„10.–16. nóvember: ‚Ég hef séð fórnir þínar í hlýðni þinni‘: Kenning og sáttmálar 129–132“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)
„Kenning og sáttmálar 129–132,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
Hluti af Joseph Smith í Nauvoo, 1840, eftir Theodore Gorka
10.–16. nóvember: „Ég hef séð fórnir þínar í hlýðni þinni“
Kenning og sáttmálar 129–132
Fyrir tilstuðlan Josephs Smith fjarlægði Drottinn hluta af leyndardómi eilífðarinnar. Mikilleiki Guðs, dýrð himins og óendanleiki eilífðarinnar virðist nærri kunnuglegt í ljósi hins endurreista fagnaðarerindis, jafnvel fyrir jafn takmarkaðan huga eins og okkar. Opinberanirnar í Kenningu og sáttmálum 129–32 eru góð dæmi um það. Hvernig er Guð? Hann „hefur líkama … jafn áþreifanlegan og mannslíkaminn er.“ Hvernig er himnaríki? „Sama félagslyndi og ríkir meðal okkar hér mun ríkja meðal okkar þar“ (Kenning og sáttmálar 130:22, 2.). Í raun er einn gleðiríkasti sannleikurinn varðandi himnaríki sá að þar má finna ástkær fjölskyldutengsl okkar, ef þau hafa verið innsigluð með viðeigandi umboði. Sannleikur sem þessi megnar að draga úr fjarlægð himins – gera hann dýrðlegan en þó aðgengilegan.
Guð getur þó stundum beðið okkur að gera hluti sem virðast svo óþægilegir og óaðgengilegir. Fyrir marga hina fyrri heilögu var fjölkvænið eitt slíkt boðorð. Það var mikil trúarprófraun fyrir Joseph Smith, eiginkonu hans, Emmu, og næstum alla þá sem við því tóku. Meira þurfti til en góðar tilfinningar gagnvart hinu endurreista fagnaðarerindi til að standast þessa prófraun; trú þeirra á Guð þurfti að ná dýpra en það. Boðorðið gildir ekki lengur á okkar tíma, en trúfast fordæmi fólksins sem lifðu samkvæmt því gerir það. Þetta fordæmi veitir innblástur þegar við erum beðin um að færa okkar eigin „fórnir í hlýðni” (Kenning og sáttmálar 132:50).
Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju
Guð vill upphefja börn sín.
Það er margt sem við vitum ekki um upphafningu eða lífið í æðstu gráðu himneska ríkisins – lífið sem Guð lifir. Mikið af því kann að vera utan núverandi getu okkar til að skilja. Guð hefur þó opinberað nokkrar vísbendingar um það, sem margar eru í Kenningu og sáttmálum 130–32. Þið gætuð lesið með álíka spurningar í huga og þessar: Hvað læri ég um Guð? Hvað læri ég um lífið eftir dauðann? Hvernig blessar það líf mitt nú að hafa þessar upplýsingar?
Sjá einnig „Our Hearts Rejoiced to Hear Him Speak,” í Revelations in Context, 277–80.
Kenning og sáttmálar 130:20–21; 132:5
Guð blessar fólk sem hlýðir lögmálum hans.
Hvernig mynduð þið orða það sem Drottinn kennir í Kenningu og sáttmálum 130:20–21 og 132:5? Ígrundið hvernig þessi kenning hefur sýnt sig í ykkar lífi.
Stundum koma þær blessanir sem við óskum eftir ekki strax, jafnvel þó við séum hlýðin Guði. Hvernig viðhöldum við trú okkar og von þegar það gerist? Leitið innsæis í boðskap öldungs D. Todd Christofferson, „Samband okkar við Guð,“ (aðalráðstefna, apríl 2022).
Sjá einnig 1. Nefí 17:35; Kenning og sáttmálar 82:10.
Kenning og sáttmálar 132:13–21
Himneskur faðir gerði fjölskyldum mögulegt að vera eilífar.
Fyrir tilstuðlan spámannsins Josephs Smith, endurreisti Drottinn sannleikann um að hjónabönd og fjölskyldusambönd geti verið eilíf. Þegar þið lesið Kenningu og sáttmála 132:13–21, leitið þá að orðtökum sem hjálpa ykkur að skilja muninn á því sem mun „[vara]“ um eilífð og hvað ekki. Hvað haldið þið að það þýði fyrir hjónaband að vera „af [Drottni]“? (vers 14).
Í boðskap sínum „Til vegsemdar þeim sem bjarga,“ ber Dieter F. Uchtdorf forseti saman eilíft hjónaband og það sem er „einnota“ (aðalráðstefna, apríl 2016). Hvað kenna þessar andstæður ykkur um það að hlúa að – eða búa sig undir – hjónaband? Hugsið um fjölskyldusambönd ykkar – núverandi og framtíðar – er þið lesið boðskap öldungs Uchtdorfs. Hvað finnið þið þar sem veitir ykkur von í Kristi fyrir fjölskyldusambönd ykkar?
Henry B. Eyring forseti miðlaði þessari leiðsögn sem hann hlaut þegar hann hafði áhyggjur af aðstæðum í fjölskyldu sinni: „Þú skalt sjálfur lifa verðugur himneska ríkisins og fjölskylduhagir þínir verða dásamlegri en þú færð ímyndað þér“ (í „Heimili þar sem andi Drottins dvelur,“ aðalráðstefna, apríl 2019.) Hvernig getur þetta ráð hjálpað ykkur eða einhverjum sem þið þekkið?
