Mormónsbók og Biblían eru orð Guðs

Mormónsbók og Biblían kenna okkur um áætlun Guðs og vitnisburð um Jesú Krist.

Heilög ritning leiðir okkur nær Jesú Kristi

Orð Guðs hefur verið gefið spámönnum og skráð í helgar ritningar. Það færir okkur nær Jesú Kristi að læra þessa texta.

Holy Scripture Guides Us Closer to Jesus

Mormónsbók er orð Guðs

Meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu meta Biblíuna og Mormónsbók sem vitni um Jesú Krist. Mormónsbók er guðlega innblásin heimild, líkt og Biblían, sem fornir spámenn tóku saman. Að læra báðar bækurnar getur veitt innblástur, innsýn og leiðsögn.
What is the Book of Mormon about - In App

Um hvað er Mormónsbók?

Mormónsbók segir frá því hvernig fagnaðarerindi Jesú Krists hafði áhrif á og blessaði fólk sem bjó í Ameríku til forna.

Hún hefst á frásögn um spámann að nafni Lehí. Guð varaði hann við því um 600 f.Kr. að Jerúsalem yrði lögð í eyði. Lehí og eiginkona hans, Saría, voru leidd af anda Guðs til að flytja fjölskyldu sína yfir hafið.

Afkomendur þeirra urðu að lokum tvær þjóðir, sem kölluðust Nefítar og Lamanítar. Frásagnir þeirra í Mormónsbók eru lýsandi fyrir trú á Guð, miskunn Guðs fyrir öll börn hans og aðvaranir gegn synd.

Hápunktur Mormónsbókar er heimsókn frelsarans til fylgjenda sinna í Ameríku, eftir dauða hans og upprisu. Heimsóknin uppfyllti kenninngar hans í Jerúsalem:
Ég á líka aðra sauði sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína.
Eftir að Jesús Kristur kenndi kenningu sína og stofnaði kirkju sína í Ameríku, lifði fólkið í friði og réttlæti í nokkrar kynslóðir.

Að lokum féll fólkið í stríð og ranglæti og Nefítunum var tortímt. Mormón, einn af síðustu eftirlifandi Nefítunum, safnaði heimildum Nefíta saman í það sem á okkar tímum yrði þekkt sem Mormónsbók: Annað vitni um Jesú Krist.

Hvernig fengum við Mormónsbók?

Snemma á nítjándu öldinni valdi Guð Joseph Smith sem spámann til að endurreisa kirkju sína. Guð opinberaði hvar hinar fornu heimilir voru faldar og bjó Joseph undir að þýða þær með guðlegri opinberun.

Síðan þá hafa 192 milljónir eintaka af Mormónsbók verið prentuð og hún hefur verið þýdd yfir á 115 tungumál. Mormónsbók hefur innblásið milljónir til að verða trúfastari fylgjendur Jesú Krists. Hún getur líka veitt ykkur innblástur.

Hvar get ég lesið hana?

Þið getið lesið Mormónsbók á netinu eða í smáforriti Mormónsbókar. Þið getið líka fengið bókina afhenda heim að dyrum ykkur að kostnaðarlausu.
Series of images of people studying in groups, individually, in families sitting in Congo

Biblían er orð Guðs

Hin helga Biblía er heilög ritning sem Guð hefur gefið okkur – börnum sínum – okkur til góðs. Kenningar hennar geta veitt ykkur styrk, innblástur og leiðsögn.

Með því að lesa Gamla testamentið, getið þið:

  • Lært um sköpun jarðar.
  • Lesið um það hvernig fornir spámenn, eins og Jesaja, sögðu fyrir um komu Jesú Krists.
  • Fundið áhrifamikil dæmi um trú, eins og um Ester drottningu.
  • Fundið huggun í fallegum ljóðum Sálmanna og Orðskviðanna.


Með því að lesa Nýja testamentið, getið þið:

  • Lært meira um frelsara ykkar, Jesú Krist, er þið lesið um líf hans, kraftaverk og fullkomið fordæmi.
  • Fundið leiðina að innihaldsríkara og friðsælla lífi og eilífri sáluhjálp.
  • Lært um fórn Jesú Krists fyrir ykkur og um upprisu hans. Vegna hans getið þið náð guðlegum möguleikum ykkar sem barn Guðs og búið ykkur undir að lifa með Guði og ástvinum ykkar að eilífu.
A boy is reading his scriptures.  The scriptures are open to Philemon.

