Kom, fylg mér
21.–27. desember. „Vér höfum vonað á [hann] og hann mun frelsa oss“: Jól


„21.–27. desember. ‚Vér höfum vonað á [hann] og hann mun frelsa oss‘: Jól,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„21.–27. desember. ‚Vér höfum vonað á [hann] og hann mun frelsa oss‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

barnið Jesús sofandi

Því barn er oss fætt, eftir Simon Dewey

21.–27. desember: „Vér höfum vonað á [hann] og hann mun frelsa oss“

Jól

Gamla testamentið ber anda mikillar eftirvæntingar. Á þann hátt er það svolítið eins og jólatíðin. Eftirvæntingin um betri tíma hófst hjá Adam og Evu og viðhélst síðan hjá ættfeðrunum, spámönnunum, sálmaskáldunum og fólki sem er fullt vonar um endurnýjun og endurlausn Messíasar. Ísraelsmenn þurftu líka oft á þessari von að halda – hvort sem þeir voru í ánauð í Egyptalandi eða Babýlon eða í ánauð vegna eigin synda eða mótþróa. Í gegnum það allt áminntu spámenn þá um að Messías, bjargvættur, myndi „boða föngum lausn“ (Jesaja 61:1).

Sú von tók að verða að veruleika þegar Jesús Kristur fæddist í Betlehem. Hinn máttugi bjargvættur Ísraels var fæddur í fjárhúsi og lagður í jötu (sjá Lúkas 2:7). Hann var þó ekki aðeins bjargvættur hins forna Ísraels. Hann kom til að frelsa ykkur – bera sorg ykkar, bera harm ykkar, vera kraminn fyrir misgjörðir ykkar, svo að þið yrðuð heilbrigð fyrir benjar hans (sjá Jesaja 53:4–5). Þetta er ástæða þess að jólin eru full tilhlökkunar og eftirvæntingar, jafnvel á okkar tíma. Messías kom fyrir rúmum 2.000 árum og heldur áfram að koma inn í líf okkar, hvenær sem við leitum hans.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

trúarskólatákn
Ég fagna í lausnara mínum.

Jólin eru þekkt sem gleðitími, sökum gleðinnar sem Jesús Kristur færir í heiminn. Mörgum öldum fyrir fæðingu frelsarans, fundu spámenn Gamla testamentisins gleðina af því að ræða um komu Messíasar. Lesið eitthvað af eftirfarandi ritningarversum og íhugið ástæðu þess að þau voru dýrmæt þeim sem væntu þjónustu frelsarans: Sálmarnir 35:9; Jesaja 25:8–9; 44:21–24; 51:11; Sefanía 3:14–20; HDP Móse 5:5–11. Af hverju eru þessi vers ykkur dýrmæt? Hvaða ástæður gefa þessi ritningarvers fyrir því að vera gleðrík?

Sjá einnig Dallin H. Oaks, „Mikil gleðitíðindi“ (jólasamkoma Æðsta forsætisráðsins, 4. des. 2022), Gospel Library; „Fagna þú veröld,“ Sálmar, nr. 76.

björt stjarna á næturhimni

Tákn geta hjálpað mér að hafa Jesú Krist í huga.

Margar hefðir sem tengjast jólum geta haft táknræna merkingu sem vísar til Krists. Þegar þið lærðuð Gamla testamentið á þessu ári, gætuð þið hafa veitt athygli hinum mörgu táknum um frelsarann. Nokkur þeirra eru tilgreind hér á eftir. Íhugið að læra þau og skrá það sem þau kenna ykkur um hann.

  • Stjarna (4. Mósebók 24:17; Matteus 2:2; Opinberunarbókin 22:16).

  • Hirðir (Sálmarnir 23; Lúkas 15:4–7; Jóhannes 10:11)

  • Lamb (1. Mósebók 22:8; 2. Mósebók 12:5; 1. Pétursbréf 1:18–20).

  • Vatn (2. Mósebók 17:1–6; Jeremía 2:13; Esekíel 47:1–12; Jóhannes 4:7–14).

  • Klettur (1. Samúelsbók 2:2; 2. Samúelsbók 22:2–3; Sálmarnir 118:22–23; Jesaja 28:16; Efesusbréfið 2:20).

  • Kvistur (Jesaja 11:1–2; Jeremía 23:5; 33:15).

  • Ljós (Sálmarnir 27:1; Jesaja 9:1; 60:19; Míka 7:8; Jóhannes 8:12).

Hvaða önnur tákn, vers og frásagnir hafið þið fundið í ritningunum sem vitna um Jesú Krist?

Sjá einnig 2. Nefí 11:4; Mósía 3:14–15; HDP Móse 6:63; „Tákn um fæðingu og dauða Jesú Krists“ og „Jesús Kristur,“ hvort tveggja í Leiðarvísi að ritningunum (Gospel Library).

„Hann skal nefndur: Undraráðgjafi.“

Jesús Kristur hefur mörg ólík og mismunandi nöfn og titla. Gætið að titlum í eftirfarandi versum: Sálmarnir 23:1; 83:18; Jesaja 7:14; 9:5; 12:2; 63:16; Amos 4:13; Sakaría 14:16; HDP Móse 7:53. Hvaða fleiri nöfn dettur ykkur í hug? Þið gætuð jafnvel notið þess að skrá þá titla Jesú Krists sem þið finnið í jólasálmum. Hvaða áhrif hefur hvert nafn eða titill á tilfinningar ykkar til hans?

Íhugið að velja titil eða hlutverk frelsarans sem mun hjálpa ykkur að hafa hann í huga á komandi ári.

