Jesú Kristur kenndi okkur að elska hvert annað

Jesús Kristur er hin fullkomna fyrirmynd um kærleika Að fylgja honum, er að elska Guð og þjóna þeim sem umhverfis eru.

Æðstu boðorðin tvö

Jesús Kristur kenndi að tvö æðstu boðorðin væru að elska Guð og að elska aðra


„Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.

Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð.

Annað er þessu líkt: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“
Missionaries helping distribute food during a service project in Hong Kong.
Frelsarinn gerði ljóst að það að elska náunga sinn, er meira en að vera góður við fólkið sem býr nálægt ykkur. Hluti af ábyrgð fylgjenda hans er að sýna öllum kærleika – hina hreinu ást Krists – og líka þeim sem þið gætuð talið óvini ykkar.

Hvernig kirkjan okkar sýnir kærleika

Við trúum því að samvinna við að sýna kristilegan kærleika sé eitt það mest græðandi, gleðilega og sameinandi sem söfnuður getur gert. Hér eru nokkrar leiðir sem við veitum þjónustu og við viljum gjarnan fá þig til að vera með!

Velferðarþjónusta

Hvarvetna í kirkjunni eru meðlimir hvattir til að fasta mánaðarlega og vera án matar og drykkjar í um það bil 24 klukkustundir (ef þeir hafa líkamlega getu til þess). Kirkjumeðlimir gefa síðan peninginn sem hefði verið notaður í þessar máltíðir, til hjálpar hinum þurfandi.

Með þessum framlögum geta staðarleiðtogar veitt fjárhagsaðstoð með matvæli, húsnæði og samgöngur. Kirkjuleiðtogar hjálpa líka einstaklingum sem hljóta aðstoð að gera áætlun um hvernig bæta megi aðstæður þeirra, oft með því að nota fleiri úrræði, svo sem atvinnumiðlun, ráðgjöf hjá fjölskylduþjónustu, sjálfsbjargarnámskeið og fleira.

Þessi aðstoð gerir hinum nauðstöddu kleift að finna elsku frelsarans, sem og elsku samfélags síns – einkum þegar þeir eiga erfitt.

Hjálparstarf vegna hamfara

Þegar náttúruhamfarir, stríð og aðrar hörmungar herja á, koma kirkjan og meðlimir hennar saman til að útvega matvæli, sjúkravörur, fatnað og aðrar nauðsynjar.

Kirkjan á samstarf við áreiðanleg samtök til að takast á við þær einstöku þarfir sem upp koma í hverjum aðstæðum, nýta staðbundna söfnuði til að gera hluti eins og að safna og flokka framlög, hreinsa rusl og brak og útvega matvæli, fatnað, skjól og veita tilfinningalegan stuðning þegar þörf krefur.

Mannúðarsjóður

Kirkjan vinnur að því að annast þá sem búa við neyð um allan heim með fjölbreyttum áætlunum og verkefnum.

Þetta starf er breytilegt, háð ákveðnum þörfum mismunandi svæða. Kirkjan leggur sérstaka áherslu á að bæta aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, mæðra- og nýburavernd, heilsugæslu, menntun, fæðuöryggi og aðstoð fyrir flóttafólk.

Að vinna með traustum samtökum við að koma þessum verkefnum í framkvæmd, hjálpar kirkjunni að hámarka þjónustuviðleitnina.

Hirðisþjónusta

Innan safnaða okkar er meðlimum skipt í teymi og úthlutað nokkrum einstaklingum til að „þjóna“. Hirðisþjónusta snýst um að stuðla að kristilegri vináttu. Hugsið um þetta eins og vinakerfi – hirðisþjónar ykkar bjóða upp á innbyggt stuðningskerfi sem þið getið tengst á góðum stundum og leitað til þegar á þarf að halda.

Elizabeth Edwards On Church Community
Kirkjusamfélagið sýndi mér að ég var ekki ein/einn

Hvernig þið getið sýnt elsku

Hvernig lítur það út fyrir ykkur persónulega að elska náungann? Hér eru nokkrar hugmyndir um hvernig að elska náungann:
  • Biðjist fyrir um tækifæri til að sýna góðvild allan daginn.
  • Vinnið að því að fyrirgefa þeim sem ykkur finnst hafa beitt ykkur órétti.
  • Mælið gegn einelti, kynþáttafordómum og annars konar mismunun
  • Breiðið út jákvæðan boðskap og verið góð við aðra á samfélagsmiðlum.
  • Gætið að vinum sem eru að ganga í gegnum erfiðleikatíma.
  • Hrósið einhverjum einlæglega.
  • Styðjið viðleitni og samtök í því að annast hina þurfandi.
Þið getið líka fundið þjónustuverkefni á ykkar svæði eða leiðir til að þjóna með fjarþjónustu með því að skoða JustServe.org.

Komið og takið þátt í þjónustu með okkur!

Ef þið eruð að leita að samfélagi kærleiksríks fólks sem vill gera heiminn að betri stað, viljum við gjarnan fá ykkur til liðs við okkur! Þið getið lært meira um kirkjuna okkar af meðlimum sem bjóða sig fram sem trúboðar á svæði ykkar.