2. kafli
María og engillinn
María og Jósef bjuggu í Nasaret. Þau voru afar gott fólk. Þau elskuðu hvort annað og ætluðu að giftast.
Lúk 1:26‒27
Dag nokkurn kom engillinn Gabríel til Maríu. Hann sagði Maríu að Guð myndi blessa hana.
Lúk 1:26, 28‒30
Gabríel sagði Maríu að hún yrði móðir sonar Guðs. Nafn hans yrði Jesús og yrði hann konungur allra réttlátra manna.
Lúk 1:31‒33
María sagðist ætla að hlýða himneskum föður og verða móðir Jesú.
Lúk 1:34–35, 38; 1 Ne 11:18‒21