Ó Guð, eilífi faðir, við biðjum þig, í nafni sonar þíns, Jesú Krists, að blessa og helga þetta brauð fyrir sálir allra þeirra er af því neyta; að þau megi eta í minningu um líkama sonar þíns og vitna fyrir þér, ó Guð, eilífi faðir, að þau séu fús til að taka á sig nafn sonar þíns og hafa hann ávallt í huga og halda boðorð hans, sem hann hefur gefið þeim, svo að þau megi ætíð hafa anda hans með sér. Amen.