Fjölskyldur geta verið saman að eilífu

Þau fjölskyldubönd sem þið myndið í þessu lífi geta varað handan dauðans. Að styrkja samband ykkar við Guð, getur leitt til sterkara sambands við fjölskyldu ykkar.
A family enjoys their time together as they walk down a sidewalk.

Fjölskyldur eru kjarninn í áætlun Guðs

Guð, sem kærleiksríkur faðir ykkar á himnum, vill að þið lærið og vaxið í lífinu. Fjölskyldur gegna mikilvægu hlutverki í þeim vexti. Við trúum:
  • Fjölskyldur eru mikilvægur grunnur öflugs samfélags.
  • Heimilið getur verið staður þar sem við finnum stuðning, öryggi og kærleika.
  • Að tengjast Guði, hjálpar við að skapa sterkar fjölskyldur, þar sem andlegum, tilfinningalegum og líkamlegum þörfum er mætt.

Þið getið verið eilíflega með fjölskyldu ykkar

Ef fjölskylda ykkar er uppspretta kærleika og gleði í lífi ykkar, gæti verið erfitt að ímynda sér himnaríki án sambands við það fólk. Hluti af góðu fréttum fagnaðarerindis Jesú Krists er að fjölskyldur geta verið saman að eilífu.

Í Biblíunni veitti Jesús postulunum tólf prestdæmisvald og lofaði að „hvað sem þér bindið á jörðu mun bundið á himni“ (Matteus 18:18). Þetta sama vald frá Guði sameinar – eða innsiglar – eiginmenn og eiginkonur, foreldra og börn saman um eilífð.

Family life in Hong Kong.  Images include: Family at ocean, laughing together, reading, praying, playing games etc.
Hjónavígslur eru framkvæmdar í musterum með þessu sama valdi, með því loforði að hjónaband þeirra sem eru trú Guði og hvort öðru geti varað um eilífð, en ekki endað við dauða.

Við framkvæmum þessar sömu innsiglunarathafnir í þágu áa okkar, sem við trúum að geti valið hvort heldur að taka á móti eða hafna innsiglununum.

Fjölskyldusambönd og aðstæður geta verið flókin og við vitum ekki nákvæmlega hvernig allt mun ganga upp í næsta lífi. En við trúum á fullkomna visku og kærleika Guðs og við trúum að himinninn verði staður ólýsanlegrar gleði.

Þið getið fundið hjálp til að styrkja fjölskyldu ykkar

Julie Hillyard On Family
Julie Hillyard um fjölskyldusambönd
Finna gleði í fjölskyldu sem lítur öðruvísi út
Líklegast er að ástrík fjölskyldusambönd náist þegar byggt er á þeim reglum sem Jesús Kristur kenndi, sem eru:
  • Kærleikur
  • Fyrirgefning
  • Heiðarleiki
  • Þakklæti
  • Bæn
  • Sameiginleg tilbeiðsla
Þegar fjölskylda ykkar kemst nær Guði vegna þessara eiginleika og venja, munuð þið verða nánari hvert öðru.

Þar sem við trúum að fjölskyldur séu svo mikilvægar í þessu lífi og því næsta, vinnur Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hörðum höndum að því að styðja við heilbrigð fjölskyldusambönd. Hér eru nokkrar leiðir til að finna stuðning fyrir fjölskyldu ykkar.

Kirkjuefni fyrir fjölskyldur

Kirkjan býður upp á gögn fyrir einstaklinga og fjölskyldur til notkunar við að læra fagnaðarerindi Jesú Krists. Þessi námsgögn veita ykkur tækifæri til að tileinka ykkur það sem þið lærið og auka við trú ykkar. Reglurnar eru undirstrikaðar í hverri viku í kirkjunni.

Fáið aðgang að námsáætluninni sem kallast Kom, fylg mér.
Ungmennaáætlun kirkjunnar styður foreldra við að kenna börnum sínum kristileg gildi og gerir unglingum kleift að tengjast öðrum sem hafa svipuð gildi. Sum tækifæri fyrir ungmenni eru:
  • Trúarbekkir
  • Vikulegir viðburðir ungmennahópa
  • Þjónustuverkefni
  • Dansleikir
  • Sumarbúðir
  • Ráðstefnur
Heimiliskvöld er hefð þar sem fjölskyldur eru hvattar til að verja tíma saman eitt kvöld í viku. Það gæti verið að læra fagnaðarerindið, fara í leiki, njóta matar og taka þátt í öðrum verkefnum sem stuðla að einingu. Það sem virkar best fyrir fjölskyldu ykkar er frábært! Mikilvægast er að hafa góðar fjölskyldustundir í fyrirrúmi. Þetta gæti líka verið tími til að safnast saman með vinum, nágrönnum og safnaðarmeðlimum.
Kirkjumeðlimum er úthlutað að þjóna nokkrum einstaklingum innan safnaðar síns. Þegar við þjónum fólki, reynum við að þjóna því eins og frelsarinn myndi gera. Það tryggir að allir meðlimir safnaðarins hafi einhvern sem vakir yfir þeim og einhvern sem þeir geta leitað til ef þá vantar eitthvað. Þjónandi bróðir eða systir gæti t.d. boðið akstur í kirkju, séð til þess að máltíðir séu gefnar þegar fjölskyldan eignast nýtt barn eða einfaldlega verið vinaleg á bekkjunum.
Ef fjölskyldur eða einstaklingar eiga í erfiðleikum með að sjá fyrir þörfum sínum, getur velferðarstarf kirkjunnar aðstoðað með úrræði eins og matvörur. Vinnumiðlun kirkjunnar getur aðstoðað fólk við að finna nýtt starf eða auka færni sína í atvinnuleit. Við bjóðum upp á námsbekki á vegum kirkjunnar, sem eru öllum opin, um persónuleg fjármál, tilfinningalegt þolgæði og að stofna fyrirtæki.
Hver einstaklingur er hluti af fjölskyldu okkar himnesku foreldra. Ekki búa allir sem fara í kirkju hjá fjölskyldu, en allir geta fundið andlegan stuðning og samfélag í kirkjunni. Einhleypt fullorðið fólk getur valið að tilbiðja í söfnuði sem inniheldur fjölskyldur og börn – eða á sumum svæðum heimsins geta þau sótt söfnuð sem er sérstaklega fyrir einhleypt fólk í þeirra aldurshópi. Að sækja trúarlega bekki og félagsstarf sérstaklega fyrir einhleypt fullorðið fólk, getur veitt einstakt tækifæri til vináttu og andlegs þroska.

Tölum um fjölskylduna

Kirkjan getur hjálpað ykkur að styrkja fjölskyldu ykkar og varðveita dýrmæt sambönd um eilífð. Þið getið lært meira með því að ræða við trúboðana á netinu eða í eigin persónu.