Kom, fylg mér
14.–20. desember. „Ég elska ykkur, segir Drottinn“: Malakí


„14.–20. desember. ‚Ég elska ykkur, segir Drottinn‘: Malakí,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„14.–20. desember. ‚Ég elska ykkur, segir Drottinn‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

stytta af Jesú með stjörnubjartan himin í bakgrunni

14.–20. desember: „Ég elska ykkur, segir Drottinn“

Malakí

„Ég elska ykkur,“ sagði Drottinn við fólk sitt með spámanninum Malakí. Ísraelsmenn, sem höfðu þjáðst um kynslóðir í mótlæti og ánauð, spurðu: „Hvernig hefur þú sýnt okkur kærleika þinn?“ (Malakí 1:2). Eftir allt sem Ísraelsmenn höfðu gengið í gegnum, gætu þeir hafa velt fyrir sér hvort saga þeirra væri í raun lýsandi fyrir elsku Guðs til sáttmálslýðs síns. Á vissan hátt er auðveldara að líta á hana sem sögu af mannlegum breyskleika og uppreisn. Guð hefur þó aldrei hætt að liðsinna í kærleika í gegnum hana alla. Þegar synir Jakobs misþyrmdu bróður sínum Jósef, bjargaði Drottinn þeim engu að síður frá hungursneyð (sjá 1. Mósebók 45:4–8). Þegar Ísraelsmenn mögluðu í eyðimörkinni, sá hann þeim fyrir manna til að borða (sjá 2. Mósebók 16:1–4). Meira að segja þegar Ísraelsmenn snéru sér að öðrum guðum og þeim var tvístrað, lofaði Guð að hann myndi safna þeim saman og frelsa þá „af mikilli miskunnsemi“ ef þeir iðruðust (sjá Jesaja 54:7). Sannlega er Gamla testamentið frásögn af þolinmæði og varanlegri elsku Guðs. Okkar tími er framhald á þessari frásögn. Jesús Kristur, „sól réttlætisins“ eins og Malakí kallaði hann, hefur komið og „vængir hennar færa lækningu“ (Malakí 3:20). Hann er æðsta staðfesting á elsku Guðs fyrir hinn forna Ísrael og fyrir okkur öll.

Til að fá yfirlit Malakíbókar, sjá þá „Malakí“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Malakí 1–3

„Snúið aftur til mín, þá sný ég aftur til ykkar.“

Á tíma Malakís, höfðu Ísraelsmenn þegar byggt musterið í Jerúsalem, en þurftu þó enn að endurbyggja samband sitt við Drottin. Þegar þið lærið Malakí, leitið þá spurninga sem Drottinn spurði Ísraelsmenn eða þeir spurðu hann. Íhugið að spyrja ykkur sjálf álíka spurninga (dæmi um þær eru hér á eftir) til að hjálpa ykkur að leggja mat á samband ykkar við Drottin og komast nær honum.

  • Hvernig hef ég fundið elsku Drottins til mín? (sjá Malakí 1:2).

  • Eru fórnir mínar í þágu Drottins sannlega honum til heiðurs? (sjá Malakí 1:6–11).

  • Á hvaða hátt þarf ég að „snúa aftur“ til Drottins? (sjá Malakí 3:7).

  • Er ég á einhvern hátt að pretta Guð? (sjá Malakí 3:7–11).

  • Hvernig endurspeglar viðhorf mitt á erfiðum tímum tilfinningar mínar til Drottins? (sjá Malakí 3:13–15; sjá einnig 2:17).

Malakí 1:6–14

Drottinn fer fram á „hreina fórnargjöf“.

Þegar þið lesið um fórnirnar sem greint er frá í Malakí 1, hverju takið þið þá eftir varðandi fórnirnar sem prestarnir buðu fram? Hvað gefa þessar fórnir í skyn um tilfinningar prestanna til Drottins? (sjá Malakí 1:13). Hugleiðið að skrá fórnargjafir ykkar eða fórnir sem þið færið Drottni. Íhugið hvert atriði á listanum og tilgreinið hvað myndi gera fórnina að „óhreinni“ gjöf eða „hreinni“ gjöf (Malakí 1:7, 11).

Malakí 3:7–12

trúarskólatákn
Drottinn opnar gáttir himins þegar ég sýni trú mína með því að greiða tíund.

Ímyndið ykkur að þið eigið vin sem var að komast að því að þið greiðið tíund. „Hvers vegna gerirðu þetta?“ spyrði vinur ykkar. Ígrundið þessa spurningu við lestur Malakís 3:7–12. Hvað finnið þið þar sem gæti hjálpað við að svara spurningu vinar ykkar? Hvað annað mynduð þið vilja að vinur ykkar skildi varðandi tíund? Til frekari hjálpar, gætuð þið kannað boðskap öldungs Neil L. Andersen, „Tíund: Opna flóðgáttir himins“ (aðalráðstefna, október 2023), og leitað svara við spurningum sem þessum:

  • Af hverju vill Drottinn að við greiðum tíund?

  • Hvað gæti komið í veg fyrir að einhver greiði tíund og hvernig getum við yfirstigið þær hindranir?

  • Hvernig styrkir tíundargreiðsla trú okkar á himneskan föður og Jesú Krist?

Þið gætuð líka sagt vini ykkar frá því hvernig Drottinn hefur blessað ykkur þegar þið greiðið tíund. Þið getið fundið hugmyndir í hlutanum „Lexía nr. 1 – Markverðar en óljósar blessanir“ í boðskap öldungs Davids A. Bednar, „Flóðgáttir himins“ (aðalráðstefna, október 2013). Hvers konar fólk verðum við með því að greiða tíund?