Mormónsbók og Biblían bera vitni um Jesú Krist.

Mormónsbók og Biblían bera vitni um Jesú Krist og kenna um áætlun Guðs fyrir hamingju okkar.



Hvorug kemur í stað hinnar; þess í stað bæta þær upp kenningar hvorrar annarrar.



Með því að læra Mormónsbók og Biblíuna saman, getið þið öðlast meiri skilning á Guði og sambandi ykkar við hann.

Efnisatriði í Mormónsbók og Biblíunni

Með því að læra Mormónsbók og Biblíuna saman, getið þið öðlast meiri skilning á Guði og sambandi ykkar við hann. Lærið t.d. hvað báðar bækurnar hafa að segja um þessi efni:
Jesús Kristur er frelsari heimsins. Fórn hans var fyrir okkur öll. Með því að fylgja honum, getum við fundið frið, von og fyrirgefningu.

Biblían
„Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir, fyrirlitinn og vér mátum hann einskis.

En vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði. Vér álitum honum refsað, hann sleginn og niðurlægðan af Guði.

En hann var særður vegna vorra synda, kraminn vegna vorra misgjörða. Honum var refsað svo að vér fengjum frið og fyrir benjar hans urðum vér heilbrigðir“ (Jesaja 53:3–5)

Mormónsbók

„Og hann mun ganga fram og þola alls kyns sársauka, þrengingar og freistingar. Og svo mun verða, til að orðið megi rætast, sem segir, að hann muni taka á sig sársauka og sjúkdóma fólks síns.

Og hann mun líða dauða til að leysa helsi dauðans, sem fjötrar fólk hans. Og hann mun kynnast vanmætti þess, svo að hjarta hans fyllist miskunn samkvæmt holdinu, svo að hann megi vita í holdinu, hvernig fólki hans verður best liðsinnt í vanmætti þess“ (Alma 7:11–12).
Guð skapaði okkur til að við gætum lært og vaxið. Þegar við fylgjum Jesú Kristi, getum við orðið eins og hann.

Biblían

„En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki“ (Matteus 6:33).

Mormónsbók

„Því að sjá. Þetta líf er tími mannanna til að búa sig undir að mæta Guði. Já, sjá. Dagur þessa lífs er dagurinn, sem menn hafa til að leysa verk sitt af hendi.

Og eins og ég sagði við ykkur áður, þar eð þið hafið fengið svo marga vitnisburði, grátbið ég ykkur um að skjóta ekki degi iðrunar ykkar á frest til hins síðasta. Því að eftir þennan lífsdag, sem okkur er gefinn til að búa okkur undir eilífðina, sjá, ef við nýtum ekki betur tíma okkar hér í þessu lífi, þá kemur nótt myrkursins, en þá er ekkert verk hægt að vinna“ (Alma 34:32–33).
Lífinu lýkur ekki þegar einhver deyr. Við lifðum hjá Guði áður en við komum til jarðar og getum snúið aftur til hans. Vegna Jesú Krists, geta allir menn sem deyja risið upp og lifað með Guði til eilífðar.

Biblían

Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.

Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja“ (Jóhannes 11:25–26 ).


Mormónsbók

„Og þá ber svo við, að tekið er við öndum þeirra, sem réttlátir eru, inn í sæluríki, sem nefnist paradís, ríki hvíldar og friðar, þar sem þeir hvílast frá öllu erfiði, áhyggjum og sorgum.

Sálin mun sameinuð líkamanum og líkaminn sálunni. Já, hver limur og hver liðamót munu aftur endurreist á líkamann. Já, og ekki svo mikið sem eitt höfuðhár mun glatast, heldur mun allt endurreist í sína réttu og fullkomnu umgjörð.

Og þá mun ljóma af hinum réttlátu í Guðs ríki“ (Alma 40:12, 23, 25 ).
Þegar við þjónum öðrum, breytum við eins og Jesús Kristur myndi gera. Við þjónum Guði.

Biblían

„Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér“ (Matteus 25:40).

„Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína“ (Jóhannes 15:13).

Mormónsbók

„Þegar þér eruð í þjónustu meðbræðra yðar, eruð þér aðeins í þjónustu Guðs yðar“ (Mósía 2:17).

Fáið alla söguna

Mormónsbók og Biblían kunna að vera aðskildar bækur, en þær eru hluti af sömu sögu. Fáið kynningu á Mormónsbók og lærið báðar ritningarbækurnar með trúboðum.