„16.–22. nóvember. ‚Ég ætla að … elska þá af frjálsum og fúsum vilja‘: Hósea 1–6; 10–14; Jóel,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„16.–22. nóvember. ‚Ég ætla að … elska þá af frjálsum og fúsum vilja‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
16.–22. nóvember: „Ég ætla að … elska þá af frjálsum og fúsum vilja“
Hósea 1–6; 10–14; Jóel
Sáttmála Ísraels við Drottin var ætlað að vera af slíku mikilvægi að Drottinn líkti honum við hjónaband. Í sáttmálanum fólst eilíf skuldbinding, eins og í hjónabandi, sameiginlegar upplifanir, að byggja upp líf saman, algjör tryggð og mest um vert, að elska af öllu hjarta. Því miður voru Ísraelsmenn ekki trúir sáttmála sínum. Samt voru skilaboð Drottins til þeirra ekki: „Ég mun hafna ykkur að eilífu.“ Þess í stað var hann: „Ég býð þér að koma til baka“ (sjá Hósea 2:16–17). „Ég festi þig mér í réttlæti,“ lýsti hann yfir með Hósea spámanni (Hósea 2:21). „Ég ætla að lækna tryggðarof þeirra og elska þá af frjálsum og fúsum vilja“ (Hósea 14:5). Þetta er sami boðskapur hans til okkar, er við reynum að lifa eftir sáttmálum okkar af elsku og hollustu.
Jóel miðlaði álíka boðskap: „Snúið aftur til Drottins, Guðs yðar. Miskunnsamur er hann og líknsamur, seinn til reiði og gæskuríkur“ (Jóel 2:13). Lestur orða þessara spámanna gæti hvatt ykkur til að íhuga eigið samband við Drottin – til að íhuga hvernig trúfesti hans við ykkur innblæs ykkur til að vera honum trúföst.
Til að fá yfirlit yfir bækur Hósea og Jóels, sjá þá „Hósea“ og „Jóel“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Hósea 1–3; 14
Drottinn býður mér alltaf að koma aftur til sín.
Gómer, eiginkona Hósea, var honum ótrú og Guð tilgreindi þann dapurlega atburð til að kenna Ísraelsmönnum hvað honum fannst um þá og sáttmála þeirra við hann. Þegar þið lesið Hósea 1–3, íhugið þá hvaða augum Drottinn lítur samband sitt við sáttmálslýð sinn. Hvað er líkt með því að gera sáttmála við Drottin og að ganga í hjónaband? Hvað er líkt með því að rjúfa þann sáttmála og að vera ótrúr maka sínum? (sjá Hósea 2:7–9, 15). Hvað kennir Hósea 2:16–25 ykkur um elsku og miskunn Drottins? Hvernig sýnið þið honum elsku ykkar og hollustu?
Gætið að hinum mörgu fallegu loforðum í Hósea 14 sem Drottinn gefur þeim sem snúa aftur til hans. Hvað þýðir orðtakið: „Elska þá af frjálsum og fúsum vilja“? (vers 5). Hvað kenna myndlíkingarnar í versum 6–9 um blessanir Drottins fyrir ykkur, þar með taldar blessanir iðrunar? Íhugið að syngja eða hlusta á sálm um miskunn frelsarans, sem hluta af námi ykkar, t.d. „Kom þú til Jesú“ (Sálmar, nr. 40).
Gómer, sem er fulltrúi Ísraelsættar og rofinna sáttmála hennar, var boðin endurlausn af Drottni. Myndskreyting: Deb Minnard, með leyfi frá goodsalt.com
Hósea 6:4–7; Jóel 2:12–13
Hollusta við Guð þarf að finnast hið innra, ekki aðeins með ytri tjáningu.
