Doctrine and Covenants 2025
17.–23. nóvember: „Búið yður … undir komu brúðgumans“: Kenning og sáttmálar 133–134


„17.–23. nóvember: ‚Búið yður … undir komu brúðgumans‘: Kenning og sáttmálar 133–134,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Kenning og sáttmálar 133–134,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

málverk af meyjunum tíu

Meyjarnar tíu, eftir Jorge Cocco

17.–23. nóvember: „Búið yður … undir komu brúðgumans“

Kenning og sáttmálar 133–134

Árið 1833 réðst múgur á prentsmiðju kirkjunnar og eyðilagði hana. Á meðal þeirra prentverka sem voru í vinnslu á þeim tíma var Boðorðabókin – fyrsta tilraun kirkjunnar til að safna saman síðari daga boðorðum Guðs í eitt eintak. Múgurinn sundraði hinum óinnbundnu síðum og jafnvel þótt hinir hugrökku heilögu hafi bjargað sumum þeirra, þá er vitað að einungis nokkur ófullkomin eintök af Boðorðabókinni hafi bjargast.

Það sem nú er kafli 133 í Kenningu og sáttmálum, var ætlað að vera viðauki Boðorðabókarinnar, líkt og upphrópunarmerki í lok hinna útgefnu opinberana Drottins. Þar er varað við komandi dögum dóms og kallið endurtekið sem finna má í gegnum nútíma opinberanir: Flýið heimshyggju, eins og Babýlon er táknræn fyrir. Byggið Síon. Búið ykkur undir síðari komuna. Og boðið þetta „sérhverri þjóð, kynkvísl, tungu og lýð“ (vers 37). Upphaflega ráðagerðin um Boðorðabókina náði ekki fram að ganga, en þessi opinberun er áminning og vitni um að verk Drottins mun fara fram, „því að hann mun gjöra beran heilagan armlegg sinn … og öll endimörk jarðar munu sjá hjálpræði Guðs síns“ (vers 3).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju

Kenning og sáttmálar 133:4–14

Jesús Kristur kallar til mín að hafna Babýlon og koma til Síonar.

Andstæður andi Síonar er Babýlon – forn borg sem táknar ranglæti og andlega ánauð hvarvetna í ritningunum. Þegar þið lesið Kenningu og sáttmála 133:4–14, ígrundið þá hvernig frelsarinn er að kalla til ykkar: „Farið út frá Babýlon“ (vers 5) og „farið til … Síonar“ (vers 9). Hvernig svarið þið kalli hans? Hvað annað lærið þið um Síon í boðskap öldungs D. Todd Christofferson „Kom til Síon“? (aðalráðstefna, okt. 2008).

Kenning og sáttmálar 133:1–19, 37–39

trúarskólatákn
Ég get búið mig nú undir síðari komu frelsarans.

Bæði kafli 1, inngangsorð Drottins í Kenningu og sáttmálum, og kafli 133, hinn upprunalegi viðauki Bororðabókarinnar, hefjast með sama boði Drottins: „Hlýðið á, ó þér sem í kirkju minni eruð“ (Kenning og sáttmálar 1:1; 133:1). Kannski gætuð þið lesið Kenningu og sáttála 133 1–19, 37–39 og gert lista yfir þann boðskap sem Drottinn býður ykkur að „[hlýða]“ á (hlusta og hlýða) er þið búið ykkur undir síðari komu hans. Þið gætuð sérstaklega gert lista yfir það sem hann vill að þið gerið til að (1) undirbúa ykkur sjálf og (2) hjálpa til að búa heiminn undir endurkomu hans. Hvað lærið þið af þessum listum?

Russell M. Nelson, forseti miðlaði mikilvægum sannleiksorðum varðandi það hvernig heimurinn verður þegar frelsarinn kemur aftur – og hvernig standa á að undirbúningnum. Leitið eftir þessum sannleika í boðskap hans „Framtíð kirkjunnar: Búa heiminn undir síðari komu frelsarans,“ (Líahóna, apr. 2020). Hvað finnst ykkur þið innblásin að gera – eða halda áfram að gera – til að „búa heiminn undir síðari komu frelsarans“? („Þema Aronsprestdæmissveita,“ Gospel Library).

Sjá einnig Matteus 25:1–13; Russell M. Nelson, „Horfa til framtíðar í trú,“ aðalráðstefna, okt. 2020; „Börn vors Drottins,“ Sálmar, nr. 14; Topics and Questions, „Second Coming of Jesus Christ,“ Gospel Library.

Kenning og sáttmálar 133:19–56

Síðari koma Jesú Krists verður hinum réttlátu gleðiefni.

Hvað vekur ykkur eftirvæntingu, er þið lesið lýsinguna um endurkomu frelsarans í versum 19–56? Hvaða orð eða orðtök lýsa elsku Drottins til fólks hans? Íhugið að skrá persónulega upplifun ykkar af „elskandi gæsku Drottins [ykkar] og allt, sem hann hefur gefið [ykkur], í samræmi við góðvild hans” (vers 52).

