6. kafli
Kennsla í musterinu
Þegar Jesús var aðeins nokkurra vikna gamall, fóru foreldrar hans með hann til Jerúsalem svo þau gætu kynnt hann í musterinu.
Lúk 2:22
Réttlátur maður, Símeon, sem bjó í Jerúsalem var í musterinu. Heilagur andi sagði honum að áður en hann myndi deyja, ætti hann eftir að sjá Krist.
Lúk 2:25‒26
Símeon sá drenginn Jesú í musterinu. Hann hélt honum í örmum sínum og lofaði Guð.
Lúk 2:27‒29
Símeon sagði að barnið myndi færa öllum mönnum sáluhjálp. Jósef og María undruðust það sem hann sagði.
Lúk 2:30‒33
Ekkja að nafni Anna sá einnig Jesú og vissi hver hann var. Hún færði þakkir og sagði mörgum frá honum.
Lúk 2:36‒38