáttmála, getur hjálpað mér að verða líkari himneskum föður og Jesú Kristi.
-
Í sýn sá Sakaría æðsta prest „í óhreinum klæðum“ (Sakaría 3:3). Engill fékk honum hrein klæði. Þið gætuð hjálpað börnum ykkar að uppgötva mikilvægan sannleika með því að lesa saman Sakaría 3:1–7 og ræða hvað óhreinu fötin og hreinu fötin gætu táknað. Hvernig verðum við hrein af syndum okkar, jafnvel eftir að við erum skírð? Hvernig hjálpar skírnarsáttmálinn okkur að „ganga á [Drottins] vegum“?
-
Þið og börn ykkar gætuð skoðað mynd af skírn, eins og þá sem er í þessum lexíudrögum. Af hverju klæðumst við hvítu við skírn okkar? Þið gætuð líka sungið söng um skírn, svo sem „Þegar ég skírist“ (Barnasöngbókin, 53); hvað kennir söngurinn um ástæðu þess að Drottinn vill að við látum skírast?
Sakaría 9:9–11; 11:12; 13:6–7
Jesús Kristur er hinn fyrirheitni Messías.
-
Börn ykkar gætu viljað sjá fyrir sér atburðinn sem sagt er fyrir um í Sakaría 9:9, þegar Jesús kom til Jerúsalem í síðustu viku jarðlífs síns. Til að hjálpa við það, sýnið þeim þá mynd af atburðinum, eins og þá sem er í þessum lexíudrögum. Þið gætuð líka miðlað þeim „Frelsarinn fer til Jerúsalem“ (í Sögur úr Nýja testamentinu, 110–12). Börn ykkar gætu bent á fólk á myndunum sem „fagnar mjög“. Hver er konungurinn í Sakaría 9:9? Af hverju erum við þakklát fyrir hann?
1:35Chapter 44: The Savior Goes to Jerusalem
-
Íhugið að hjálpa börnum ykkar að bera saman spádóma í Sakaría og vers í Nýja testamentinu sem lýsa uppfyllingu þeirra. Hér eru nokkur dæmi: Sakaría 9:9 og Matteus 21:5–9; Sakaría 9:11 og 1. Pétursbréf 3:18–19; Sakaría 11:12 og Matteus 26:14–16; Sakaría 13:7 og Matteus 26:31. Hvað lærum við um frelsarann af þessum versum?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.