Jesús sýnir konu góðvilja

Hluti af Læknir, eftir Kelsy og Jesse Lightweave

Kenning og sáttmálar 134

„Guð [hefur] innleitt stjórnkerfi manninum til heilla.“

Samband hinna fyrri heilögu við stjórnvöld var flókið. Þegar hinir heilögu voru hraktir frá Jackson-sýslu, Missouri, árið 1833, báðu þeir um aðstoð frá staðarvaldhöfum og alríkisyfirvöldum, en hlutu enga. Á sama tíma túlkuðu sumir utan kirkjunnar kenningarnar um Síon svo, að hinir heilögu höfnuðu valdi jarðneskra stjórnvalda Kenning og sáttmálar 134 var að hluta ritaður til að útskýra afstöðu kirkjunnar til stjórnvalda. Hvaða tilfinningar ættu hinir heilögu Drottins að hafa gagnvart yfirvöldum, samkvæmt þessum kafla?

Er þið lesið kafla 134, hugleiðið þá að leita eftir lögmálum stjórnvalda og ábyrgð borgara. Hvernig gætu þessar hugmyndir hafa verið gagnlegar hinum fyrri heilögu? Hvernig eiga þær við þar sem þið búið?

Sjá einnig Trúaratriðin 1:11–12; Topics and Questions, „Religious Freedom,“ Gospel Library.

barnahluti tákn 03

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Kenning og sáttmálar 133:4–5, 14.

Drottinn æskir þess að ég haldi mig frá hinu illa í heiminum.

  • Þið og börn ykkar gætuð gert lista yfir einhverja staði og aðstæður sem Drottinn vill að við höldum okkur frá. Því næst gætuð þið borið þessa staði og aðstæður saman við skilgreininguna á „Babel, Babýlon“ í Leiðarvísi að ritningunum (Gospel Library). Þau gætu síðan lesið Kenningu og sáttmála 133:4–5, 14. Hver er merking þess að „[fara] út frá Babýlon“? (vers 5). Þið gætuð einnig gert álíka lista yfir staði og aðstæður sem Drottinn býður okkur til og borið þann lista saman við skilgreininguna um „Síon“ í Leiðarvísi að ritningunum.

Kenning og sáttmálar 133:19–21, 25.

Jesús Kristur mun koma aftur.

  • Börn ykkar gætu notið þess að gera leikþátt um það að undirbúa sig fyrir eitthvað, eins og íþróttamót, mikilvægan gest eða uppáhalds hátíðarhöld. Af hverju er undirbúningur mikilvægur? Þið gætuð svo lesið saman í Kenningu og sáttmálum 133:17–19, 21 og boðið börnum ykkar að leita að því sem Drottinn býður okkur að búa okkur undir. Þið gætuð sýnt þeim myndina úr lexíudrögum þessarar viku og spurt börn ykkar hvað þau vita um síðari komu Jesú Krists. Hvað annað lærum við í versum 19–25, 46–52? Hvað getum við gert til að búa okkur undir þennan gleðiviðburð?

  • Þið gætuð falið ýmsar myndir eða hluti sem tákna það sem við getum gert til að undirbúa okkur fyrir síðari komu Jesú Krists (eins og að lesa ritningarnar, miðla fagnaðarerindinu eða þjóna fjölskyldum okkar). Leyfið börnum ykkar að finna myndirnar eða hlutina og ræða hvernig það getur hjálpað okkur að vera reiðubúin að mæta frelsaranum þegar hann kemur aftur að gera þessa hluti.

  • Þið gætuð líka sungið saman söng um síðari komuna, eins og t.d. „Þegar hann kemur aftur“ (Barnasöngbókin, 46). Miðlið hverju öðru elsku ykkar til frelsarans og tilfinningum ykkar varðandi endurkomu hans.

Kenning og sáttmálar 133:52–53

Jesús Kristur er ástríkur og góðviljaður.

  • Þið og börn ykkar gætuð skoðað myndir sem sýna að Jesús er ástríkur og góðviljaður. (Sjá til dæmis Trúarmyndabók, nr. 42, 47.) Hvað annað hefur Jesús gert til að sýna kærleika sinn og góðvild. Lesið saman í Kenningu og sáttmálum 133:52, og hjálpið börnum ykkar að hugsa upp hvernig þau geti talað við aðra „um elskandi gæsku Drottins.“

    Christ Healing the Sick at Bethesda
Jesús og barn

Hluti af Í hans ljósi, eftir Greg Olsen

Kennið kenninguna á skýran og einfaldan hátt. Drottinn kennir fagnaðarerindi sitt „á skýran og einfaldan hátt“ (Kenning og sáttmálar 133:57). Hvað segja þessi orð um hvernig kenna á fjölskyldu ykkar eða námsbekk um fagnaðarerindið?

Kenning og sáttmálar 134:1–2

Drottinn vill að ég hlýði lögmálinu

  • Börn ykkar gætu skrifað þær reglur eða lögmál sem þau hlýða. Hvernig væri líf ykkar ef enginn hlýddi þessum lögmálum? Síðan gætuð þið lesið Kenningu og sáttmála 134:1–2 með þeim, til að hálpa þeim að skilja þau orð eða orðtök sem kunna að vera torskilin. Hvers vegna vill Drottinn að við hlýðum lögmálinu? (sjá einnig Trúaratriðin 1:12).

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Jesús í rauðum kirtli

Kristur í rauðum kufli, eftir Minerva Teichert

verkefnasíða fyrir börn