Hver gæti verið merking orðtaksins „ljúka upp flóðgáttum himins“ (vers 10)? Þið gætuð ef til vill horft út um gluggagátt og íhugað hlutverk glugga. Hvers vegna eru „flóðgáttir himins“ góð leið til að lýsa því hvernig Drottinn blessar okkur þegar við greiðum tíund?

Jesús birtist Joseph Smith í Kirtland-musterinu

Sýn í Kirtland-musterinu, eftir Gary E. Smith

Malakí 3:23–24

„Ég sendi Elía spámann til ykkar.“

Þegar Moróní vitnaði í Malakí 3:23–24 fyrir Joseph Smith, gerði hann það „með nokkru fráviki frá“ Biblíunni (Joseph Smith – Saga 1:36–39). Hverju bætir frávik Morónís við skilning ykkar á þessum spádómi? Íhugið einkum spurningar sem þessar:

  • Hverjir eru „feðurnir“? (sjá 5. Mósebók 29:12). Hvaða loforð hafa þeim verið gefin? (sjá Abraham 2:9–11). Hvernig hjálpið þið við að uppfylla þessi loforð?

  • Hvaða upplifanir hafa hjálpað ykkur að snúa hjörtum ykkar til áa ykkar? Af hverju er það svo mikilvægt áætlun himnesks föður?

Til að læra meira um komu Elía og hvernig þessi spádómur er að uppfyllast á okkar tíma, sjá þá Kenningu og sáttmála 110:13–16 og D. Todd Christofferson, „Innsiglunarvaldið“ (aðalráðstefna, október 2023). Af hverju eruð þið þakklát fyrir komu Elía?

Sjá einnig Gerrit W. Gong, „Öll eigum við okkur sögu,“ aðalráðstefna, apríl 2022; „Turn Your Hearts,“ Hymns, nr. 291; „The Sealing Power“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.

3:38

The Sealing Power

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Malakí 1:2

Drottinn elskar mig.

  • Hvernig mynduð þið og börn ykkar svara spurningunni í Malakí 1:2 – „Hvernig hefur [Drottinn] sýnt okkur kærleika [sinn]?“ Miðlið hverju öðru ástæðum þess að þið vitið að hann elskar ykkur. Börn ykkar gætu ef til vill teiknað myndir sem minna þau á kærleika hans.

Fáið börnin til að taka þátt í umræðum um fagnaðarerindið. Ef þið kennið yngri börnum, gætuð þið þurft að hugsa upp skapandi leiðir til að fá þau til að taka þátt í umræðum um fagnaðarerindið. Dæmi: Börn ykkar gætu látið bolta ganga á milli sín; þegar þau halda á boltanum, gætu þau miðlað einni ástæðu þess að þau vita að Jesús elskar þau.

foreldrar og ungur drengur horfa út um glugga

Malakí 3:7–12

Drottinn mun blessa mig þegar greiði tíund.

  • Hvernig munið þið hjálpa börnum ykkar að læra um tíund? Þið gætuð beðið þau að telja tíu smáhluti, svo sem smápeningana á verkefnasíðu þessarar viku. Þau gætu síðan aðskilið einn hlutanna frá hinum – þetta er magnið sem við gefum Drottni sem tíund. Hvers vegna vill Drottinn að við greiðum tíund, samkvæmt Malakí 3:7–12? (sjá einnig „Spámaðurinn Malakí“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 171–72; „First Things First!“ [myndband], Gospel Library).

    0:58

    Malachi the Prophet

    1:18

    First Things First!

  • Þegar þið lesið saman Malakí 3:10, gætuð þið boðið börnum ykkar að standa við glugga þegar þið lesið orðtakið „flóðgáttir himins“. Þið gætuð líka hellt vatni í bolla þar til flæðir yfir barmana, til að útskýra orðtakið: „Helli yfir ykkur óþrjótandi blessun.“ Segið börnunum frá þeim blessunum sem Guð hefur veitt ykkur við greiðslu tíundar. Börn ykkar gætu teiknað myndir sem tákna þessar blessanir og hengt þær á eða við glugga á heimili ykkar.

Malakí 3:23–24

Elía kom til að snúa hjörtum okkar til ættmenna okkar.

  • Í Malakí 3:23–24 gætu börn ykkar leitað svara við eftirfarandi spurningum um spádóm Malakís: Hvern lofaði Drottinn að senda? Hvenær sagði hann að þessi sendiboði myndi koma? Hvað sagði Drottinn að þessi sendiboði myndi gera? Af hverju þurfti þessi sendiboði að koma? Hvar var þessi spádómur uppfylltur? (sjá Kenning og sáttmálar 110:13–16).

  • Til að komast að því hvernig loforðið í Malakí 3:23 var uppfyllt, getið þið líka rifjað upp „Joseph og Oliver fá prestdæmislykla“ í Sögur úr Kenningu og sáttmálum, 26–30. Söngur eins og „The Hearts of the Children“ (Children‘s Songbook, 92) getur hjálpað börnum ykkar að læra ástæðu þess að svo mikilvægt var að Elía kæmi. Þið gætuð líka farið á FamilySearch.org/discovery, FamilySearch Tree-appið eða notað bæklinginn Fjölskylda mín og ættmenni fyrir verkefni sem geta hjálpað ykkur og börnum ykkar að snúa hjörtum ykkar að áum ykkar.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

kona veifar hvítum vasaklút

Hósannahróp Mourning, eftir Rose Datoc Dall Kona að nafni Mourning í andaheiminum, umlukt áum sínum. Hún fagnar endurlausn þeirra frá andlegri ánauð.

Verkefnasíða Barnafélagsins: Drottinn blessar mig þegar ég greiði tíund