Sögur úr ritningunum
37. kafli: Líkþráu mennirnir tíu


37. kafli

Líkþráu mennirnir tíu

Jesus sees ten lepers - ch.38-1

Jesús fór inn í lítið þorp og sá þar tíu líkþráa menn. Líkþráir menn voru veikir. Sjúkdómur þeirra olli því að hræðileg sár voru um allan líkama þeirra.

Lúk 17:12

People are afraid to go near the lepers - ch.38-2

Læknar gátu ekki hjálpað líkþráu mönnunum. Fólkið þorði ekki að vera nálægt þeim. Það vildi ekki smitast.

Lúk 17:12

The lepers ask Jesus to heal them - ch.38-3

Líkþráu mennirnir báðu Jesú að lækna sig. Þeir vissu að hann gat látið sár þeirra hverfa.

Lúk 17:13

Jesus sent the lepers to the priests - ch.38-4

Jesús vildi að þeir yrðu heilbrigðir. Hann sagði þeim að fara og sýna sig prestunum.

Lúk 17:14

The lepers are healed on their way to see the priest - ch.38

Á leiðinni til prestanna læknuðust líkþráu mennirnir. Sár þeirra voru horfin.

Lúk 17:14

One leper returns to thank Jesus - Jesus asks where the other nine are - ch.38-6

Einn líkþráu mannanna vissi að Jesús hafði læknað þá. Hann sneri aftur til að þakka honum. Jesús spurði hvar hinir níu líkþráu mennirnir væru. Þeir höfðu ekki komið til baka. Jesús sagði líkþráa manninum sem þakkaði honum, að trú hans hefði gert hann heilan.

Lúk 17:15‒19