Líf ykkar hefur tilgang og þýðingu

Lífið á jörðinni varð ekki til af tilviljun. Þið eruð börn Guðs og eruð hér sem hluti af hamingjuáætlun hans.
Find Answers Through Jesus

Þið eruð hér af ástæðu

Hafið þið einhvern tíma velt fyrir ykkur hvers vegna þið eruð hér?

Við trúum að hvert og eitt okkar hafi verið til áður en jörðin var sköpuð og að við lifðum hjá Guði sem börn hans í formi anda. Himneskur faðir sendi sérhvert okkar hingað, svo við gætum hlotið líkama, lært og orðið líkari honum. Þegar við fylgjum áætlun Guðs, getum við snúið aftur til að lifa í návist hans.

Ef ykkur hefur einhvern tíma fundist þið hafa meiri tilgang en bara að vera til, þá hafið þið rétt fyrir ykkur. Þið getið fundið tilgang með því að snúa ykkur til Guðs.
A mother stands and comforts her son in their home

Guð vill að þið séuð hamingjusöm

Fagnaðarerindi Jesú Krists lofar þeim friði, styrk og gleði sem fylgja boðorðum Guðs og skírast í kirkju Krists.
Adam féll, svo að menn mættu lifa. Og menn lifa, svo að þeir megi gleði njóta.
Hvernig getur gleði verið tilgangur okkar þegar lífið er fullt af svo mikilli baráttu? Jesús Kristur er svarið.

Við getum fundið huggun í sorgum okkar fyrir milligöngu Jesú Krists og hlotið styrk í erfiðleikum. Við getum fundið til þakklætis fyrir hina mörgu fallegu hluti sem við getum notið á þessari jörðu. Við getum bætt sambandið við þau sem við elskum með því að lifa eftir reglunum sem hann kenndi í Biblíunni: Samúð, þjónustu, fyrirgefningu og elsku.

Með því að sjá okkur fyrir frelsara, fyrirbjó Guð öllum börnum sínum leið til að finna gleði.
South Africa.  Braai (or barbecue).  Two women standing outside near a gate.

Lífið er tími til að læra og vaxa

Þegar þið farið gegnum erfiðar stundir, getur verið gagnlegt að hafa í huga að áætlun Guðs fyrir ykkur nær út fyrir ykkar jarðneska líf. Þegar þið gerið ykkar besta til að fylgja honum, verður allt sem þið upplifið fært í rétt horf dag einn fyrir tilstilli Jesú Krists. Við vitum að hann „mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til“ (Opinberunarbók Jóhannesar 21:4).
An elderly man stands outside in Brazil while his wife kisses his cheek.
Lífinu fylgja sársaukafullar upplifanir, því í áætlun Guðs geta þrengingarnar orðið okkur til góðs og vaxtar. Þessi barátta getur hjálpað okkur að öðlast eiginleika eins og:
  • Styrk. Líkt og líkamleg áreynsla getur styrkt okkur líkamlega, getur andtaðan sem við horfumst í augu við allt lífið styrkt okkur andlega, hugarfarslega og tilfinningalega. Þessi styrkur getur hjálpað okkur að standast storma lífsins.
  • Samúð. Þegar þið takist á við áskoranir, þá eykst samúð ykkar. Þegar þið síðan notið reynslu ykkar til að hjálpa öðrum í svipuðum aðstæðum, hjálpið þið til við að vinna verk Guðs á jörðu.
  • Þolinmæði. Þar sem við höfum ekki stjórn á svo mörgu, þar með talið gjörðum annarra, getum við „sett traust okkar á Drottin“ (Sálmarnir 27:14). Við getum trúað því að allt sem við þjáumst fyrir á óréttmætan hátt, verði að lokum leiðrétt fyrir tilstilli Jesú Krists.

Þið getið breyst

Young women in Thailand pick berries off a bush.  They are laughing and enjoying themselves.
Guð hefur alltaf vitað að þið mynduð gera mistök og þyrftuð hjálp til að sigrast á sorg og synd. Hluti af áætlun Guðs, var að hann sá okkur fyrir frelsara og lausnara, Jesú Kristi, til að þjást og deyja fyrir ykkur og fyrir hvern þann einstakling sem lifað hefur. Vegna fórnar Jesú Krists, getið þið fundið fyrirgefningu og lækningu.

Með hjálp frelsarans getið þið sigrast á synd, veikleikum, slæmum venjum og ánetjun, sem hefur haldið aftur af ykkur. Þið getið orðið kærleiksríkari, fúsari til að fyrirgefa, auðmjúkari og þolinmóðari en þið hafið verið. Þegar þið verðið líkari Kristi, munuð þið hafa aukna þrá til að halda áfram á vegi hans og snúa aftur til dvalar hjá Guði.

Læra meira um áætlun Guðs

Guð er með áætlun fyrir ykkur. Lærið með trúboðum um tilgang lífsins í heimsókn á netinu eða í eigin persónu.