Doctrine and Covenants 2025
Raddir endurreisnarinnar: Líknarfélagið


„Raddir endurreisnarinnar: Líknarfélagið,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Líknarfélagið,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

Táknmynd radda endurreisnarinnar

Raddir endurreisnarinnar

Líknarfélagið

Árið 1842, eftir stofnun Líknarfélagsins í Nauvoo, Illinois, sagði spámaðurinn Joseph Smith: „Kirkjan var aldrei fyllilega skipulögð fyrir en starf kvennanna var skipulagt á þennan hátt.“ Athugun á endurreisn kirkjunnar og prestdæmi Drottins væri ekki fullnægjandi fyrr en Líknarfélagið, sem er „endurreist forn fyrirmynd“ kvenlærisveina Jesú Krists, hefur líka verið skoðað.

Eliza R. Snow gegndi mikilvægu hlutverki í þeirri endurreisn. Hún var viðstödd þegar Líknarfélagið var fyrst stofnað og skrifaði fundargerðir sem ritari á fundum félagsins. Hún var sjálf vitni að því að Líknarfélagið var skipulagt „að fyrirmynd prestdæmisins.“ Hér að á eftir eru orð hennar, skrifuð meðan hún starfaði sem annar aðalforseti Líknarfélagsins, til að hjálpa systrum sínum að skilja hið guðdómlega starf sem falið er sáttmálsdætrum Guðs.

Ef þið viljið kynna ykkur betur hvernig Líknarfélagið var skipulagt, sjá þá Daughters in My Kingdom: The History and Work of Relief Society (2017), 1–25; The First Fifty Years of Relief Society (2016), 3–175.

Emma Smith leiðir Líknarfélagsfund

Málverk af Líknarfélaginu, eftir Paul Mann

Eliza R. Snow

„Þótt nafnið [Líknarfélagið] gæti verið nútímalegt, þá er það stofnun af fornum uppruna. Okkur er sagt af [Joseph Smith] að þessi sama stofnun hafi átt sér tilurð í kirkjunni til forna, samkvæmt tilvísunum í sumum bréfanna í Nýja testamentinu, þar sem orðtakið ,útvalin frú [kjörin kona]‘ kemur fyrir [sjá 2. Jóhannesarbréfið 1:1; Kenning og sáttmálar 25:3].

„Þetta er félag sem ekki getur verið án prestdæmisins, því staðreyndin er sú að allt valdsumboð þess á sér rætur í prestdæminu. Þegar prestdæmið var tekið af jörðu, átti þessi stofnun, sem og allir aðrir viðaukar hinnar sönnu skipan Kirkju Jesú Krists, sér ekki lengur tilveru á jörðu. …

Eftir að hafa verið viðstödd stofnun ,Líknarfélags kvenna í Nauvoo,‘ … og eftir nokkra reynslu af því félagi, gæti ég ef til vill komið nokkrum ábendingum á framfæri, dætrum Síonar til aðstoðar við að láta til sín taka í þessu afar mikilvæga hlutverki, fyllt nýjum og margfalt fleiri ábyrgðarskyldum. Ef einhverjum dætra og mæðra í Ísrael finnst þær að einhverju leyti takmarkaðar á sínu núverandi sviði, munu þær nú hafa nægilegt svigrúm til að nýta alla sína krafta til góðs, sem þeim er svo afar eðlislægt að gera. …

Rauða múrsteinsbúðin í Nauvoo, Illinois

Líknarfélagið var stofnað á efri hæð Rauðsteinsbúðarinnar.

„Ef einhver spyrði: Hvert er hlutverk Líknarfélags kvenna? væri svar mitt – að gera góðverk – að sameina alla krafta okkar til að gera góðverk, ekki einungis til að líkna fátækum, heldur frelsa sálir. Sameiginlegt starf fær áorkað ólýsanlega miklu meiru, en afkastamesti einstaklingur fengi komið til leiðar. …

Líknarfélag kvenna hefur fleiri skyldum að gegna en einungis að líkna hinum fátæku líkamlega. Fátækt í huga og sjúkleiki í hjarta krefjast einnig athygli; og oft megnar ljúft viðmót – fáein orð leiðsagnar, eða jafnvel hlýtt og ástúðlegt handaband, að gera meira gott og er betur þegið en pyngja af gulli. …

„Þegar hinir heilögu koma frá útlöndum, eru öllum ókunnugir og auðveld bráð þeim sem bíða þess að geta logið og blekkt, þá ætti [Líknar]félagið að koma [þeim] skjótt til hjálpar, kynna þeim samfélag sem bætir þá og upphefur, og umfram allt, eflir þeim trú á fagnaðarerindið, og vera á þann hátt mikilvægt við frelsun margra.

„Það þyrfti heilu bækurnar til að skilgreina skyldurnar, forréttindin og ábyrgðina sem falla undir verksvið félagsins. … Takist á við verkið (með leiðsögn biskups ykkar) af rósemd, þrótti, elju, einingu og kostgæfni og Guð mun krýna starf ykkar farsæld og árangri.“

Heimildir

  1. Kenningar forseta kirkjunnar: Joseph Smith (2007), 451.

  2. Daughters in My Kingdom: The History and Work of Relief Society (2017), 7.

  3. Joseph Smith, í Sarah M. Kimball, „Auto-biography,“ Woman’s Exponent, 1. sept. 1883, 51.

  4. „Female Relief Society,“ Deseret News, 22. apríl 1868, 81.