Ómetanlegar gjafir
Jólasamkoma Æðsta forsætisráðsins 2024
Sunnudagur 8. desember 2024
Í kvöld tala ég af gleði og undrun um heilagt mikilvægi jólanna. Enginn atburður í sögu heimsins hefur haft meiri áhrif en fæðing og hlutverk Jesú frá Nasaret fyrir rúmum tvö þúsund árum. Í heiminum í dag er tíminn sjálfur mældur út frá þessum kraftaverkaatburði.
Fæðingu Drottins okkar er fagnað með mismunandi hætti um heiminn, en ein jólahefð virðist vera söm um allan heim.
Sú hefð hófst trúlega með frásögn Matteusar um vitringana frá Austurlöndum sem komu til að tilbiðja Jesú. Þegar þeir komu, gáfu þeir dýrmætar gjafir. Í dag er hefðin að gefa gjafir jafnvel sífellt stærri hluti af hátíðarhöldum jólanna.
Mín fyrsta minning um jólagjöf var dásamlegur leikfangariffill sem skaut korktappa í bandi og upptrekkjanleg önd. Þetta var einskær gleði fyrir fjögurra ára barn. Öndin vaggaði í hring á gólfinu og átti sér aldrei viðreisnar von, því ég miðaði byssunni minni spenntur úr 15 sentimetra fjarlægð. En leikfangið brotnaði fljótlega og eins og með alla efnislega hluti, var hamingjan sem það færði tímabundin og fljótlega gleymd.
Í kvöld legg ég til þrjár gjafir sem hvert okkar getur gefið á þessari jólahátíð, og alla ævi, sem munu ekki veita tímabundna hamingju, heldur sanna og varanlega gleði.
Fyrst er það gjöf vitnisburðar. Þetta er afar persónuleg gjöf og þegar hún er gefin frjálslega og fölskvalaust, sýnir hún dýpstu tjáningu sálar okkar. Hreinn vitnisburður um Jesú Krist sem persónulegan frelsara okkar og lausnara, er dýrmætari en gull, reykelsi og myrra og miðpunktur alls þess sem við fögnum á jólunum.
Þegar börnin okkar sex voru ung ákváðum ég og Jacqui eitt kvöldið að við myndum einfaldlega frekar deila vitnisburði með hvert öðru á fjölskyldukvöldi, í stað þess að hafa lexíu. Eftir að ég deildi vitnisburði mínum sagði yndislega dóttir okkar Chelsea, líklega 16 ára á þeim tíma, með galopin augu: „Pabbi, ég hef aldrei heyrt vitnisburð þinn áður.“ Nokkuð brugðið, dáðist ég að viðbrögðum hennar. Á þessum tíma var ég stikuforseti og vissi að Chelsea hafið ótal sinnum heyrt mig flytja vitnisburð minn á mörgum kirkjuviðburðum og á heimilinu. En á þessu augnabliki, bæði heyrði hún og skynjaði vitnisburð minn eins og um fyrsta skipti væri að ræða. Hún kenndi mér lexíu sem ég hef aldrei gleymt: Gjöf vitnisburðar er dýrmætur og það er máttugt að miðla honum oft.
Önnur er gjöf fyrirgefningar. Vissulega höfum við öll verið særð með óvingjarnlegum orðum og gjörðum annarra. Og séum við heiðarleg, höfum við líka sært aðra. Drottinn hefur sagt: „Ég, Drottinn, mun fyrirgefa þeim, sem ég vil fyrirgefa, en af yður er krafist, að þér fyrirgefið öllum mönnum.“ Síðan gengur hann skrefinu lengra og segir að þegar við fyrirgefum ekki öðrum búi í okkur hin stærri synd.
Þegar við fúslega og einlæglega fyrirgefum öðrum, verðum við frjáls frá eitrandi áhrifum biturleika, dómhörku eða hefnigirni.
Ég á kæran vin í Suður-Afríku sem heitir Sandile Makasi. Með leyfi, deili ég persónulegri sögu hans um fyrirgefningu. Þegar Sandile var rétt tæplega tveggja ára, var faðir hans, aðeins 28 ára gamall, pyntaður og drepinn af lögreglu á tíma aðskilnaðarstefnunnar. Sandile fékk síðar að vita nákvæma lýsingu á hinu hryllilega morði á föður sínum. Ég vitna nú í hans eigin orð:
„Á fyrstu æskuárum mínum fann ég fyrir biturleika og hatri vegna þess sem þau gerðu föður mínum. Hvernig gátu þau tekið hann frá okkur? Ég var rændur föður og kennara og móðir mín var rænd elskandi og umhyggjusömum förunaut.
