Doctrine and Covenants 2025
22.–28, desember: „Hin óviðjafnanlega gjöf sonar Guðs“: Jól


„22.–28, desember: ‚Hin óviðjafnanlega gjöf sonar Guðs,‘“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)

„Jól,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025

María og Jesúbarnið

Hluti af Fæðing Jesú í kopar og leir, eftir J. Kirk Richards

22.–28, desember: „Hin óviðjafnanlega gjöf sonar Guðs“

Jól

Spámaðurinn Joseph Smith kenndi: „Grundvallarreglur trúar okkar eru vitnisburður postulanna og spámannanna um Jesú Krist, að hann dó, var grafinn og reis upp á þriðja degi og sté upp til himins, og allt annað í trúarbrögðum okkar er aðeins viðauki við það“ (Kenningar forseta kirkjunnar: Joseph Smith, [2011], 49). Yfir 160 árum síðar innblés þessi setning Æðsta forsætisráðið og Tólfpostulasveitinni til að gefa út skjalið „Hinn lifandi Kristur: Vitnisburður postulanna“ til heiðurs 2000 ára fæðingarafmæli Jesú Krists (sjá Russell M. Nelson, „Að færa kraft Jesú Krists inn í líf okkar,“ aðalráðstefna, apríl 2017).

Við, sem Síðari daga heilög, gleðjumst í blessun viðvarandi opinberunar fyrir milligöngu spámanna og postula. Við erum þakklát fyrir hina innblásnu leiðsögn þeirra, aðvaranir og hvatningu. Framar öllu erum við þó blessuð af máttugum vitnisburðum þeirra um Jesú Krist – á jólum og út allt árið. Þetta eru meira en einungis áhrifamikil orð hæfra greinarhöfunda eða ræðuflytjenda eða sérfræðinga í efni ritninganna. Þetta eru orð hinna útvöldu Guðs, sem eru kallaðir og gæddir valdsumboði sem „sérstök vitni nafns Krists um allan heim“ (Kenning og sáttmálar 107:23).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili eða í kirkju

„Enginn annar hefur haft svo djúpstæð áhrif.“

Hvað mynduð þið segja til stuðnings fullyrðingunni um að „enginn annar hefur haft svo djúpstæð áhrif [eins og Jesús Kristur] á þá sem lifað hafa og lifa munu á jörðu“? Gætið að málsgreinum í skjalinu „Hinn lifandi Kristur,“ sem bera vitni um djúpstæð áhrif frelsarans. Hvernig hefur hann haft áhrif á ykkur?

Ímyndum okkur að einhver sé svo ókunnugur kristni að hann spyrði ykkur hvers vegna þið haldið jól. Hverju svarið þið? Lesið yfir skjalið „Hinn lifandi Kristur“ með þessa spurningu í huga og íhugið að skrifa niður allar þær hugsanir eða hughrif sem berast ykkur.

Sjá einnig „Why We Need a Savior“ (myndband), Gospel Library.

2:15

Why We Need a Savior

„Hann reis upp frá dauðum.“

Í skjalinu „Hinn lifandi Kristur,“ bera postularnir vitni um upprisu frelsarans og greina frá þremur birtingum hins upprisna Drottins (sjá málsgrein 5). Hugleiðið að lesa nokkrar frásagnir um þessar vitjanir í Jóhannes 20; 3. Nefí 11; og Joseph Smith – Saga 1:14–20. Hvað lærið þið um frelsarann af orðum hans og verkum í þessum vitjunum?

Einblínið á frelsarann. „Sé skjalið ,Hinn lifandi Kristur‘ lesið í bænaranda, þá er það líkt því að lesa vitnisburð Matteusar, Markúsar, Lúkasar, Jóhannesar og spámanna Mormónsbókar. Það mun auka trú ykkar á frelsarann og auðvelda ykkur að einblína á hann“ (M. Russell Ballard, „Endurkoma og endurgjald,“ aðalráðstefna, apríl 2017).

„Prestdæmi hans og kirkja hafa verið endurreist.“

Í námi ykkar á Kenningu og sáttmálum á þessu ári hefur ykkur gefist tækifæri til að læra meira um hvernig „Prestdæmi [frelsarans] og kirkja hafa verið endurreist.“ Hvaða endurreistur sannleikur eða regla hefur verið ykkur einkar mikilvæg? Íhugið að lesa einhver eftirtaldra ritningarversa, sem kenna um endurreisnina: Kenning og sáttmálar 1:17–23; 13; 20:1–12; 65; 110; 112:30–32; 124:39–42; 128:19–21. Ígrundið hvernig sannleikur hins endurreista fagnaðarerindis gerir ykkur kleift að þekkja og elska Jesú Krist.

„Hann [mun] dag einn snúa til jarðar á ný.“

Á jólum er tilvalið að horfa til baka til þess tíma er Jesús Kristur fæddist og fram til tíma endurkomu hans. Hvað lærið þið um endurkomu hans í næstsíðustu málsgreininni í „Hinn lifandi Kristur“? Þið gætuð líka íhugað að lesa, syngja eða hlusta á jólasálma sem kenna um síðari komuna, eins og t.d. „Fagna þú veröld“ eða „Ljós heimsins” (Sálmar, nr. 76, 80).

trúarskólatákn
„Hann er ljós, von og líf heimsins.“

Gætið að eiginleikum og titlum frelsarans í síðustu málsgreininni í „Hinn lifandi Kristur.“ Hugleiðið að verja tíma í að læra um nokkra þeirra. Dæmi:

Ljós: Hvernig er Jesús Kristur eins og ljós fyrir ykkur? Þið gætuð hugleitt að teikna mynd eða taka ljósmynd, sem táknar ljósið sem hann veitir ykkur. Hvað finnst ykkur þið hvött að gera til að miðla ljósi hans? (Sjá einnig Jóhannes 8:12; 3. Nefí 18:24; Kenning og sáttmálar 50:24.)

