30. kafli
Brauð lífsins
Næsta dag leituðu margir að Jesú. Þeir fylgdu Jesú til Kapernaum í bátum.
Jóh 6:22–24
Jesús vissi að fólkið vildi að hann mettaði það aftur.
Jóh 6:26
Jesús kenndi þeim að brauð gæti einungis haldið þeim lifandi í stuttan tíma. Hann sagði, að til væri annars konar brauð sem þau ættu að sækjast eftir ‒ brauð lífsins. Hann sagðist sjálfur vera brauð lífsins.
Jóh 6:27, 32–35
Jesús sagði fólkinu að hann myndi fórna lífi sínu fyrir það. Hann sagði að það myndi öðlast eilíft líf ef það fylgdi honum og tryði á hann.
Jóh 6:47–51