Morgunhluti sunnudags
Endurreisnartími allra hluta
Útdráttur
Formleg stofnun Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu var hápunktur atburðarrásar undursamlegra upplifana. …
Birting föðurins og sonarins frammi fyrir Joseph Smith, þýðing og tilkoma Mormónsbókar og endurreisn valds og lykla prestdæmisins voru nauðsynlegar forsendur fyrir stofnun hinnar endurreistu kirkju Drottins fyrir 195 árum í dag.
… Einu ári eftir stofnun kirkjunnar sagði Drottinn Joseph Smith að lyklar ríkis Guðs hefðu enn á ný verið „afhentir manni á jörðu“ og að „[fagnaðarerindi Jesú Krists] myndi breiðast út til endimarka jarðar, líkt og steinninn, sem losaður er úr fjallinu án þess að hendur komi nærri.“
Ég ber vitni: Drottinn er að uppfylla loforð sitt. …
… Sem hluti af spádómi um endurreisn allra hluta á síðari dögum, veittu fornir spámenn og postular Joseph Smith prestdæmisvaldið persónulega og veittu honum prestdæmislykla. …
Síðari daga verk Drottins er málstaður sem „fólk Guðs hefur á öllum öldum haft áhuga á; á því hafa spámenn, prestar og konungar haft sérstakt dálæti; þeir hafa horft fram til okkar tíma, og af himneskum eldmóði, tilhlökkun og fögnuði hafa þeir sungið, ritað og spáð um okkar tíma.“.…
Mikilvægustu og dýrðlegustu „gleðitíðindin“ sem nokkur manneskja, hvar sem er í heiminum, getur nokkru sinni meðtekið, eru þau að Drottinn Jesús Kristur hefur endurreist fagnaðarerindi sitt og kirkju á síðari dögum.
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er hin endurreista kirkja Krists í Nýja testamentinu.