Fólkið á tíma Hósea færði dýrafórnir, en það braut mikilvægari boðorð. Hverja teljið þið vera merkingu þessara orða Drottins: „Miskunnsemi þóknast mér en ekki sláturfórn og guðsþekking fremur en brennifórn“ (Hósea 6:6). Hverja teljið þið vera merkingu þess að vera eins og morgunþoka eða dögg í tengslum við réttlæti? (sjá Hósea 6:4). Hvernig ætti réttlæti okkar að vera? (sjá Jesaja 48:18; 1. Nefí 2:9–10).
Þið gætuð líka lesið Matteus 9:10–13; 12:1–8 til að sjá hvernig frelsarinn notaði Hósea 6:6 í þjónustutíð hans. Hvernig hjálpa þessi vers ykkur að skilja orð Hósea?
Þegar þið lesið Jóel 2:12–13, gæti verið gagnlegt að vita að hefðbundið var að rífa eigin klæði, sem var tákn um ytri sorg eða eftirsjá. Hvaða munur er á því að hryggjast í hjarta og að rífa klæði sín?
Jóel 2–3
„Ég [mun] úthella anda mínum yfir alla menn.“
Hvaða samlíkingu sjáið þið milli okkar tíma og þess tíma sem Jóel sá fyrir? (sjá einkum Jóel 2:1–2, 11, 18–27; 3:1–5). Hvað vekur athygli ykkar varðandi þær blessanir sem Drottinn lofaði í Jóel 2:18–27; 3:1–5? Af hverju gætu þessar blessanir verið einkar dýrmætar fyrir okkar tíma?
Áhugavert gæti verið að lesa það sem Moróní sagði um Jóel 2–3 þegar hann heimsótti Joseph Smith árið 1823 (sjá Joseph Smith – Saga 1:41). Hvernig finnst ykkur spádómarnir í Jóel 3:1–5 vera að uppfyllast á okkar tíma? (sjá einnig Postulasagan 2:1–21). Hverja teljið þið vera merkingu þess að Drottinn muni „úthella anda [sínum] yfir alla menn“? (Jóel 3:1).
Þið gætuð hugleitt þessi orð frá Russell M. Nelson forseta: „Á komandi tíð verður ekki mögulegt að komast af andlega, án þess að njóta stöðugrar handleiðslu, huggunar og áhrifa heilags anda“ („Opinberun fyrir kirkjuna, opinberun fyrir eigið líf, “ aðalráðstefna, apríl 2018). Af hverju er opinberun nauðsynleg til að við komumst af andlega?
Hvað getið þið gert ef ykkur finnst þið ekki vera að hljóta þessa úthellingu? Hér eru nokkur dæmi sem gætu hjálpað. Hvað gerði fólkið í þessum ritningum til að hljóta úthellingu anda Drottins?
Þegar þið lesið þessi orð öldungs David A. Bednar, hugleiðið þá merkingu þess að hljóta úthellingu heilags anda í daglegu lífi:
„Við gerum okkur sjálfum stundum erfitt fyrir við að hljóta persónulega opinberun. Með þessu á ég við að sáttmálsloforðið segir að er við heiðrum sáttmála okkar, getum við ávallt haft heilagan anda sem stöðugan förunaut. Við tölum samt um það og meðhöndlum það eins og það sé sjaldgæfur atburður að heyra rödd Drottins í gegnum heilagan anda. … [Andinn] ætti ávallt að vera með okkur. Ekki hverja nanósekúndu, en ef einstaklingur er að gera sitt besta – maður þarf ekki að vera fullkominn – en ef þið og ég erum að gera okkar besta og drýgjum ekki alvarlegar syndir, þá getum við reitt okkur á leiðsögn heilags anda. …
Við virðumst trúa því að heilagur andi sé stórbrotinn og magnþrunginn og skyndilegur, þegar hann er kyrrlátur og hljóður og stigvaxandi í tímans rás“ („Elder David A. Bednar Discussion“ [kvöldstund með aðalvaldhafa, 7. feb. 2020], broadcasts.ChurchofJesusChrist.org).
Sjá einnig Gary E. Stevenson, „Hvatning andans,“ aðalráðstefna, október 2023; „Enemy Territory“ (myndband), Gospel Library.
