Síðdegishluti sunnudags
Meðtaka gjöf hans
Útdráttur
Mig langar að ræða um eina alltumlykjandi gjöf eilífs sannleika, sem gerir okkur mögulegt að meðtaka allar aðrar, sem faðir okkar þráir að gefa okkur – hina nauðsynlegu gjöf þekkingar, sem setur gleði og erfiðleika lífsins í samhengi, sem og okkar ósvöruðu spurningar, sé hún þegin af öllu hjarta og meðtekin djúpt í sál: Hún er sú að við erum raunverulega börn Guðs. Þessi sannleikur er hrífandi! Töfrandi! Og hann er ekki táknrænn.
… Vegurinn sem þið eruð á er sæluáætlun hans. … Og ó, hve heitt hann þráir að þið snúið aftur til hans einhvern daginn, til að meðtaka æðsta tilgang allra dýrðlegra gjafa hans, eilíft líf með honum. …
… Þið getið komið til Krists í fullvissu um gæsku hans og hlotið allar hans gjafir gleði, friðar, vonar, ljóss, sannleika, opinberunar, þekkingar og visku – með hátt höfuð, útrétta arma og opinn faðm, reiðubúin að meðtaka. Og þið getið meðtekið þessar gjafir, vegna þess að þið eruð örugg og grundvölluð í vitneskjunni um að þið eruð ástkærar dætur Guðs, þið eruð dýrmætir synir Guðs, og hann hefur gefið ykkur sinn fullkomna, heilaga son til að endurleysa ykkur, verja ykkur og helga ykkur.
… Meðtakið þessa gjöf aftur eða meðtakið hana ef til vill af öllu hjarta í fyrsta skipti og leyfið henni að breyta öllum þáttum lífs ykkar. Þetta er sú betri leið sem Guð hefur fyrirbúið ykkur með gjöf sonar síns. Þið lifið sannarlega svo að þið megið gleði njóta!