„9.–15. nóvember. ‚Enginn annar Guð er til sem megnar að frelsa‘: Daníel 1–7,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„9.–15. nóvember. ‚Enginn annar Guð er til sem megnar að frelsa‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Daníel ræður draum Nebúkadnesars, eftir Grant Romney Clawson
9.–15. nóvember: „Enginn annar Guð er til sem megnar að frelsa“
Daníel 1–7
Ólíklegt er að nokkur muni hóta því að kasta ykkur í eldsofn eða ljónagryfju, vegna trúar ykkar á Jesú Krist. Ekkert okkar kemst þó frá þessu lífi án trúarprófrauna. Við getum öll lært af fordæmi manna eins og Daníels, Sadraks, Mesaks og Abed–Negós, sem á unga árum voru teknir til fanga af hinu volduga heimsveldi Babýlon (sjá 2. Konungabók 24:10–16). Mitt í framandi menningu ólíkra gilda, tókust þeir á við miklar freistingar um að hverfa frá trú sinni og réttlátum hefðum. Þeir héldu þó sáttmála sína staðfastlega. Hvernig fóru þeir að þessu? Með því að gera hið smáa og einfalda sem Guð býður okkur öllum að gera – biðja, fasta, velja góða vini, treysta Guði og vera öðrum ljós. Líkt og Jósef í Egyptalandi og Ester í Persíu, héldu Daníel og vinir hans trú sinni á Guð og Guð gerði kraftaverk sem enn innblása trúaða á okkar tíma.
Til að fá yfirlit yfir bók Daníels, sjá þá „Daníel“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Daníel 1; 3; 6
Ég get sett traust mitt á Drottin þegar reynir á trú mína.
Að sumu leyti dveljum við öll í Babýlon. Við stöndum oft frammi fyrir freistingum um að hvika frá stöðlum okkar og snúa frá trúnni á Krist. Þegar þið lesið Daníel 1, 3 og 6, gætið þá að því hvernig þrýst var á Daníel, Sadrak, Mesak og Abed–Negó til að gera það sem þeir vissu að væri rangt. Hvernig brugðust þeir við þessum aðstæðum? (sjá Daníel 1:10–13; 3:15–18; 6:11). Hver var niðurstaðan af trú þeirra? Hvað lærið þið af þessum upplifunum sem getur hjálpað ykkur að treysta Drottni í mótlæti? Hugleiðið líka eftirfarandi spurningar:
-
Hvenær hafið þið fundið fyrir þrýstingi til að gera eitthvað sem þið vissuð að var rangt? Hvernig hefur Drottinn blessað ykkur fyrir að halda boðorð hans?
-
Hvað ef trú okkar leiðir ekki til þeirra kraftaverka sem þið leitist eftir? (sjá dæmi í Alma 14:8–13). Hvernig teljið þið að Sadrak, Mesak og Abed–Negó hefðu svarað þessari spurningu, byggt á því sem þið lásuð Daníel 3:13–18? Hvernig getur fordæmi þeirra haft áhrif á það hvernig þið takist á við prófraunir ykkar?
-
Hvernig getur réttlátt val ykkar vakið öðrum sterka trú á Drottin? (sjá Daníel 2:47; 3:28–29). Íhugið áhrifin sem val ykkar gæti haft á aðra.
Sjá einnig Dieter F. Uchtdorf, „Óttast ekki, trú þú aðeins,“ aðalráðstefna, október 2015.
Reynið að hafa alla með. Frelsarinn „býður … öllum sem einum að koma til sín og verða gæsku sinnar aðnjótandi“ (2. Nefí 26:33). Ef þið eruð að kenna fjölskyldu ykkar eða námsbekk, íhugið þá hvernig þið getið á einhvern hátt veitt öllum tækifæri til þátttöku. Dæmi: Þið gætuð látið hvern einstakling fá ritningarhluta, hluta af ráðstefnuboðskap eða vers úr sálmi til að ígrunda og skrifa um athugasemdir. Ekki þrýsta á neinn til að taka þátt, en gefið þeim tækifæri.
Sadrak, Mesak og Abed–Negó í eldsofninum, eftir William Maughan
Daníel 2
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er ríki Guðs á jörðu.
Daníel sá með opinberun að draumur Nebúkadnesars sagði fyrir um veraldleg konungsríki framtíðar, sem og ríki Guðs í framtíð, sem „aldrei mun hrynja“ (Daníel 2:44). „Kirkjan er það síðari daga ríki sem spáð var fyrir um,“ kenndi D. Todd Christofferson, „ekki skapað af manni en stofnað af Guði á himnum og mun velta áfram eins og steinninn sem ‚losnaði úr fjallinu, án þess að nokkur mannshönd kæmi við hann‘, til að fylla jörðina“ („Hvers vegna kirkjan,“ aðalráðstefna, október 2015). Hugsið um síðari daga ríki Guðs er þið lesið lýsinguna um steininn í Daníel 2:34–35, 44–45. Hvert er hlutverk ykkar í því að hjálpa þessum spádómi að uppfyllast?
Sjá einnig „Heyrið og nemið himnanna óð,“ Sálmar, nr. 105; „God Gave Them Knowledge“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
God Gave Them Knowledge
Daníel 2:1–30
Það krefst andlegs undirbúnings að hljóta opinberun.
