Guð þekkir ykkur og elskar
Guð elskar öll börn sín – sem þýðir að Guð elskar ykkur. Með bæn getið þið komist nær himneskum föður ykkar og lært að þekkja kærleiksríka leiðsögn hans í lífi ykkar.
Þið eruð börn Guðs
Einn mesti sannleikur Biblíunnar er sá að við erum öll „Guðs ættar“ (Postulasagan 17:29 ), sköpuð í hans mynd. Sem börn Guðs hafið þið óendanlega möguleika og eruð af óendanlegu virði.
Guð þekkir ykkur persónulega
Jesús Kristur kenndi að Guð væri meðvitaður um okkur. Hann veit í hvert sinn sem spörfugl fellur til jarðar og við erum honum „[verðmætari] en margir spörvar“ (Matteus 10:29–31
). Í gegnum alla erfiðleika sem þið takist á við, eruð þið aldrei ein. Guð þekkir ykkur fullkomlega og veit hvað þið þurfið til að hjálpa ykkur að standast áskoranir ykkar og finna elsku hans.
Guð hlustar eins og ástríkur faðir
Sem faðir okkar á himnum, vill Guð heyra frá okkur. Hann vill óðfús veita ykkur leiðsögn og þið getið rætt við hann í bæn.Guð vill samskipti
Bæn er meira en bara helgisiður eða leið til að segja himnum hvað við viljum – hún er samskipti. Þið getið talað við Guð um það sem þið eruð þakklát fyrir, vonir ykkar og drauma, áhyggjur ykkar og það sem þið þarfnist.Guð heyrir og svarar
Guð heyrir og svarar bænum okkar. Svör við bænum munu alltaf berast, jafnvel þótt þau taki tíma eða séu ekki svörin sem við væntum eða vonuðust eftir. Við getum mildað hjörtu okkar til að meðtaka vilja hans fyrir okkur. Bænasvör geta verið af mörgum toga, meðal annars gegnum hugsanir og tilfinningar, verk einhvers umhverfis ykkur eða ritningarvers sem snertir hjarta ykkar.Sjálfur andinn vitnar með anda okkar að við erum börn Guðs.
Eigið þið erfitt með að skynja elsku Guðs?
Ef þið glímið við efasemdir eða ykkur finnst þið vera fjarlæg Guði, getið þið lært að þekkja betur nærveru hans í lífi ykkar.
- Takið frá tíma dag hvern til að útiloka truflanir og tengjast Guði.
- Biðjist fyrir reglubundið. Biðjið um að finna elsku hans!
- Lærið orð Guðs í ritningunum.
- Haldið dagbók til að skrá blessanir og andleg hughrif.
- Ræðið við trausta vini og fjölskyldu um það hvernig þau finna fyrir elsku Guðs.
- Iðkið kristilegan kærleika með þjónustu og fyrirgefningu.