Sjá einnig Quentin L. Cook, „Persónulegur friður á krefjandi tímum,“ aðalráðstefna, október 2021; „Ljós heimsins,“ Sálmar, nr. 80.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Gamla testamentið kennir mér um Jesú.

  • Þið og börn ykkar gætuð átt jólaskraut sem þið getið notað til að hefja samtal um Jesú Krist. Þið gætuð ef til vill rætt um það hvernig jólastjarna, ljós eða gjöf minnir okkur á frelsarann. Þið gætuð síðan leitað í einu eða fleiri eftirfarandi ritningarversum að einhverju sem gæti verið táknrænt fyrir Jesú Krist: 1. Mósebók 22:8; 4. Mósebók 24:17; Sálmarnir 23:1; 27:1. Börn ykkar gætu ef til vill haldið á lofti mynd eða skreytingu sem passar við hvert vers er þau lesa það. Hvernig er Jesús eins og lamb, stjarna, hirðir eða ljós? Íhugið að syngja saman jólalag, eins og „Jólanótt“ (Barnasöngbókin, 24).

  • Börn ykkar gætu líka skoðað myndina aftast í þessum lexíudrögum þegar þið lesið Jesaja 9:5 fyrir þau. Biðjið börn ykkar að benda á Jesúbarnið þegar þau heyra orðtakið „barn er oss fætt“. Miðlið vitnisburði ykkar um að spámenn í Gamla testamentinu vissu að Jesús myndi fæðast.

  • Þegar þið búið ykkur undir að læra um líf Jesú Krists í Nýja testamentinu á næsta ári, íhugið þá að rifja upp með börnum ykkar það sem þið lærðuð um hann á þessu ári í Gamla testamentinu. Þið gætuð farið yfir lexíudrögin í þessari kennslubók og allar persónulegar glósur, til að rifja upp það sem þið lærðuð. Ung börn gætu haft gagn af að fletta í Sögur úr Gamla testamentinu eða skoða myndirnar í Kom, fylg mér. Hvaða spádómar eða frásagnir vöktu mestan áhuga? Hvað hafið þið lært um frelsarann?

Jólahefðir geta vísað til Jesú Krists.

  • Fjölskyldur Ísraelsmanna höfðu hefðir eins og páska og aðrar hátíðir, sem ætlað var að beina hjarta þeirra og huga til Drottins (sjá 2. Mósebók 12). Hvaða hefðir haldið þið og börn ykkar á jólum sem hjálpa ykkur að einblína á Jesú Krist? Hvaða hefðir vitið þið um úr ættarsögu ykkar? Þið gætuð íhugað að ræða við börn ykkar um einhverjar hefðir sem þið vilduð koma á. Hugmyndir gætu t.d. verið að þjóna einhverjum sem þarfnast þess, velja eitthvað sem þið munið bera fram sem „gjöf“ til frelsarans, bjóða vini að horfa á jólasamkomu Æðsta forsætisráðsins með ykkur (broadcasts.ChurchofJesusChrist.org), yrkja ykkar eigin jólasöng eða finna frumlegar leiðir til að miðla boðskap um fæðingu Krists.

Á heimilinu er lærdómurinn og lífið óaðskiljanlegt. „Fagnaðarerindið skiptir strax máli á heimilinu. Þar er fólkið sem lærir með ykkur um fagnaðarerindið, fólkið sem þið lifið það með – daglega. Í raun lærum við fagnaðarerindið oftast þegar við lifum eftir því. Þegar þið lærið og kennið fagnaðarerindið á heimilinu, leitið þá leiða til að tengja það sem þið eruð að læra við það sem þið eruð að gera. Leyfið fagnaðarerindinu á heimilum ykkar að vera eitthvað sem þið leggið ykkur fram við að lifa eftir, ekki bara eitthvað sem þið talið um“ (Kenna að hætti frelsarans31).

sviðsmynd af jólasögunni

Myndskreyting af jólasögunni, eftir Ethan Brown

Himneskur faðir gaf mér son sinn að gjöf sem frelsara minn.

  • Hvernig getið þið hjálpað börnum ykkar að finna lotningu og gleði vegna fæðingar Krists? Þið gætuð horft á myndbandið „Barnið Kristur: Jólasaga“ (kirkjajesukrists.org/kristsbarnid-jolasaga) eða lesið saman Matteus 1:18–25; 2:1–12; Lúkas 1:26–38; 2:1–20. Hvert barn gæti valið einstakling í myndbandinu eða frásögn ritninganna og miðlað tilfinningum sínum til frelsarans. Þið gætuð síðan miðlað hvert öðru tilfinningum ykkar til hans.

    17:56

    The Christ Child

  • Þið og börn ykkar gætuð ef til vill rætt um gjafir sem þið hafið gefið eða hlotið gegnum árin sem hafa fært gleði. Þið gætuð síðan lesið saman Jesaja 25:9 og rætt ástæður þess að þið fagnið því að himneskur faðir hafi sent okkur frelsara. Til að hjálpa börnum ykkar að skilja betur hlutverk Jesú Krists sem frelsara okkar, bjóðið þeim þá að lesa Jesaja 25:8–9; 53:3–5; og Hósea 13:14. Hvað kenna þessi ritningarvers okkur um það hvernig Drottinn frelsar okkur?

  • Þið gætuð líka sungið saman jólasöng, t.d. „Í jötu“ (Barnasöngbókin, 26) eða „Ó, borgin litla Betlehem“ (Sálmar, nr. 81). Hjálpið börnum ykkar að finna orðtök í söngnum sem hjálpa þeim að vita að himneskur faðir og Jesús Kristur elska þau.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

sviðsmynd af jólasögunni

Jólasagan, eftir N. C. Wyeth

Verkefnasíða Barnafélagsins: Gamla testamentið kennir mér um Jesú