2025
Tilbeiðsla
Til styrktar ungmennum, maí 2025


Kvöldhluti laugardags

Tilbeiðsla

Útdráttur

alt text

Hala niður PDF-skjali

Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur og mig að tilbiðja Guð? …

Í fyrsta lagi, tilbeiðsluathafnir okkar

Eitt algengasta og mikilvægasta tilbeiðsluformið er að koma saman á helguðu svæði til að framkvæma tilbeiðsluathafnir. …

Tilbeiðsla á degi Drottins einkennist af sérstakri áherslu á hina miklu friðþægingarfórn Jesú Krists. … Hápunktur tilbeiðslu hvíldardagsins fyrir hinn iðrandi er viðtaka sakramentisins.

Sem samfélag heilagra, styrkjum við hvert annað í tilbeiðslu og trú.

Við megum þó ekki gleyma hinni daglegu tilbeiðslu sem við gerum einsömul og á heimilinu. …

Viðhorf og tilfinningar sem falla að tilbeiðslu

Sönn tilbeiðsla merkir að elska Guð og lúta vilja hans – sem er dýrmætasta gjöfin sem við getum gefið. …

Þetta var forskriftin að tilbeiðslu Jesú sjálfs á föðurnum. …

Tilbeiðsla er að leitast við að fylgja þessu fullkomna fordæmi. …

Í þriðja lagi, einlægni tilbeiðslu okkar

Hvaðeina sem sett er ofar tilbeiðslu á föðurnum og syninum verður skurðgoð. … Markmið tilbeiðslu okkar miðast eingöngu við „hinn eina sanna Guð, og þann sem [hann sendi], Jesú Krist.“

Að lokum, þörfin á að líkja eftir föðurnum og syninum

Hvernig við lifum gæti endanlega verið besta, einlægasta tilbeiðsluformið. Að sýna hollustu okkar, þýðir að líkja eftir föðurnum og syninum – rækta eiginleika þeirra og persónuleika í okkur sjálfum. …

Þegar við göngum sáttmálsveginn, opinberast hinn helgandi „kraftur guðleikans“ í okkur.