Síðdegishluti laugardags
„Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar“
Útdráttur
„Elskið hvert annað,“ sagði Jesús. „Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar.“ Mjög oft kemur fyrsti vitnisburður einstaklings um Jesú Krist þegar hann eða hún finnur elskuna meðal lærisveina Jesú Krists. …
Hver sem sækist eftir meiri trú á Krist eða nánara sambandi við himneskan föður, ætti að finna sig heimkominn í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. …
Þrátt fyrir að við höldum okkur við háa staðla Drottins, þá skulum við líka vera þolinmóð hvert við annað. …
… Til að vera eitt í hjarta, verðum við að keppa að hreinu hjarta, sem krefst gjörbreytingar hjartans.
En það þýðir ekki að ég breyti hjarta mínu til að laga mig að ykkur. Það þýðir heldur ekki að þið breytið hjörtum ykkar til að laga ykkur að mér. Það merkir að við breytum hjörtum okkar til að laga okkur að frelsaranum. …
Ef ykkur líður einhvern tíma eins og þið fallið ekki alveg í hópinn, vitið þá að þið eruð ekki ein um það. …
… Við erum eitt, ekki vegna þess hvar við höfum verið, heldur hvert við keppumst við að fara, ekki vegna þess hver við erum, heldur hver við leitumst eftir að verða.
Um þetta snýst hin sanna kirkja Krists. …
Hvað ef þið eruð öðruvísi en fólkið umhverfis ykkur? Það gerir ykkur ekki að utangarðsfólki – það gerir ykkur að nauðsynlegum hluta í líkama Krists. …
Það þýðir ekki að starf ykkar sé að breyta öllum til að verða eins og þið sjálf. En það þýðir að þið hafið eitthvað mikilvægt að leggja til málanna – og að þið hafið nokkuð mikilvægt að læra!