Jesús Kristur er frelsari ykkar

Jesús Kristur er sonur Guðs – frelsari okkar og lausnari, sendur til að frelsa okkur öll. Sökum hans, getið þið fundið gleði og frið vitandi að þið getið verið laus við synd og dag einn lifað að eilífu með Guði og ástvinum ykkar.

Guðlegt verk frelsarans

In a Coming Day: An Easter Message
Þegar Guð sendi okkur til jarðar til að læra og vaxa, vissi hann að við myndum gera mistök. Þess vegna gaf hann okkur frelsara.
Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.
Við trúum því að Jesús Kristur sé bókstaflegur sonur Guðs og aðgreindur meðlimur Guðdómsins, ásamt Guði föðurnum og heilögum anda. Hann kom til jarðar til að vinna guðlegt verk, þar sem hann myndi:
  • Upplifa raunir dauðlegs lífs.
  • Kenna og vitna um Guð.
  • Gera máttug kraftaverk.
  • Þjást og deyja fyrir syndir okkar og gera okkur kleift að hreinsast af synd.
  • Sigrast á dauðanum með upprisu hans og sjá okkur öllum fyrir leið til upprisu.

Jesús Kristur veitti okkur hið fullkomna fordæmi

An elderly man sitting down by the pool of Bethesda while Christ stretches out His hand to heal him.
Jesús Kristur var fordæmi um hreina ást. Hann læknaði sjúka og fatlaða af miskunnsemi, mettaði hungraða, reisti upp dauða, annaðist fátæka, bauð félagslega einangraða velkomna og þjónaði öllum sem trúfastlega leituðu hans.

Frelsarinn finnur fyrir sömu elsku og samúð gagnvart ykkur.

Við, sem kristið fólk, keppum að því að vera eins og frelsarinn og endurspegla kærleika hans í öllu sem við gerum.

Kenningar Jesú Krists færa von og frið

Portrays Jesus in the Kitchen of Mary and Martha. Mary is sitting, listening to the Savior, who is seen in profile. Martha is to the left rear, working at a table, pouring water. The scene is lit by the flame of a single lamp. The painting is signed "Walter Rane" on the lower right.
Jesús Kristur var meistarakennari. Prédikanir hans, fluttar fyrir 2.000 árum, hvetja enn fólk um allan heim til að lifa betra lífi í dag. Hann kenndi fjöldanum, en Biblían kennir okkur að hann gaf sér líka tíma til að tengjast fólki hverju fyrir sig.

Sérhvert okkar, líka þið, getur fundið aukna gleði og frið með því að fylgja kenningum Jesú Krists. Í söfnuði ykkar í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru vikulegar samkomur, þar sem þið getið lært meira um hvernig kenningar þessar eiga við um ykkur persónulega. Mormónsbók geymir líka heimild um kenningar Krists sem geta bætt við kenningar Biblíunnar.

Vegna fórnar Krists, getið þið öðlast fyrirgefningu og lifað á ný

Fórn og dauði Jesú Krists

Þótt frelsarinn hafi lifað fullkomnu lífi, fannst sumum sér ógnað af áhrifum hans eða þeir reiddust þegar hann afhjúpaði hræsni þeirra. Þeir lögðu á ráðin um að láta drepa Jesú.

Kvöldið áður en Jesús Kristur var krossfestur fór hann í Getsemanegarðinn, þar sem hann þoldi sársauka og sjúkdóma allra barna Guðs. Þetta gerði honum mögulegt að veita hjálp og lækningu í öllum aðstæðum.

Því næst var hann svikinn, handtekinn, barinn, hæddur og negldur á kross. Þremur dögum síðar reis hann upp til lífs á ný og sigraði dauða og synd. Þó dauði Jesú Krists hafi verið hörmulegur og ranglátur, gerði guðleg fórn hans okkur öllum mögulegt að hljóta fyrirgefningu og rísa upp frá dauðum.

Við getum hlotið fyrirgefningu fyrir tilverknað friðþægingar Krists

Þegar Jesús Kristur þjáðist í Getsemanegarðinum og á krossinum, tók hann syndir okkar á sig. Hann greiddi gjald réttvísinnar, svo að við gætum öll hlotið miskunn. Þegar við iðrumst af einlægni, getum við hlotið fyrirgefningu.

Þó að syndir yðar séu sem skarlat skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó að þær séu rauðar sem purpuri skulu þær verða sem ull.
Við getum lifað aftur fyrir tilstuðlan upprisunnar

Jesús Kristur reis upp frá dauðum á þriðja degi eftir krossfestingu sína. Vegna hans, getur hvert okkar einnig risið upp og lifað á ný. Við getum lifað með Guði og ástvinum okkar í fullkomnum líkama, laus við sjúkdóma, sorg og sársauka.
Christ stands in a field and watches over the sheep.

Þið getið fylgt Jesú Kristi

Frelsaranum er annt um ykkur og hann skilur ykkur. Hann hefur upplifað byrðar erfiðustu rauna ykkar og þjáðst fyrir syndir ykkar. Hann býður ykkur að fylgja sér og finna frið.
„Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld.

Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.“

Kynnist Jesú Kristi

Þið getið átt persónulegt samband við frelsara ykkar. Byrjið á því að ræða við trúboða á netinu eða augliti til auglitis um hvernig þið getið fylgt Jesú Kristi.