Sjá einnig „Fjölskyldur geta átt eilífð saman,“ Barnasöngbókin, nr. 98: Topics and Questions, „Marriage,“ Gospel Library.
Hjónaband getur verið innsiglað um eilífð í húsi Drottins.
Kenning og sáttmálar 132:1–2, 29–40
Fjölkvæni er einungis þóknanlegt Guði þegar hann gefur fyrirmæli um það.
Margir sem hafa lesið Gamla testamentið velta fyrir sér að Abraham, Jakob, Móse og fleiri giftust mörgum konum. Voru þessir þjónar Drottins að drýgja hór? Lagði Guð blessun sína yfir hjónabönd þeirra? Joseph Smith hafði svipaða spurningu. Leitið svaranna sem Guð veitti í Kenningu og sáttmálum 132:1–2, 29–40.
Hjónaband eins karls og einnar konu er staðall Guðs varðandi hjónabandið (sjá kaflafyrirsögn í Opinber yfirlýsing 1; Jakob 2:27, 30). Hins vegar hafa komið upp tímabil, þar sem Guð hefur boðið börnum sínum að iðka fjölkvæni.
Fyrstu ár hinnar endurreistu kirkju voru eitt þessara undantekningartímabila. Ef þið viljið læra meira um fjölkvæni á meðal hinna heilögu í upphafi, sjá „Mercy Thompson and the Revelation on Marriage“ (í Revelations in Context, 281–93); Heilagir, 1:290–92, 432–35, 482–92, 502–4; Topics and Questions, „Plural Marriage in The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints,“ Gospel Library; „Why Was It Necessary for Joseph Smith and Others to Practice Polygamy?“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
Why was it necessary for Joseph Smith and others to practice polygamy?
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Kenning og sáttmálar 130:2, 18:-19; 132:13, 19
Himneskur faðir vill að ég leggi áherslu á eilífa hluti.
-
Hvað kennir Kenning og sáttmálar 132:13 okkur um það sem heimsins er? Ef til vill gætuð þið og börn ykkar sett í ferðatösku eða bakpoka það sem samkvæmt Kenningu og sáttmálum 130:2, 18–19; 132:19, táknar það sem við getum tekið með okkur í næsta líf.
Kenning og sáttmálar 130:20–21; 132:5, 21–23
Guð blessar mig er ég hlýði lögmálum hans.
-
Kannski gæti einföld samlíking kennt börnum ykkar um að hlýða boðorðum Guðs. Þið gætuð til dæmis beðið þau að veita ykkur leiðbeiningar til að ganga eitthvert, eins og út í skóla eða í kirkjubyggingu. Hvað gerist ef við fylgjum ekki leiðbeiningum? Þá gætuð þið lesið Kenningu og sáttmála 130:21 og borið þessar leiðbeiningar saman við þau boðorð sem Guð hefur gefið okkur.
-
Þið gætuð einnig sungið saman söng um hlýðni, eins og „Boðorðin haldið“ (Barnasöngbókin, 68) og leitið að orðum í Kenningu og sáttmálum 130:20–21 og 132:5 sem eru svipuð þeim í söngnum. Hvernig blessar Guð okkur þegar við reynum að halda boðorð hans?
Himneskur faðir og Jesús Kristur eru með ódauðlega líkama.
-
Eftir að hafa lesið Kenningu og sáttmála 130:22 saman, gætuð þið og börn ykkar skoðað mynd af Jesú Kristi, bent á augu hans, munn og aðra hluta líkama hans. Börn ykkar gætu síðan bent á sömu líkamshluta á sjálfum sér. Segið þeim hvers vegna það er ykkur mikilvægt að vita að líkamar okkar líti eins út og líkamar himnesks föður og Jesú.
Vegna helgiathafna húss Drottins, geta fjölskyldur verið eilífar.
Himneskur faðir gerði fjölskyldum það kleift að vera saman um eilífð.
-
Hjálpið börnum ykkar að finna dæmi um hluti sem vara ekki að eilífu – matvara sem spillist, blóm sem fölna og svo framvegis. Lítið síðan saman á Kenningu og sáttmála 132:19 og finnið lykilorðtök eins og „ævarandi [sáttmáli],“ „innsiglaður,“ „um alla eilífð,“ og „alltaf og að eilílfu.“ (Sjá einnig „kafla 55: Opinberun um hjónaband,“ í Sögur úr Kenningu og sáttmálum, 198 eða samsvarandi myndband í Gospel Library). Þið gætuð einnig skoðað myndir af fjölskyldu ykkar og borið vitni um að fyrir tilstuðlan helgiathafna og sáttmála musterisins, hafi Drottinn gert það mögulegt að fjölskyldur geti varað að eilífu.
Chapter 55: A Revelation about Marriage: July 1843
Verið næm fyrir fjölskylduaðstæðum. „Börn í dag finna sig í dag í margskonar ólíkum og flóknum fjölskyldueiningum. [Við þurfum] að ná til [þeirra] sem finnst þau ein, yfirgefin og fyrir utan girðinguna“ (Neil L. Andersen, „Hver sá sem tekur á móti þeim, tekur á móti mér,“ aðalráðstefna, apríl, 2016).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.