Blessun brauðsins
Ó Guð, eilífi faðir,
við biðjum þig, í nafni sonar þíns, Jesú Krists,
að blessa og helga þetta brauð
fyrir sálir allra þeirra er af því neyta;
að þau megi eta í minningu um líkama sonar þíns
og vitna fyrir þér, ó Guð, eilífi faðir,
að þau séu fús til að taka á sig nafn sonar þíns
og hafa hann ávallt í huga
og halda boðorð hans, sem hann hefur gefið þeim,
svo að þau megi ætíð hafa anda hans með sér.
Amen.