Er ég fékk að vita hve grimmilega hann var pyntaður, fylltist ég gríðarlegri reiði, hatri og óvild í hjarta og huga í garð lögregluþjónanna og hvíta fólksins.
Ég hélt áfram að burðast með þessar tilfinningar þar til ég fann hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists. Fagnaðarerindið hjálpaði mér að skilja að ég ætti að fyrirgefa lögregluþjónunum fyrir glæpi þeirra og að gleði mín og andleg framþróun væri háð því.
Þetta var auðveldara að segja en gera, en ég hélt ótrauður áfram með mörgum bænum og með tímanum hjálpaði Drottinn mér að fyrirgefa óvinum mínum. … Í stað sárinda fann ég fyrir huggun; í stað óvildar og haturs, hafði ég elsku; í stað myrkurs í hjarta og huga, hafði ég ljós og frið.“
Þakka þér Sandile fyrir fordæmi þitt um að gefa gjöf fyrirgefningar.
Þriðja, gjöf kristilegrar elsku. Af öllum andlegum gjöfum er engin meiri en kærleikurinn. Jesús tjáði elsku sína til annarra opinskátt og kenndi okkur að elska hvert annað.
Er við fylgjum fordæmi frelsarans með því að tjá elsku okkar til annarra með orðum og gjörðum, geta þau upplifað elsku Guðs gegnum okkur.
Fyrir nokkrum árum, hitti ég ungan mann, 23 ára að aldri, sem bjó í Washington sem var frábært dæmi um þetta. Trúboðarnir höfðu kennt honum í þrjá mánuði og hann hafði upplifað ótrúlega breytingu á eigin ásýnd og lífsvenjum. Kvöld eitt ræddi hann við trúboðana í síma og áður en þeir lögðu á sögðu þeir: „Við elskum þig, Michael.“ Hann setti niður símann og hugsaði með sjálfum sér: „Vá. Þetta er nokkuð sem ég hef ekki tamið mér. Ég gæti jafnvel sagt þetta við aðra.“ Hann ákvað að telja í sig kjark til að segja móður sinni að hann elskaði hana. Hún bjó nokkra klukkutíma í burtu í öðrum hluta fylkisins. Þegar hann hringdi í hana og sagði: „Ég elska þig mamma,“ voru fyrstu viðbrögð hennar: „Hvað er að hjá þér? Fórstu til læknis og fékkstu slæmar fréttir? Ertu að fara aftur í fangelsi?“ Hann sagði henni því frá fundi fagnaðarerindisins og hvernig það hafði breytt honum og að hann hefði nú hætt reykingum og eiturlyfjaneyslu og hugðist láta skírast.
Ég held að þetta sé frábær lýsing á því sem gerist þegar fólk finnur elsku Guðs gegnum aðra. Það mýkir hjörtu og vekur síðan þrá til að deila þessari kærleiksgjöf með öðrum.
Í kvöld byrjuðum við á að tala um dýrmætar gjafir með því að tilgreina gull, reykelsi og myrru. Ég kannaði málið og þið getið jafnvel keypt þessar gjafir á Amazon. En þið munuð aldrei finna hinar gjafirnar sem við höfum rætt um í neinni verslun. Þær eru gjafir án verðmiða, og þær færa bæði gefanda og þiggjanda varanlega og sanna gleði.
Þegar þið fagnið þessum jólum, býð ég ykkur því að:
-
Deila vitnisburði ykkar með fjölskyldu og þeim sem þið elskið. Er þið deilið þessari dýrmætu gjöf, mun vitnisburður ykkar styrkjast.
-
Fyrirgefa einhverjum sem ykkur finnst hafa brotið á ykkur eða sært ykkur. Með því að gefa þessa gjöf, munuð þið líka finna fyrir friði og lækningu.
-
Hjálpa öðrum að finna elsku Guðs gegnum ykkur. Ef það er viðeigandi, segið þeim þá að þið elskið þau. Þegar þið sjáið aðra eins og Guð sér þau, mun elska ykkar til þeirra aukast og þið munið einnig finna fyrir elsku Guðs í eigin lífi.
Ég óska ykkur nú öllum mikillar gleði á þessari jólahátíð Ég ber mitt vitni um Jesú Krist. Hann lifir. Hann er frelsari okkar, lausnari okkar. Hann er málsvari okkar og vinur. Ég dái hann. Ég elska hann. Vegna gjafar hans til sérhvers okkar, keypta ómældu verði, getum við verið hæf til að fá æðstu gjöf allra – já, eilíft líf í návist okkar ástkæra föður á himnum.
Í nafni Jesú Krists, amen.