Þegar þið lesið Daníel 2:1–15, íhugið þá hvernig ykkur myndi líða ef þið væruð í sporum Daníels. Hvað gerði Daníel? (sjá Daníel 2:16–18). Hvað getum við lært um það hvernig Guð undirbjó Daníel í Daníel 1:17? Hvað getið þið lært af orðum og gjörðum Daníels, eftir að hann hlaut aðstoð Drottins? (sjá Daníel 2:19–30).
Daníel 7:13–14
Jesús Kristur er sonur hins eilífa föður.
Í jarðneskri þjónustu frelsarans, töldu margir Gyðingar að titillinn „mannssonur“ í Daníel 7:13 vísaði til hins væntanlega Messíasar. Hvað lærið þið um Messías af Daníel 7:13–14? (sjá einnig HDP Móse 6:57).
Frelsarinn vísar oft til sjálfs síns sem „mannssonarins“. Íhugið að rifja upp nokkur dæmi: Matteus 25:31; Markús 9:31; 10:45. Hvað kennir hann um sjálfan sig í þessum versum? Í Markúsi 14:61–64 notaði Jesús þennan titil á síðasta degi jarðlífs síns. Gætið að viðbrögðum fólksins sem hlýddi á yfirlýsingu hans. Hvernig hefur spádómur Daníels um mannssoninn áhrif á tilfinningar ykkar varðandi það sem gerðist í Markúsi 15?
Á sama hátt og Jesús var hataður fyrir að lýsa yfir að hann væri „mannssonurinn“, gætuð þið líka orðið fyrir aðkasti fyrir að boða sannleikann. Gerið samanburð á spádómnum í Daníel 7:13–14 og loforðunum í Kenningu og sáttmálum 121:29, 46.
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 49:6; Leiðarvísir að ritningunum, „Mannssonur“, Gospel Library.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Daníel 1; 3; 6
Jesús mun hjálpa mér að gera það sem rétt er, jafnvel þegar það er erfitt.
-
Til að hjálpa börnum ykkar að læra af hvetjandi sögum Daníelsbókar, gætuð þið fundið myndir af atburðunum í Daníel 1, 3 og6 (sjá verkefnasíðu þessarar viku eða í Trúarmyndabók, nr. 23, 25, 26). Þið gætuð síðan sett myndirnar á hvolf og beðið barn að snúa einni við og ræða söguna sem myndin táknar. (Fyrir hjálp, sjá þá „Daníel og vinir hans,“ „Sadrak, Mesak og Abed–Negó,“ og „Daníel og ljónagryfjan“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 154–56, 160–62, 163–65.)
1:39Daniel and His Friends
1:39Shadrach, Meshach, and Abed-nego
1:45Daniel and the Lions’ Den
-
Hjálpið börnum ykkar að hugsa um aðstæður þar sem þrýst gæti verið á þau til að taka rangar ákvarðanir, eins og gert var við Daníel og vini hans í Daníel 1, 3 og 6. Miðlið hvert öðru hvernig þið hafið verið blessuð fyrir að taka rétta ákvörðun, jafnvel þegar það var erfitt. Þið gætuð líka sungið saman söng sem tengist efninu, t.d. „Veldu rétt“ (Sálmar, nr. 98).
Reiða sig á á visku orðsins
Daníel 1:1–17
Himneskur faðir vill að ég hirði vel um líkama minn.
-
Lestur sögunnar um Daníel og vini hans afþakka mat og vín konungs, gæti hvatt til umræðna um heilbrigðislögmálið sem himneskur faðir hefur gefið okkur í dag (sjá Kenning og sáttmálar 89). Þið gætuð ef til vill gætt að þeim blessunum sem Daníel og vinir hans hlutu og borið þær saman við fyrirheitnar blessanir Vísdómsorðsins (sjá Daníel 1:15–17 og Kenning og sáttmálar 89:18–21).
Daníel 2
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er ríki Guðs á jörðu.
-
Þegar þið lesið Daníel 2:31–35, 44–45 með börnum ykkar, gætuð þið boðið þeim að teikna mynd af draumi Nebúkadnesars. Hjálpið þeim að skilja að steinninn í draumnum tákni Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Hvað lærum við um kirkjuna af þessum draumi? Börn ykkar gætu nefnt nokkra hluti sem himneskur faðir gerði til að koma kirkju sinni á fót á síðari dögum. Ef þau þurfa aðstoð, gætuð þið sýnt myndir frá atburðum endurreisnar kirkjunnar (sjá Trúarmyndabók, nr. 90–95).
Daníel 6
Himneskur faðir vill að ég biðjist oft fyrir.
-
Af hverju var það Daníel svo mikilvægt að biðja til himnesks föður? Þið og börn ykkar gætuð ef til vill rætt þessa spurningu er þið lesið saman Daníel 6. Þið gætuð síðan sagt hvert öðru frá ástæðu þess að bæn er ykkur mikilvæg. Börn ykkar gætu haft gaman að því að teikna myndir af sér sjálfum biðjast fyrir við hinar ýmsu aðstæður. Þau gætu notað teikningarnar sínar til að kenna hvert öðru að við getum beðið til himnesks föður, hvar sem við erum eða um hvað sem við þurfum.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.