Blessun vatnsins
Ó Guð, eilífi faðir,
við biðjum þig, í nafni sonar þíns, Jesú Krists,
að blessa og helga þetta vatn
fyrir sálir allra þeirra er af því drekka;
að þau megi gera það í minningu um blóð sonar þíns,
sem úthellt var fyrir þau;
að þau megi vitna fyrir þér, ó Guð, eilífi faðir,
að þau hafi hann ávallt í huga,
svo að þau megi hafa anda hans með sér.
Amen.