Líf: Hvers vegna haldið þið að líf sé gott orð til að lýsa Jesú Kristi? Á hvern hátt veitir hann ykkur líf? Hvernig mundi líf ykkar vera öðruvísi án hans og fagnaðarerindis hans? (Sjá einnig Jóhannes 10:10; 1. Korintubréf 15:19–23; Kenning og sáttmálar 66:2.)

Von: Hvaða von eigið þið vegna Jesú Krists og fagnaðarerindis hans? Þekkið þið einhvern sem upplifir vonleysi yfir framtíðinni? Ígrundið hvernig þið gætuð miðlað þessum einstaklingi þeirri von sem þið eigið í Jesú Kristi. (Sjá einnig Rómverjabréfið 8:24–25; Eter 12:4; Moróní 7:41.)

Sjá einnig Topics and Questions, „Jesus Christ,“ Gospel Library.

Jesús Kristur

„Guði séu þakkir fyrir [sína] óviðjafnanlegu gjöf.“

Í skjalinu „Hinn lifandi Kristur“ vísa postularnir til frelsarans sem „gjöf“ frá himneskum föður okkar. Byggt á því sem þið finnið í skjalinu „Hinn lifandi Kristur,“ hvernig mynduð þið ljúka þessari setningu: „Í gegnum Jesú Krist, gefur Guð mér gjafir …“? Hugleiðið hvað þið getið gert til að meðtaka þessar gjafir enn fyllilegar.

Á hvaða hátt hefur nám á skjalinu „Hinn lifandi Kristur“ haft áhrif á trú ykkar á frelsarann og elsku ykkar til hans?

Sjá einnig Russell M. Nelson, „Four Gifts That Jesus Christ Offers to You“ (jólasamkoma Æðsta forsætisráðsins, 2. des. 2018), Gospel Library; „Excerpts from the ,Living Christ: The Testimony of the Apostles‘“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org

2:46

Excerpts from "The Living Christ: The Testimony of the Apostles"

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

barnahluti tákn 03

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Ég get „[borið] vitni“ til að fagna fæðingu Jesú.

  • Hugleiðið hvernig þið gætuð sagt börnum ykkar frá skjalinu „Hinn lifandi Kristur.“ Kannski gætuð þið hjálpað þeim að benda á nafnið Kristur í titlinum og undirskriftir Æðsta forsætisráðsins og hinna Tólf. Þið gætuð útskýrt að þetta sé vitnisburður þeirra um Jesú Krist og að þeir hafi viljað miðla honum heiminum.

  • Þið gætuð fengið hverju barni orðtak úr skjalinu „Hinn lifandi Kristur“ og beðið þau að finna eða teikna mynd af því orðtaki. Því næst gætuð þið hjálpað þeim að finna orðtakið í skjalinu „Hinn lifandi Kristur.“ Þið gætuð jafnvel tekið þessar myndir og orðtök saman í eina bók.

  • Miðlið hverju öðru hvernig þið hlutuð vitnisburð ykkar um Jesú Krist. Kannski gætuð þið rétt áfram mynd af frelsaranum og skiptst á við að segja eitthvað sem þið vitið um hann (þar á meðal sannleik sem kenndur er í skjalinu „Hinn lifandi Kristur“).

fæðing Jesú Krists

„Hann gekk um [og] gjörði gott.“

  • Þegar þið og börn ykkar lesið aðra málsgrein í skjalinu „Hinn lifandi Kristur,“ ræðið þá við þau um eitthvað af því sem Jesús gerði. Þið gætuð einnig skoðað myndir úr lífi hans (sjá verkefnasíðu þessarar viku og Trúarbókarmyndir). Bjóðið börnum ykkar að ræða um það sem Jesús er að gera á myndunum. Hvernig getum við þjónað hvert öðru eins og hann gerði? Myndböndin „Ljós fyrir heiminn:“ í Gospel Library gætu veitt ykkur hugmyndir.

„Hann er ljós, von og líf heimsins.“

  • Hjálpið börnum ykkar að finna jólasálm sem segir frá því ljósi, lífi og von sem fæðing frelsararans færði heiminum, eins og „Ó borgin litla, Betlehem“ (Sálmar, nr. 81). Syngið sálmana saman og leyfið börnum ykkar að miðla því hvernig Jesús hefur fært líf, ljós og von inn í líf þeirra.

„Guði séu þakkir fyrir óviðjafnanlega gjöf sonar hans.“

  • Hvaða gjafir höfum við hlotið sökum Jesú Krists? Kannski gætuð þið og börn ykkar leitað að þessum gjöfum í skjalinu „Hinn lifandi Kristur“ eða í söng eins og „Hann sendi soninn“ (Barnasöngbókin, 20). Þau gætu síðan pakkað einhverju inn til að tákna þessar gjafir. Þið gætuð lagt til að börn ykkar opni gjafirnar á jóladag til að hjálpa þeim að minnast frelsarans og gjafa hans til okkar.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.