Enemy Territory
Skapið andlegt andrúmsloft. „Hvað hefur þú séð sem stuðlar að andlegu umhverfi fyrir lærdóm á fagnaðarerindinu? Hvað dregur úr því? … Hugsið um aðstöðuna sem þið kennið [eða lærið] oftast í. Hvernig líður ykkur þegar þið eruð þar? Hvernig getið þið boðið andanum betur að vera viðstaddur þar?“ (Kenna að hætti frelsarans, 7).
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Hósea 2:21–22
Ég get haldið sáttmála mína af trúmennsku.
-
Í Hósea líkir Drottinn sáttmálum sínum við fólk sitt við hjónaband. Til að læra af þessum samanburði, gætuð þið og börn ykkar horft á mynd af brúðhjónum og rætt hvernig himneskur faðir vill að eiginmaður og eiginkona komi fram við hvort annað. Hjálpið börnum ykkar að finna orð í Hósea 2:21–22 sem lýsa tilfinningum Drottins til okkar. Hvernig getum við sýnt Drottni að við elskum hann og verðum honum trú?
Hósea 10:12
„Nú er tími til að leita [Drottins].“
-
Hósea 10:12 vísar í sáningu, uppskeru, tíma og rigningu til að bjóða okkur að leita Drottins. Hvaða skapandi hugmyndir berast ykkur við lestur þessa vers sem gæti innblásið börnin til að leita hans? Dæmi: Börn ykkar gætu ef til vill teiknað klukku og skrifað niður hvernig þau geta leitað Drottins á hinum ýmsu stundum dagsins. Söngur eins og „Anytime, Anywhere“ (Gospel Library) gæti hjálpað ykkur að kenna að hver stund er góð til að leita Drottins.
-
Börn ykkar gætu líka þess í stað gert einfaldar hreyfingar sem eiga við versið, eins og að látast sá sáðkornum, tína grænmeti eða standa í rigningu. Hjálpið börnum ykkar að líkja gróðursetningu sáðkorna og að uppskera góðan mat við að lifa réttlátlega og að hljóta blessanir Drottins. Þið gætuð síðan sagt hvert öðru frá þeim blessunum sem Drottinn hefur látið rigna yfir ykkur er þið hafið leitað hans.
Hósea 13:4; 14
Jesús Kristur er frelsari minn og lausnari.
-
Til að leggja áherslu á sannleikann í Hósea 13:4 um að enginn frelsari sé til nema Jesús Kristur, gætuð þið sýnt börnum ykkar myndir af nokkrum einstaklingum, þar á meðal Jesú. Börn ykkar gætu skipst á við að benda á þann sem hefur máttinn til að frelsa okkur frá synd og dauða. Miðlið vitnisburði ykkar um Jesú Krists og friðþægingu hans.
-
Börn ykkar gætu leitað orða í Hósea 13:4, 14 sem lýsa Jesú Kristi. Hvað kenna þessi orð okkur um hann? Íhugið að hjálpa börnum ykkar að nota Leiðarvísi að ritningunum til að finna fleiri ritningarvers sem kenna að Jesús sé frelsari okkar og lausnari. Miðlið hvert öðru tilfinningum ykkar til Jesú Krists.
Jóel 3:1–2
Heilagur andi getur leiðbeint mér.
-
Þið gætuð ef til vill hjálpað börnum ykkar að skilja Jóel 3:1–2 með því að láta þau hella vökva og láta hann síðan vætla eða dreypa. Hver gæti merking þess verið að „úthella“ andanum yfir okkur?
-
Þegar þið lesið saman Jóel 3:1–2, gætuð þið boðið börnum ykkar að setja nöfn hvers annars í stað orðtakanna „synir yðar“ og „dætur [yðar]“. Hjálpið þeim síðan að leita í ritningarversum eins og Jóhannes 14:16; Moróní 10:5; Kenning og sáttmálar 42:17 til að komast að því hvernig andinn getur hjálpað þeim.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.